Morgunblaðið - 15.12.2007, Page 31

Morgunblaðið - 15.12.2007, Page 31
|laugardagur|15. 12. 2007| mbl.is daglegtlíf Franska héraðið Roussillon hef- ur sótt í sig veðrið í víngerð á undanförnum árum þó ekki sé það stórt yfir að líta. »39 vín María Theódóra Ólafsdóttir vill hafa allskonar ólíka hluti í kringum sig og húsgögn með sögu. »34 innlit Honum Jóni Bjarti Heimissyni, 5 ára, finnst jólasveinarnir vera frábærir, enda gefa þeir líka gjafir. »36 aðventan Það er grundvallaratriði að vera vel til fara á jólunum og ekki er verra að geta brugðið sér í glæ- nýjan kjól. »32 tíska Að mati vísindamanna geta lík- amseinkenni sagt til um hvort maður eigi á hættu að fá ákveðna sjúkdóma. »38 daglegt Þetta er eiginlega pólitískbarnabók fyrir fullorðnaþar sem segir frá tíu ung-um mönnum sem af ýms- um ástæðum flæmast úr sveitinni einn af öðrum,“ segir Guðrún Jón- ína Magnúsdóttir sem er höfundur vísna í bókinni Tíu litlir sveitastrák- ar en þar segir frá ungum sveita- mönnum sem ekki geta stundað bú- skap í sveitinni af ýmsum ástæðum. „Sá síðasti kynnist konu frá Búlgaríu og flytur með henni þang- að af því landbúnaður er ekki arð- bær á Íslandi lengur. Þau eignast saman marga litla bændur sem búa í útlandinu. Tíu litlir sveitastrákar eru leiksoppar stjórnvalda þó svo að sá þeirra sem dettur í fjóshaug- inn geti kannski sjálfum sér um kennt. Prentarinn okkar, hann Svavar, fór fram á að einn færi þá leiðina og ég lét það eftir honum, þó ég hefði hæglega getað fundið eitthvað beittara, um kvótamálin eða eitthvað annað. Ég verð að játa að mér finnst íslenskir ráðamenn hafa flotið sofandi að feigðarósi í byggðastefnu landsins og landbún- aðarmálum.“ Það fer ekki framhjá neinum að þessi bók er ádeila um þróun mála í sveitum landsins og hvernig ís- lenskur landbúnaður á í vök að verjast. „Enginn búskapur stendur undir afborgunum af þeim lánum sem ungt fólk þarf að taka ef það ætlar að kaupa sér jörð til að hefja bú- skap,“ heldur Guðrún áfram. „Jarð- arverð er orðið svo himinhátt að enginn hefur efni á þeim nema auð- menn, sem gera svo eitthvað allt annað en hefja búskap þegar þeir kaupa upp hverja jörðina á fætur annarri á offjár. Við finnum fyrir þessu hér í Rangárþingi, rétt eins og annarsstaðar á landinu.“ Skjótandi allt sem fyrir er Það er ýmislegt annað en auð- menn sem grandar sveitapiltunum í þessari bók, þar eru líka skæðar, sænskar innfluttar kýr og varasam- ar gæsa- og rjúpnaskyttur. „Ég hef svolitla persónulega reynslu af þessum málum því ég vann eitt sinn hjá veiðistjóra. Þá var algengt að bændur hringdu til okkar öskureiðir yfir því að einhver óð um landið þeirra í leyfisleysi með langdrægan riffil og skaut allt sem fyrir varð. Þetta er því reynsluþrungin bók,“ segir Guðrún og hlær. „Það er ekki heldur nein tilviljun að einn sveitastrákurinn hrapar of- an í Hálslón, því ég hef tengst virkjunarmálum á ýmsan hátt. Ég ólst upp í Andakílsárvirkjun. Þar er búið að græða upp mela og mikil skógrækt hefur verið í áraraðir við lónið. Nú hefur þetta allt verið eyðilagt því þar er verið að setja upp nýtt túrbínurör og búið að tæta allt upp með stórvirkum vinnu- vélum. Öll þessi áratuga land- græðsla er því farin fyrir lítið.“ Guðrún hefur fleiri tengingar við stóriðju því hún er auk þess ættuð frá Hrauni í Reyðarfirði. „Þar bjó amma mín og nafna en núna er Al- coa búið að byggja yfir bæinn Hraun og þar sést hvorki tangur né tetur af þessum æskuslóðum. Þarna eru álversskálar svo langt sem aug- að eygir, fjaran týnd og allt horfið. Ég veit vel að virkjanir geta verið til góðs en mér finnst að ef á annað borð sé virkjað þá verði að setja þeim sem sjá um virkjanir og reyndar stóriðju líka, strangar regl- ur um umgengni við náttúruna.“ Yrkir líka eftir pöntun Bókin Tíu litlir sveitastrákar er augljóslega vísun í Tíu litla negra- stráka sem hafa verið mikið á milli tanna fólks undanfarið. Guðrún segir upphafið að þessu öllu saman að hún og Katrín Óskarsdóttir myndlistarmaður gáfu saman út bók í fyrra sem heitir Sagan af Sæ- mundi súpermús. „Við erum langt komnar með aðra bók sem er um hann Randver ráðagóða, en það er saga um hænur og hún kemur vonandi út næsta haust. Ég leitaði til Katrínar til að teikna myndir í bókina af því ég hafði séð myndirnar hennar á Laugalandi þar sem hún var að selja þær fyrir jólin. Mér fannst þær flottar og sá fyrir mér að þær gætu orðið flottar í barnabók,“ seg- ir Guðrún og bætir við að útkoma nýjustu bókarinnar um sveitastrák- ana sé eiginlega henni Kötu að kenna. „Hún hringdi í mig í haust alveg óð og uppvæg og sagði ekkert ann- að en: „Tíu litlir sveitastrákar.“ Ég hváði og spurði hvað væri eiginlega með þessa stráka. Þá spurði hún mig hvort ég gæti ekki búið til vís- ur um þá. Ég hélt það nú og þeir fæddust eins og skot þessir drengir og þremur klukkutímum síðar var handritið komið í póst til Kötu.“ Bækurnar eru gefnar út af Vild- arkjörum, sem er fyrirtæki þeirra hjóna, Guðrúnar og Nonna manns- ins hennar. „Nonni stofnaði þetta fyrirtæki upphaflega þegar hann var með áburðarsölu til bænda. Svo vorum við með hestavörur, máln- ingu og fleira. Það er því vel við hæfi að þetta fyrirtæki gefi út bók um sveitastráka.“ Guðrún er líka með svokölluð kvæðakaup inni á vefsíðu Vildar- kjara, þar sem fólk getur pantað kveðskap af hvaða tilefni sem er. „Þegar ég þurfti að hætta að vinna fyrir sjö árum fluttum við til Hellu og ég var alltaf að yrkja, ýmist fyr- ir kórana sem ég var að syngja í, vini eða skyldfólk. Þetta voru af- mæliskvæði, spávísur, boðskort í brúðkaup, ræður í bundnu máli eða eitthvað annað. Svo setti ég vís- urnar á netið fyrir hvatningu frá manninum mínum og þetta hefur undið upp á sig. Núna set ég saman kvæði í hverri viku eftir pöntun, eftir því hvað er að gerast í hverri fjölskyldu.“ Morgunblaðið/Kristinn Sveitakona Guðrúnu Jónínu eða Ninnu, er umhugað um framtíð íslenskra sveita. Sænskar kýr Þessar skaðræðisskepnur stanga unga bændur út af dagskránni. Gæsaskytta Eins gott að koma sér undan þegar þær byrja að skjóta allt sem fyrir verður. Tíu litlir sveitastrákar basla í búskapnum Henni finnst stjórnvöld ekki standa sig í land- búnaðarmálum og ungu fólki nánast óger- legt að hefja búskap í sveit. Kristín Heiða Kristinsdóttir heyrði í konu sem skrifaði póli- tíska bók um tíu litla sveitastráka. www.vildarkjor.is Þeir fæddust eins og skot þessir drengir og þremur klukkutímum síðar var handritið komið í póst til Kötu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.