Morgunblaðið - 15.12.2007, Blaðsíða 30
30 LAUGARDAGUR 15. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
ÁRBORGARSVÆÐIÐ
Eyrarbakki | Séra Úlfar Guð-
mundsson, sóknarprestur á Eyrar-
bakka, lætur af störfum prófasts í
Árnesprófastsdæmi um áramótin
eftir að hann sinnt starfinu síðustu
10 árin samhliða prestsstörfum
sínum. Nýr prófastur verður vænt-
anlega skipaður af biskupi Íslands
á næstu dögum.
Séra Úlfar vígðist til Ólafs-
fjarðar 1972 en hefur nú verið
sóknarprestur í Eyrarbakka-
prestakalli í rúm 27 ár.
Ánægður í starfi
„Ég hef alla tíð verið ánægður í
starfi og er sannfærður um að
prestsstarfið er mikilvægt og það
reynir á ýmsa þætti hjá manni
sjálfum að gegna því vel. Starfið er
fjölbreytt og við erum með fólki
bæði í gleði og sorg og svo fjöl-
mörgum atvikum lífsins. Ég tel
engan vafa á því að rétt og heil-
brigð trú á Guð og samfélag um
hann kemur öllu fólki að miklu
gagni í lífinu og gefur lífsfyllingu
og gleði,“ sagði Úlfar þegar hann
var spurður hvernig honum hafi
líkað að vera sóknarprestur í öll
þessi ár.
Hann er orðinn 67 ára og segist
geta að hámarki verið tvo vetur til
viðbótar við störf. „Mér finnst ekki
eðlilegt af mér að halda jafn mikil-
vægu starfi frá yngri mönnum. Ég
ætla að snúa mér að því að undir-
búa starfslok mín. Ég er leigjandi í
prestsetri sem ég þarf að skila af
mér þegar ég hætti og munum við
nú gera í stand hús sem við flytjum
í. Eftir að ég er hættur prófasts-
störfum þarf ég heldur ekki að
koma að því að velja eftirmann
minn í prestakallið. Þannig að það
eru mörg rök fyrir því að hætta
núna í prófastsstarfi,“ sagði Úlfar.
Hann bætti því við að hann ætlaði
sér að starfa áfram sem sóknar-
prestur, alla vega til 1. september
á næsta ári.
Starf prófasts
„Ég er þakklátur fyrir að hafa
fengið að gegna störfum prófasts í
þjóðkirkjunni svona lengi. Það hef-
ur verið á margan hátt gefandi. Í
prófastsdæminu eru 11 prestar, 1
djákni, 30 kirkjur og 25 sóknar-
nefndir og álíka margir kirkju-
garðar. Þannig að hér er margt
starfsfólk og í mörg horn að líta að
hafa eftirlit með störfum fólks og
eignum kirkjunnar. Prófastur er
fulltrúi biskups í prófastsdæminu,
trúnaðarmaður biskups og ráð-
gjafi. Hann er leiðtogi og verk-
stjóri vígðra þjóna. Hann sér til
þess að fólk njóti eðlilegrar prests-
þjónustu og allt gangi rétt og vel
fyrir sig. Öll ágreiningsmál, deilu-
mál eða kvartanir koma fyrst til
prófasts og hann reynir að finna
lausnir og leiðbeina fólki. Prófast-
ur er í fyrirsvari fyrir prófasts-
dæmið að því er varðar sameig-
inleg málefni þess gagnvart
stjórnvöldum, stofnunum og ein-
staklingum. Hann stýrir samstarfi
presta um kirkjulega þjónustu,
skipuleggur sumarfrí og afleys-
ingar og hann er formaður héraðs-
nefndar og héraðssjóðs og heldur
héraðsfundi með öllum þjónandi
prestum og fulltrúum sókna og
kirkjugarða í prófastsdæminu
a.m.k. einu sinni á ári og oftar ef
þurfa þykir. Hann fer ásamt bisk-
upi með yfirstjórn kirkjugarða.
Prófastur þarf að vera vel að sér
um öll lög og reglugerðir og
kirkjulegar hefðir og geta leiðbeint
fólki og svarað spurningum þess.
Hann skipuleggur gjarnan fræðslu
og námskeið fyrir starfsfólk kirkj-
unnar,“ sagði Úlfar þegar hann var
spurður um störf og skyldur pró-
fasts.
36. jólin í röð
Séra Úlfar segist vera jólabarn,
svona svipað og aðrir. Hann segir
að fæðingarhátíð frelsarans sé sér
dýrmæt en að því er varðar jóla-
dagana þá fara þeir mikið í vinnu
hjá honum því hann messar á fimm
stöðum. Þessi jól verða þau 36.
sem hann messar óslitið og hefur
aldrei fallið niður messa á jólum
hjá honum sem hann segir mikið
þakkarefni. Hann er því orðinn
vanur þéttri dagskrá á jólum og
það verður trúlega skrýtið fyrst
eftir að hann er alveg hættur.
„Ég vil biðja þjóðkirkjufólkið að
þjappa sér vel saman um sína
kirkju og mikilvægt hlutverk
hennar. Ég er sannfærður um að
það hefur verið okkar litlu þjóð
mjög dýrmætt að eiga svo stóra og
víða þjóðkirkju eins og verið hefur.
Þar höfum við átt trausta og
örugga rót sem ætti að henta flest-
um og mun duga best í ölduróti
komandi daga,“ sagði sóknarprest-
urinn og prófasturinn á Eyrar-
bakka.
Úlfar Guðmundsson lætur af embætti prófasts í Árnesprófastsdæmis um áramót
27 ár í sama prestakalli
Þjónusta Úlfar Guðmundsson hefur lengi verið sóknarprestur á Eyr-
arbakka en lætur nú af embætti prófasts í Árnesprófastsdæmi.
Í HNOTSKURN
»Úlfar fór að læra guðfræðihaustið 1963 og starfaði
m.a. sem lögregluþjónn í
Reykjavík með náminu.
»Hann var settur sókn-arprestur í Ólafsfirði 1972
og var þar fram í desember
1980. Á þeim tíma var hann
skipaður biskupsritari árið
1976 en hvarf aftur til Ólafs-
fjarðar og síðar Eyrarbakka.
» Í Eyrarbakkaprestakallieru þrjár kirkjur, Gaul-
verjabær, Stokkseyri og Eyr-
arbakki. Sóknarbörnin eru
rúmlega 1.300.
Selfoss | Helstu framkvæmdir á
vegum Sveitarfélagsins Árborgar
á næsta ári verða 263 milljónir
króna vegna nýs skólahúsnæðis á
Stokkseyri, 105 milljónir vegna
endurbyggingar og endurnýjunar
Tryggvagötu á Selfossi, byggð
verður sundhöll við Sunnulækj-
arskóla á Selfossi fyrir tæpar 100
millj. króna, nýr leikskóli í Suð-
urbyggð á Selfossi fyrir 135 millj-
ónir, viðbygging við leikskólann
Æskukot á Stokkseyri fyrir 52
millj. kr., nýtt gámasvæði fyrir
sveitarfélagið, sem staðsett verð-
ur á Selfossi, fyrir 60 millj. króna
og 100 milljónir kr. vegna end-
urbóta á Sundhöll Selfoss. Þar
stendur til að byggja nýtt þjón-
ustuhús og mun einkaaðili koma
inn í þá framkvæmd.
Kom þetta fram þegar fjár-
hagsætlun Sveitarfélagsins Ár-
borgar var lögð fram til fyrri
umræðu á fundi bæjarstjórnar
fyrr í vikunni.
Nýr skóli á Stokkseyri
Bæjaryfirvöld hafa samið við
byggingafyrirtækið Tindaborgir
ehf. á Selfossi um byggingu nýs
grunnskóla á Stokkseyri. Verkið
var boðið út í alútboði þar sem
verktakar koma með hugmynd
og teikningar af heildarlausn
húsnæðisins. Nýi skólinn verður
tekinn í notkun haustið 2009.
Hann verður um 1.800 fermetrar
að stærð og heildarkostnaður er
ætlaður 475 milljónir króna.
Einnig hefur verið samið við
Tindaborgir um að rífa gamla
skólahúsnæðið á Stokkseyri þeg-
ar það nýja verður tilbúið.
Menningarstarfsemi efld
Í greinargerð Ragnheiðar Her-
geirsdóttur bæjarstjóra kemur
fram að meirihluti B-, S- og V-
lista leggur á árinu 2008 mikla
áherslu á málefni fjölskyldna í
sveitarfélaginu. Áætlunin gerir
ráð fyrir markvissri uppbyggingu
og eflingu starfs í þágu barna og
ungmenna í sveitarfélaginu, bætt-
um hag barnafjölskyldna, bættri
aðstöðu fólks með heilabilun,
aukinni þjónustu við aldraða og
stefnumörkun og styrkingu þjón-
ustu við nýbúa. Þá verður menn-
ingarstarfsemi efld og unnin und-
irbúningsvinna vegna framtíðar
húsnæðis fyrir lista- og
menningarstarfsemi, almennings-
samgöngum verður komið á inn-
an sveitarfélagsins, kynning-
armálum komið í markvissari
farveg og auknu fjármagni verð-
ur varið til starfsmannamála í
samræmi við starfsmannastefnu
sveitarfélagsins, að því er fram
kemur í greinargerðinni.
Nýr skóli Framkvæmdir við nýjan grunnskóla á Stokkseyri hefjast nú á vormánuðum og er ráðgert að nýja skóla-
húsið verði tekið í notkun haustið 2009. Húsið er teiknað af Valdísi Bjarnadóttur arkitekt.
Þorlákshöfn | Umhverfisráðuneytið
fellir ekki úr gildi starfsleyfi sem
Heilbrigðisnefnd Suðurlands ákvað
að veita Lýsi hf. til þurrkunar fisk-
afurða í verksmiðju fyrirtækisins í
Þorlákshöfn. Hins vegar finnur
ráðuneytið ýmislegt að ákvörðuninni
og breytir tveimur atriðum í henni.
Þannig er gildistími starfsleyfisins
styttur úr fjórum árum í eitt og hálft
ár og rennur leyfið út um mitt næsta
ár.
Heilbrigðisnefnd Suðurlands til-
kynnti Lýsi hf. 12. desember á síð-
asta ári að ákveðið hefði verið að
veita fyrirtækinu starfsleyfi til fjög-
urra ára vegna starfseminnar í Þor-
lákshöfn. Rekstrinum fylgir lykt
sem nágrannar hafa ama af og hefur
Sveitarfélagið Ölfus viljað leggja
starfsemina niður. Kærði sveitarfé-
lagið útgáfu starfsleyfisins til um-
hverfisráðuneytisins vegna van-
kanta sem það taldi vera á
ákvörðuninni og það gerði einnig eitt
fyrirtæki og tveir einstaklingar. Þá
kærði Lýsi hf. tiltekin skilyrði í
starfsleyfinu.
Kæfandi lykt
Kærur sveitarfélagsins og ann-
arra mótmælenda starfseminnar
sneru meðal annars að því að veitt
væri starfsleyfi til fyrirtækis sem
ítrekað hefði vanrækt að ráða bót á
lyktarmengun. Var því lýst að kæf-
andi lykt bærist frá starfseminni
þannig að á vissum tímum hefði verið
nánast ólíft í nábýli við hana. Þá var
því mótmælt að starfsleyfi hefði ver-
ið gefið út til fjögurra ára þrátt fyrir
að í kynningu á gildandi starfsleyfi
hefði aðeins verið gert ráð fyrir átján
mánaða starfsleyfistíma. Umhverfis-
ráðuneytið tók undir þessa athuga-
semd og taldi að heilbrigðisnefnd
hefði verið óheimilt að víkja frá áður
kynntum starfsleyfistíma án þess að
kynna það sérstaklega. Ekki þótti þó
tilefni til að fella ákvörðunina úr gildi
en gildistími starfsleyfisins var
styttur. Það þýðir að starfsleyfið fell-
ur úr gildi 12. júní næstkomandi,
tveimur og hálfu ári fyrr en gildandi
leyfi segir til um.
Lýsi hf. taldi í kæru sinni að óeðli-
leg skilyrði hefðu verið sett í starfs-
leyfi um lyktareyðingu með bygg-
ingu þvotta- og þéttiturns sem
sveitarfélagið hefur síðan synjað fyr-
irtækinu um leyfi til að byggja. Synj-
un sveitarfélagsins hefur verið kærð
til úrskurðarnefndar byggingar- og
skipulagsmála en umhverfisráðu-
neytið bendir á að Lýsi sé nú óheim-
ilt að koma sér upp þeim búnaði sem
kveðið sé á um í starfsleyfi. Tekur
ráðuneytið undir þau sjónarmið að
þetta ákvæði starfsleyfisins sé í and-
stöðu við meðalhófsreglu og rann-
sóknarreglu stjórnsýslulaga og set-
ur þann fyrirvara í starfsleyfið að
lyktareyðing skuli framkvæmd í
þvotta- og þéttiturni, enda fáist til
þess tilskilin leyfi þar til bærra
skipulags- og byggingaryfirvalda.
Starfsleyfi fisk-
þurrkunar Lýsis
stytt um 2½ ár
Hveragerði | Sérstakt herbergi fyrir
MND-sjúklinga hefur verið opnað á
Heilsustofnun Náttúrulækningafélags Ís-
lands í Hveragerði (HNLFÍ). Herbergið er
glæsilegt í alla staði, búið fullkomnum
tækjum og öll aðstaða er þar til fyrir-
myndar.
Það voru Hollvinasamtök HNLFÍ undir
forystu Ásmundar Friðrikssonar for-
manns sem komu herberginu upp með að-
stoð fjölda fyrirtækja og einstaklinga.
Herbergið kallast Maggýjarherbergi til
minningar um Magneu Karlsdóttur úr
Hveragerði sem lést úr MND-sjúkdómn-
um, en það var eiginmaður hennar, Hall-
dór Jónsson, og dóttir, Elísabet, sem opn-
uðu herbergið formlega. Guðjón
Sigurðsson, formaður MND-félagsins,
sagði við vígslu herbergisins að lang-
þráður draumur félagsins væri að rætast,
nú væri búið að opna flottustu og full-
komnustu aðstöðu fyrir MND-sjúklinga á
Íslandi í Hveragerði.
Aðstaða Halldór Jónsson og Elísabet
Halldórsdóttir opnuðu formlega nýja her-
bergið hjá HNLFÍ í Hveragerði.
Sérstök aðstaða
opnuð fyrir
MND-sjúklinga
Bærinn leggur 100 milljónir í
endurbætur á Sundhöll Selfoss