Morgunblaðið - 15.12.2007, Blaðsíða 76
76 LAUGARDAGUR 15. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
JÓLAMYNDIN Í ÁR
ATH. SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI
ÚR BÝFLUGNABÚINU
Í BULLANDI VANDRÆÐI
/ KRINGLUNNI/ ÁLFABAKKA
SÝND Í ÁLFABAKKA
JÓLAMYNDIN 2007NÝ ÍSLENSK ÆVINTÝRAMYND EFTIR ARA KRISTINSSON SEM
GERÐI M.A. STIKKFRÍ. KALLI
ER SENDUR Á AFSKEKKTAN
SVEITABÆ TIL AÐ EYÐA
JÓLUNUM MEÐ PABBA SÍNUM
ÞAR SEM HANN VILLIST,
LENDIR Í SNJÓBYL OG
HITTIR FYRIR BÆÐI ÍSBJÖRN
OG DULARFULLAR
VERUR OFL!
eee
- S.V., MBL
„Duggholufólkið bætir úr brýnni
þörf fyrir barnaefni” SÝND Í ÁLFABAKKA OG KRINGLUNNI
„RIDLEY SCOTT LEIKSTÝRIR RUSSELL CROWE OG
DENZEL WASHINGTON Í BESTU MYND ÞESSA ÁRS!“
Ó.E.
eeee
„American gangster er
vönduð og tilþrifamikil“
- S.V., MBL
eeee
,,Virkilega vönduð glæpamynd
í anda þeirra sígildu.”
- LIB, TOPP5.IS
„Óskarsakademían mun standa á
öndinni... toppmynd í alla staði.“
Dóri DNA - DV
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI OG KEFLAVÍKSÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI
GRÍNLEIKARINN VINCE VAUGHN
ER FRÁBÆR Í HLUTVERKI STÓRA BRÓÐUR JÓLASVINSINS
JÓLAMYND SEM KEMUR
ALLRI FJÖLSKYLDUNNI Í
SANNKALLAÐ JÓLASKAP
Paul GiamattiVince Vaughn
SPARBÍÓ 450kr á allar sýningar merktar með appelsínugulu Í SAM
FRED CLAUS kl. 3 - 5:30 - 8 - 10:30 LEYFÐ
ALVIN OG ÍKORNARNIR m/ísl. tali kl. 2 - 4 - 6 LEYFÐ
BÝFLUGUMYNDIN m/ísl. tali kl. 2D - 4D - 6D LEYFÐ
BEE MOVIE m/ensku tali kl. 1:40 - 8 - 10:10 LEYFÐ
DUGGHOLUFÓLIÐ kl. 2 - 4 - 6 B.i. 7.ára
BEOWULF kl. 8D - 10:30D B.i.12.ára 3D-DIGITAL
BEOWULF kl. 2 - 5:30 - 8 B.i.12.ára LÚXUS VIP
SYDNEY WHITE kl. 3:40 - 5:50 - 8 - 10:10 LEYFÐ
AMERICAN GANGSTER kl. 8 B.i.16.ára
AMERICAN GANGSTER kl. 10:30 B.i.16.ára LÚXUS VIP
FRED CLAUS kl. 3D - 8:15D - 10:30D LEYFÐ
BÝFLUGUMYNDIN m/ísl. tali kl. 2D - 4D LEYFÐ DIGITAL
BEE MOVIE m/ensku tali kl. 2 - 4 - 6 - 8 LEYFÐ DIGITAL
BEOWULF kl. 8:15 3D - 10:30 3D B.i. 12 ára 3D-DIGITAL
AMERICAN GANGSTER kl. 10 B.i. 16 ára
ÍÞRÓTTAHETJAN m/ísl. tali kl. 1:15 LEYFÐ
WWW.SAMBIO.ISVERSLAÐU MIÐA Á NETINU Á SAMBÍÓIN - EINA
UM er að ræða aðra plötu Samplings,
sem er listamannsnafn Stefáns Ólafs-
sonar, en hann er best þekktur sem
Mezzías MC. Fyrsta plata lista-
mannsins, The Dawn Is Your Enemy,
kom út í fyrra og innihélt einslags
blöndu af hipphoppi og house-tónlist.
Hér beitir hann eingöngu fyrir sig
hipphoppi, ósungnu og letilegu, og er
platan giska heilsteypt fyrir vikið.
Það er ekki verið að finna upp hjólið í
þessari tónlist, en
Stefán gerir þetta
af miklum hag-
leik. Platan rúllar
þannig áfram í
öruggum hæga-
gangi allan tím-
ann; grúvið er áreynslulaust – flæðið
fumlaust.
Flæðið nær því reyndar að vera of
áreynslulaust á köflum og þá er mað-
ur farinn að óska eftir uppbroti.
Rapparinn Keyote, bandarískur vin-
ur og samstarfsfélagi, á þannig gott
innslag í síðasta laginu, „Slowbeat (I
sort of like it)“. Platan ber þess merki
að vera gerð af nokkrum vanefnum,
og með fullri virðingu fyrir fag-
urfræði heimaiðnaðarins þá keyrir sá
bragur stundum úr hófi fram. Þetta á
t.d. við um umslag plötunnar og þá er
hljómur einkennilega flatur, jafnvel
suðkenndur, á köflum. Nú er Stefán
kominn með annan fótinn til Banda-
ríkjanna og ekki minni maður en
Danger Mouse keypti af honum tvö
lög á dögunum. Það væri óskandi að
hann kæmist í frekari álnir á næstu
misserum vegna þessara tengsla, því
hæfileikana vantar ekki. Það væri því
gaman að sjá hann fara með þá út
fyrir svefnherbergið í næstu umferð.
Hægstreymt og ljúft
TÓNLIST
Geisladiskur
Steve Sampling – Borrowed & Blue
Arnar Eggert Thoroddsen
SAGT er að glæsileikinn sé hvergi
fágaðri né spillingin rótgrónari en
á Ítalíu, heimalandi Impregilo. Því
eru verktakarnir í Kárahnjúkum
nefndir að umfjöllunarefnið snýst
um gagnrýnisvert fyrirtæki sem
þrífst í skjóli ódýrs, innflutts
vinnuafls. Þar hefur risið til frama
ungur maður að nafni Franz, fyrr-
um skylmingameistari og besti
vinur og félagi rannsóknarblaða-
mannsins Paolo (Santamaria).
Þegar Franz finnst látinn í bíl sín-
um grunar Paolo að ekki sé allt
með felldu og rannsakar málið upp
á eigin spýtur og í óþökk sam-
félagsins.
Dordit tekur á glæpamálum sem
hafa vaðið uppi um lönd og álfur
með síauknum þunga, ólöglegu
vinnuafli og innflytjendum, vond-
um aðbúnaði, öryggisleysi á vinnu-
stöðum, svörtum greiðslum, mútu-
þægni, og eiturefnum sem fá að
skaða náttúruna. En fyrst og síð-
ast er Apnea um spillingu hugans,
ráðamanna, iðnrekenda og stjórn-
málamanna og eina rödd sem vog-
ar sér að andmæla. Þörf mynd,
stílhrein, dálítið uppblásin, en um-
fjöllunarefnið sannarlega þess
virði að myndinni sé gaumur gef-
inn.
Blaðamaður
í bragð-
vondu
KVIKMYNDIR
Regnboginn:
Ítölsk kvikmyndahátíð
Leikstjóri: Roberto Dordit. Aðalleikarar:
Claudio Santamaria, Elio di Capitanio,
Michela Noonan. 90 mín. Ítalía 2005.
Apnea
Sæbjörn Valdimarsson
Spilling Stílhrein, dálítið uppblásin,
en umfjöllunarefnið þess virði að
myndinni sé gaumur gefinn.
AUGLÝSINGAR eru óumflýjanlegur fylgifiskur sjón-
varpsgláps og svo virðist sem sífellt erfiðara verði að
koma auga á þær, ef marka má fréttir af nýjustu þátt-
unum í gamanþáttaröðinni 30 Rock. Í þeim hafa auglýs-
ingar kreditkortafyrirtækisins American Express, eða
Amex, komið áhorfendum nokkuð í opna skjöldu, ákveð-
in tegund auglýsinga sem kölluð er „podbuster“. Í þeim
birtast leikarar þáttanna í stuttum myndskeiðum sem
hafa ekkert að gera með þáttinn sjálfan án þess að áhorf-
endur geri sér grein fyrir því, a.m.k. í fyrstu.
Tíu slík „poddböst“ hafa verið framleidd fyrir þættina,
35-65 sekúndna löng. Vörumerkið hefur því runnið svo
að segja inn í sjónvarpsþættina. Sjónvarpsstöðvar vest-
anhafs hafa til þessa vílað fyrir sér að nýta leikara í slíku
gróðaskyni, en NBC sjónvarpsstöðin, framleiðandi 30
Rock, virðist ekki lengur setja það fyrir sig.
Kortaauglýsingar
í 30 Rock
Reuters
Allt er falt Leikkonan Tina Fey með framleiðanda 30
Rock, Lorne Michaels og leikaranum Alec Baldwin.