Morgunblaðið - 15.12.2007, Síða 34
Stofa og borðstofa Allskonar stíll þar sem öllu ægir saman: Tekkborð úr Góða hirðinum, Jesús á krossinum sem
þau fundu á markaði á Spáni, lýsandi mörgæs og forláta píanó frá Sigríði ömmu.
Einar Sveinsson teiknaðiþetta hús og það var gam-all dúkur hér á gólfum ogþar sem við vildum reyna
að halda anda hússins þá settum við
nýjan dúk á alla íbúðina, en ekki
parket eða flísar. Eins gerðum við
stigaganginn upp á eins mínimalískan
hátt og við gátum, því við vildum láta
stemninguna halda sér. Snúinn stigi
og stór langur gluggi í stigagangi er
alveg dæmigerður fyrir Einar
Sveinsson,“ segir María Theódóra
Ólafsdóttir hönnuður sem býr ásamt
manni sínum Vigfúsi Birgissyni ljós-
myndara, tveimur dætrum og hund-
inum Muggi á hæð í Norðurmýrinni
þar sem er hátt til lofts og stór garður
með fornum trjám umlykur húsið.
„Við búum ennþá aðeins á hæðinni
en við eigum eftir að innrétta risið
fyrir ofan okkur. Til stendur að setja
upp fallegan hringstiga til að tengja
saman hæð og ris og við ætlum að
færa svenherbergið okkar upp svo
stelpurnar geti verið hvor með sitt
herbergið hér á hæðinni. Við höfum
brotið niður veggi og opnað mikið
hérna inni, því þetta var miklu
þrengra og meira niður hólfað.“
Heimili Maríu og Vigfúsar er fullt
af allskonar hlutum, stórum og
smáum, bæði listaverkum og hús-
gögnum sem geyma sögur. „Mörgum
finnst þetta agalegt að öllu ægi svona
saman, en við höfum ekki áhuga á
Hönnuður María hugar að einum þeirra módelkjóla sem hún hefur nýlega
hannað og eru til sölu. Í beltinu er silfur úr íslenskum þjóðbúningi.
Krummi og mjólkur-
brúsi stofustáss
Hún vill hafa allskonar
ólíka hluti heima hjá
sér og húsgögn frá ólík-
um tíma og allt með
sögu. Kristín Heiða
Kristinsdóttir heim-
sótti hönnuð í Norður-
mýrinni.
lifun
34 LAUGARDAGUR 15. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ