Morgunblaðið - 15.12.2007, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. DESEMBER 2007 21
MENNING
SHAIKH Abdurraheem Muslim
Dost, pakistanskt ljóðskáld og fyrr-
um fangi Bandaríkjahers í Guant-
anámo á Kúbu, hefur nú endurritað
safn ljóða sem fangar þar ristu með
steinvölum í frauðmál, 21 ljóð alls.
Málin voru tekin af föngunum að
loknum máltíðum en Dost skrifaði
þau eftir minni eftir að hann var
leystur úr haldi árið 2005.
Fangarnir fengu hvorki bréfsefni
né skriffæri fyrr en ári eftir að hafið
var að flytja menn í búðirnar. Ljóðin
eru eftir 17 karla, gefin út á bók sem
ber heitið „Poems From Guant-
ánamo: The Detainees Speak“, eða
„Ljóð frá Guantanámo: Fangarnir
tala“. Flestir höfundanna eru enn
bak við lás og slá, nokkrir þeirra rit-
höfundar, skáld eða blaðamenn. Þó
þreyta margir frumraun sína í ljóða-
gerð. Það var bandarískur prófessor
í lögfræði, Marc Falkoff, sem tók að
sér ljóðaútgáfuna en mennirnir 17
eru skjólstæðingar hans. Falkoff
hafði áður veitt því eftirtekt að í
bréfaskriftum sínum létu fangarnir
oft fylgja með ljóðbrot eða heilu ljóð-
in. Falkoff segir þessi ljóð öll hafa
verið rituð án þess að mennirnir
byggjust við því að nokkur læsi þau
nokkurn tíma, að samföngum þeirra
undanskildum.
Falkoff telur það ganga krafta-
verki næst að tekist hafi að gefa ljóð-
in út. Fangarnir fylgdu í fótspor
þeirra sem ort hefðu í Gúlaginu eða
útrýmingarbúðum nasista. Flest
ljóðanna hafa þó horfið með öllu, litið
var á þau sem ógn við Bandaríkin.
Ljóð
fanga
Ort í Guantanámo-
fangabúðunum
Fangabúðirnar Mynd sem tekin var
í Guantanámo í janúar 2002.
SÓPRANSÖNGKONURNAR
Kristín R. Sigurðardóttir og
Hulda Guðrún Geirsdóttir
halda jólatónleika í Dómkirkj-
unni á morgun kl. 17. Meðleik-
ari þeirra verður Julian Hew-
lett píanóleikari.
Sönkonurnar lofa jólaskapi
og jólastemmningu, en á efnis-
skránni verða jólalög, aríur og
dúettar – gömul og ný tónlist
eftir tónskáld á borð við Händ-
el, Mozart, Gounod, Cesar Franck, Vivaldi, Bell-
ini, Sigurð Þórðarson og fleiri. Þá ætla þær einnig
að frumflytja nýjan jóladúett eftir píanóleikarann.
Tónlist
Hátíðlegur jóla-
söngur í Dómkirkju
Kristin og
Hulda Guðrún
JÓLATÓNLEIKAR Karla-
kórs Reykjavíkur verða í Hall-
grímskirkju í dag kl. 17 og 21
og á morgun kl. 17 og 20. Kór-
inn syngur sígildar jólaperlur í
sannri jólastemningu. Ein-
söngvarar eru Sveinn Dúi
Hjörleifsson tenór og Ásgeir
Eiríksson bassi, en þeir hafa
áður sungið einsöng með kórn-
um. Lenka Mátéova leikur með
á orgel og trompetleikararnir
Ásgeir H. Steingrímsson og Eiríkur Örn Pálsson
koma einnig fram. Stjórnandi Karlakórs Reykja-
víkur er Friðrik S. Kristinsson.
Tónlist
Karlakórssöngur
í Hallgrímskirkju
Friðrik S. Krist-
insson með kórnum
KOMIÐ er að síðasta upplestri
í upplestraröð Gljúfrasteins.
En þar munu rithöfundar lesa
úr verkum sýnum 16. des. Jón
Kalman Stefánsson les úr bók
sinni Himnaríki og helvíti, Vig-
dís Grímsdóttir úr Bíbí Ólafs-
dóttur, Pétur Gunnarsson úr
bók sinni ÞÞ í fátækralandi og
að lokum Ólafur Ragnarsson –
Til fundar við skáldið Halldór
Laxness, Guðmundur Ólafsson
leikari les. Andrúmsloftið í stofunni er einstakt og
tilvalið að gleyma jólastressinu og njóta upplestra
í kyrrðinni í sveitinni sem hefst kl. 16.
Bókmenntir
Upplestur í
sveitarkyrrðinni
Halldór Laxness
árið 1928
Eftir Bergþóru Jónsdóttur
begga@mbl.is
ÉG hefði líka farið að skæla í spor-
um Klöru. Þessi furðumaður, herra
Drosselmeyer sem kom í heimsókn á
aðfangadagskvöld, gaf öllum í fjöl-
skyldunni jólagjöf – nema henni. Og
svo … þegar hann var loksins búinn
að töfra fram handa henni æðislegan
hnotubrjót, þurfti ótætis litli bróðir,
hann Frank, að mölva hann í ein-
tómri öfundsýki. Frekar lásí jól það.
Ég get varla ímyndað mér að Klara
hafi verið í góðu skapi þegar hún fór
að sofa. En … hókus, pókus … það
var þá sem ævintýrið lifnaði við, og
þegar upp var staðið var einmitt
þessi jólanótt sú allra besta í lífi
Klöru.
Þessi frábæri ballett, Hnotubrjót-
urinn eftir Pjotr Tsjaíkovskí, verður
aðalefnið á jólatónleikum Sinfón-
íuhljómsveitar Íslands í dag kl. 14 og
17. Sviðið verður fullt af krökkum úr
Listdansskóla Íslands sem dansa at-
riðin úr ballettinum, og Barbara
trúður segir frá því sem gerðist eftir
að Klara var sofnuð.
Áður en Hnotubrjóturinn hefst
spilar hljómsveitin Jólaforleik eftir
Leroy Anderson – tónskáldið sem
samdi Sleðaferðina, en eftir tón-
leikana syngja allir saman með
hljómsveitinni, Heims um ból.
Stjórnandi á tónleikunum verður
Gary Berksson, en stúlkur úr skóla-
kór Kársness syngja jólalög í and-
dyri bíósins áður en þeir hefjast.
Þegar leikföngin lifna við
Nemendur Listdansskóla Íslands dansa Hnotubrjótinn með Sinfóníuhljómsveitinni
Morgunblaðið/Ómar
Tónleikar Elsa M. Hilmarsdóttir, Katrín Eyjólfsdóttir og Jóhanna D. Stefánsdóttir dansa kínverska te-dansinn.
Síðumúla 30 - Sími 568 4242 - www.heimahusid.is
OPIÐ Í DAG, LAUGARDAG 11-18
OPIÐ Á MORGUN, SUNNUDAG 13-16