Morgunblaðið - 15.12.2007, Blaðsíða 20
20 LAUGARDAGUR 15. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
JAN Reksten, aðmíráll og yf-
irmaður sameiginlegra aðgerða
allra deilda norskra varna og um
leið aðgerða á erlendri grundu, þ.
á m. Afganistan, varð á fimmtu-
dag að segja af sér í kjölfar spill-
ingarmála. Reksten og annar,
háttsettur yfirmaður, Arne Mor-
ten Grønningsæter, sem einnig
var rekinn, þágu ókeypis golf-
ferðir af Siemens-fyrirtækinu sem
er stór viðskiptavinur norska
hersins.
Alls sæta nú 15 aðilar, ein-
staklingar og fyrirtæki, ákærum í
málinu en herforingjarnir eru
sagðir hafa fengið mútur fyrir að
liðka fyrir kaupum á hátæknivör-
um og þjónustu frá Siemens. Aft-
enposten segir einnig að í leyni-
legri skýrslu sé sagt að tveir
háttsettir menn í hernum hafi far-
ið á kynlífs-
klúbba í Amst-
erdam og
tæknifyrirtækið
Thales Norway
greitt reikning-
inn. Haft er eftir
blaðinu Dagens
Næringsliv að
mönnunum hafi
verið boðið á staðina, sem báðir
eru í „Rauðuljósa hverfinu“ svo-
nefnda í Amsterdam, í tengslum
við viðskiptasamninga. Annar
staðurinn bjóði upp á fatafelluat-
riði og sýnd séu kynmök á sviði.
Heimsóknirnar eru sagðar hafa
kostað 7000 norskar krónur, um
80 þúsund ísl. kr. „Andvirði þess-
arar þjónustu er fullhátt sé miðað
við það sem starfsmenn hersins
mega taka við,“ segir í skýrslunni.
Háttsettir herforingjar í
Noregi reknir fyrir spillingu
FORSETAR Rússa og Hvít-Rússa,
Vladímír Pútín og Alexander Lúk-
ashenkó, hétu því á fundi í Minsk að
auka samstarf þjóðanna í varnar-,
efnahags- og utanríkismálum. Þeir
gáfu ekki til kynna að miðað hefði í
átt að samruna landanna.
Pútín í Minsk
NORSKI herinn tók í gær við eft-
irliti með lofthelgi Eystrasaltsríkj-
anna þriggja við landamærin að
Rússlandi. Við eftirlitið verða not-
aðar fjórar norskar orrustuþotur af
gerðinni F-16. Lönd NATO hafa
skipst á um að annast eftirlitið.
Tekur við eftirliti
ÞING New Jersey hefur samþykkt
með 44 atkvæðum gegn 36 að af-
nema dauðarefsingar. New Jersey
varð þar með fyrsta sambandsríkið
í Bandaríkjunum til að afnema
dauðarefsingar frá því að hæsti-
réttur landsins heimilaði þær að
nýju árið 1976.
Bannar aftökur
LEIÐTOGAR ríkja Evrópusambandsins
buðust í gær til að flýta viðræðum við Serbíu
um hugsanlega aðild landsins að samband-
inu. Litið er á tilboðið sem tilraun til að
stuðla að friði á Balkanskaga nú þegar flest
bendir til þess að Kosovo lýsi yfir sjálfstæði
frá Serbíu. Aðstoðarforsætisráðherra Serb-
íu, Bozidar Djelic, sagði að stjórn landsins
vildi flýta viðræðunum við ESB en ekki
kæmi til greina að tengja þær deilunni um
framtíð Kosovo.
Leiðtogar ESB-landanna samþykktu einn-
ig á fundi í Brussel að senda 1.800 manna ör-
yggissveitir til Kosovo til að aðstoða starfslið
Sameinuðu þjóðanna sem er þar fyrir.
ESB reynir að
semja við Serba
Leiðtogar ESB sitja fyrir.
STUTT
Balí. AP, AFP. | Fulltrúar Evrópu-
sambandsins, Bandaríkjanna og
fleiri landa reyndu að ná sam-
komulagi á ráðstefnu aðildarríkja
Rammasamnings Sameinuðu þjóð-
anna um loftslagsbreytingar
(UNFCCC) á Balí í gær. Nokkrir
fulltrúanna sögðust í gærkvöldi
vera vongóðir um að málamiðl-
unarsamkomulag næðist áður en
ráðstefnunni lyki í dag.
Yvo de Boer, framkvæmdastjóri
UNFCCC, sagði að samninga-
viðræðurnar hefðu gengið hægar en
hann hefði búist við en kvaðst telja
að samkomulag væri í sjónmáli.
Vonast var til að á ráðstefnunni á
Balí yrði lagður grunnur að sam-
komulagi um hvað tæki við þegar
Kyoto-bókunin um takmarkanir á
losun gróðurhúsalofttegunda félli úr
gildi í lok árs 2012. Stefnt er að því
að ljúka samningaviðræðunum í
Kaupmannahöfn árið 2009.
Deilt um tillögu ESB
Á ráðstefnunni var einkum deilt
um þá tillögu Evrópusambandsins
að iðnríkin stefndu að því að draga
úr losun gróðurhúsalofttegunda um
25-40% fyrir árið 2020, miðað við
losunina eins og hún var 1990.
Fulltrúar Bandaríkjanna og fleiri
landa lögðust gegn þessu og sögðu
að hvert ríki fyrir sig ætti að
ákveða sjálft hversu mikið það legði
af mörkum í þessum efnum.
Í drögum að samkomulagi, sem
rædd voru í gærkvöldi, var þessi til-
laga ESB ekki í megintextanum
heldur vísað til hennar í neðanmáls-
grein. Það markmið að draga úr
losuninni um 25-40% fyrir árið 2020
var aðeins sagt ná til þeirra ríkja
sem hafa staðfest Kyoto-bókunina.
Bandaríkin eru því undanskilin þar
sem þau eru eina iðnveldið sem hef-
ur ekki staðfest bókunina.
Umhverfisráðherra Þýskalands,
Sigmar Gabriel, sagði að einnig
hefði verið deilt um þá kröfu
Bandaríkjanna og fleiri landa að
þróunarlönd skuldbyndu sig til að
draga úr losun gróðurhúsaloftteg-
unda eins og iðnríkin.
Reynt að semja um
málamiðlun á Balí
Í HNOTSKURN
» Umhverfisverndarsamtöksökuðu Bandaríkjastjórn um
að spilla fyrir baráttunni gegn
loftslagsbreytingum:
» „Bandaríkin hegða sér einsog farþegar á fyrsta farrými,
halda að stórslys á ódýrasta far-
rými hafi ekki áhrif á þau.“
AP
Strax í dag Jacqueline Cramer, umhverfisráðherra Hollands, á loftslagsráðstefnunni á Balí í gær. Á spjaldinu er
hvatt til tafarlausra aðgerða til að draga úr losun lofttegunda sem taldar eru valda loftslagsbreytingum.
Eftir Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
MIKIÐ hefur verið um notkun á
sterum í bandaríska hornaboltanum
árum saman og menn sem notað
hafa lyf er bæta frammistöðuna
hafa verið í öllum 30 liðum úrvals-
deildarinnar (MLB). Kemur þetta
fram í skýrslu rannsóknarnefndar
sem George Mitchell, fyrrverandi
öldungadeildarþingmaður úr röðum
demókrata, fór fyrir. Mitchell hvet-
ur til þess að lyfjaeftirlit verði hert
í hornaboltanum og að það verði
falið aðilum utan deildarinnar.
„Í meira en áratug hefur notkun
á ólöglegum efnum verið útbreidd í
[MLB], þvert á alríkislög og stefnu
deildarinnar. Fyrstu viðbrögð deild-
arinnar voru sein og framan af
ómarkviss en þau fóru að hafa
meiri áhrif eftir að slembikannanir
af hálfu eftirlitsmanna voru gerðar
að skyldu árið 2002,“ sagði Mitch-
ell.
Alls eru nær 80 leikmenn nafn-
greindir í skýrslunni og eru þar á
meðal stjörnur á borð við Barry
Bonds og Roger Clemens, lands-
þekkta hornaboltamenn. Óvíst er
hvaða refsingu, ef nokkra, starfandi
leikmenn munu fá verði sannað að
þeir hafi notað ólöglegu efnin.
Mitchell leggur til að ekki verði
reynt að eltast við gömul brot held-
ur lögð áhersla á að stöðva notk-
unina.
Bonds, sem leikur með San
Francisco Giants, var í liðinni viku
ákærður fyrir að hafa árið 2003 log-
ið eiðsvarinn að kviðdómi sem
kannaði notkun á sterum. Bonds
sagðist þá ekki hafa nokkurn tíma
vitandi vits notað efni af þessu tagi
og í gær vísaði hann á bug ásök-
unum um að hann hefði notað stera
frá fyrirtækinu Balco. Í frétt
breska ríkisútvarpsins, BBC, er
sagt að ekki sé hægt að finna merki
um sterann í líkama þess sem hefur
notað hann.
Yfirmaður MLB, Bud Selig, hratt
rannsókninni úr vör í fyrra eftir að
út kom bók þar sem gefið var í
skyn að áðurnefndur Bonds notaði
ólögleg efni. Sagðist Selig á blaða-
mannafundi vera sammála öllum til-
lögum nefndarinnar. Aðdáendur
hornabolta ættu skilið að sjá „leiki
þar sem allir sitja við sama borð,
þar sem allir keppendur fara eftir
settum reglum“.
Reuters
Steranotandi? Barry Bonds á leið í
yfirheyrslu í San Francisco.
Mikið um ólögleg lyf
í hornaboltanum
Rannsóknarnefnd Mitchells leggur til að eftirlit verði hert
og falið aðilum án tengsla við úrvalsdeildina bandarísku