Morgunblaðið - 15.12.2007, Blaðsíða 37
úr bæjarlífinu
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. DESEMBER 2007 37
Miklar byggingaframkvæmdir hafa
verið í Stykkishólmi á síðustu ár-
um og enn er kraftur í húsbygg-
ingum. Eftirspurn er eftir lóðum.
Framkvæmdir við nýja íbúðagötu,
Móholt, voru boðnar út fyrir
skömmu og hefur verið gengið til
samninga við BB & syni um verk-
ið. Gatan verður tilbúin á fyrri
hluta næsta árs. Búið er að út-
hluta fjórum parhúsum við þá
götu og tveimur íbúðarhúsum.
Frá árinu 2000 og til loka árs
2006 hafa verið byggðar 33 íbúðir
í Stykkishólmi og er flatarmál
þeirra samtals um 6.000 fermetr-
ar. Flatarmál íbúðarhúsnæðis hef-
ur aukist um 12,4% á þessum sjö
árum.
Það sem vekur mesta athygli þeg-
ar verið er að bera saman tímabil-
ið 2000-2006 er að fasteignamat
íbúða í Stykkishólmi hefur hækk-
að um 94,5%. Mest hefur hækk-
unin verið síðustu þrjú árin. Hús-
eigendur í Stykkishólmi mega því
vera ánægðir með að verðmæti
eigna þeirra hefur hækkað mun
meira en allar vísitölur á þessu
tímabili.
Bæjarstjórn er þessa dagana að
ganga frá fjárhagsáætlun bæjar-
sjóðs fyrir næsta ár. Bæjarstjórn
kvartar yfir því að tekjur sveitar-
félagsins hafa dregist saman og
það þrengir að öllum fram-
kvæmdum á vegum bæjarfélags-
ins.
Á næsta ári verður mestu fé
ráðstafað til gatnaframkvæmda.
Áætlað er að verja um 50 millj-
ónum króna til yfirborðsfrágangs
gatna og eins verða byggðar upp
nýjar götur.
Kaupþing banki hf. stefnir á að
hefja byggingu á nýju útibúi á
næsta ári. Stykkishólmsbær hefur
ákveðið að kaupa núverandi hús-
næði bankans og fær það vonandi
afhent seinni hluta næsta árs.
Húsnæðið er þrjár hæðir og mun
hýsa Náttúrustofu Vesturlands og
Háskólasetur Snæfellinga. Þessar
stofnanir hafa haft aðsetur í Ráð-
húsinu og búið við þröngan kost.
Ný húsakynni munu gjörbreyta
allri vinnuaðstöðu og mun gera
Náttúrustofu og Háskólasetri
kleift að efla starfsemi sína.
Hjá Náttúrustofu starfa fjórir
starfsmenn og tveir starfsmenn
hjá Háskólasetrinu.
Hólmarar bíða óþreyjufullir eftir
að fá ADSL 2-tengingu í Stykk-
ishólm. Tengingunni hefur verið
lofað lengi og áttu heimamenn von
á henni í febrúar sl., en tíminn
hefur liðið og ekkert hefur gerst.
Með nýrri ADSL-tengingu fæst
mun meiri hraði til niðurhals í
gegn um netið. Þetta er þjónusta
sem stór hluti landsmanna hefur
aðgang að og þykir orðið sjálf-
sögð.
Hjá upplýsingafulltrúa Símans
fengust þær upplýsingar að öll
frekari uppbygging á ADSL-
kerfinu á landsbyggðinni sé í bið-
stöðu. Ástæðan er sú að verið er
að bíða eftir að fá skýr svör frá
Póst- og fjarskiptastofnun um
markaðsgreiningu á ADSL. Þegar
sú niðurstaða liggur fyrir getur
Síminn tekið ákvörðun um með
hvaða hætti verði haldið áfram
uppbyggingu kerfisins. Uppfærsla
á ADSL verður því ekki á næstu
mánuðum á Vesturlandi.
Því er útséð með að Hólmarar
fá umbeðna tengingu í jólagjöf frá
Símanum þetta árið.
Jólaundirbúningur er í fullum
gangi hér sem og hjá öðrum
landsmönnum. Bæjarbúar fylgjast
vel með þróun í ljósskreytingum
og eru duglegir við að tileinka sér
nýjungarnar. Hús og garðar eru
fallega upplýst yfir jólahátíðina.
Norska húsið dregur til sín
gesti á aðventunni. Búið er að
skreyta húsið á öllum hæðum og
koma upp sýningum sem minna á
jólahátíðina. Í Norska húsinu ríkir
jólaandi þar sem jólastemmingin
er allsráðandi. Þangað er notalegt
að koma í heimsókn og fá sér heit-
an epladrykk og piparkökur og
hugsanlega má ná sér í hangi-
kjötsflís í eldhúsinu.
Morgunblaðið/Gunnlaugur Auðunn Árnason
Í Norska húsinu ríkir mikil jóla-
stemming síðustu vikurnar fyrir jól.
STYKKISHÓLMUR
Gunnlaugur Árnason fréttaritari
Guðmunda M. Oddsdóttir sendiVísnahorninu ráðningu á
„Miðbæjarkrossgátunni“:
Laugavegar ljósahaf
lokkar marga í bæinn
njóttu og hafðu yndi af
annríkinu á daginn.
Þegar kynntar voru tilnefningar
til breskra verðlauna fyrir bestu
kynlífslýsingu í skáldsögu vakti það
minningar hjá Má Högnasyni. Hann
orti á bloggi sínu:
Margur þraukar einn á ástarfundi
erótíkin kemur þá í ljós
gott er að lesa Guðrúnu frá Lundi
og gægjast inn í hlöðu eða fjós.
Það má gleðjast við marga
stökuna á blogginu, sem er að finna
á slóðinni hognason.blog.is. Hann
vekur til dæmis athygli á því að
óðar nálgist það takmark að orða
Eið Smára við hvert einasta lið á
Bretlandseyjum:
Eitt ég þekki
að aumt er það lið
sem Eiður er ekki
orðaður við.
Þegar fregnir bárust af því að
Íslenskir aðalverktakar hefðu
keypt heila götu í Garðabæ var Már
ekki lengi að sjá við þeim:
Ég kasta ekki gróða á glæ
og gráðugur ýmislegt fæ.
Ég eignast vil allt
sem er yfirleitt falt.
Næst kaupi ég Kópavogsbæ.
pebl@mbl.is
VÍSNAHORNIÐ
Erótík og
Eiður Smári