Morgunblaðið - 15.12.2007, Page 48

Morgunblaðið - 15.12.2007, Page 48
48 LAUGARDAGUR 15. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN KÆRU alþingismenn. Við undirritaðar köllum eftir ábyrgð ykkar þegar þið takið ákvörðun um breytingu á lögum sem leiðir til þess að áfengi verði selt í matvöruverslunum.Við biðjum ykkur að nýta þær upplýsingar sem fyrir liggja um áhrif þess að auka aðgengi þjóðar að áfengi. Skoðið fræðilegar úttektir á því hverjar af- leiðingarnar verða. Lítið á faglegar ráðleggingar sem liggja fyrir, ís- lenskar sem erlendar. Hér er ekki pláss fyrir persónulegar vangavelt- ur, það er allt of mikið í húfi. Það er óumdeilt, samkvæmt sér- fræðiálitum, að aukið aðgengi að áfengi þýðir aukna neyslu áfengis. Það er líka óumdeilt meðal sérfræð- inga að langbesta og áhrifaríkasta aðferð fyrsta stigs forvarna felst í aðgengisstýringu. Aðgengi er t.d. fjöldi útsölustaða, verð, áfeng- iskaupaaldur, fjöldi tegunda af áfengum drykkjum og afgreiðslu- tími áfengis. Hvers vegna þá að styðja frumvarp sem dregur úr for- vörnum gegn áfengisneyslu? Við höfum dæmi um frábært framtak hjá Alþingi að takmarka aðgengi að tóbaki með þeim afleið- ingum að reykingar á Íslandi eru nú með því minnsta í vestrænum heimi. Sömuleiðis tókst Íslend- ingum með opinberri aðgengisstýr- ingu að minnka verulega sölu á kó- deinlyfjum og draga úr fjölda nýrra ópíóíð-fíkla. Haldgóð dæmi um frá- bæran árangur fyrsta stigs for- varna gegn ofneyslu og misnotkun löglegra fíkniefna. Við höfum þannig sannreynt á Ís- landi að opinberar aðgerðir til að- halds virka gegn löglegum fíkniefn- um. Hvers vegna þá að minnka forvarnaraðgerðir með nýju áfeng- isfrumvarpi? Hvers vegna og fyrir hverja yrði það gert? Aðgengisstýring áfengis eins og hún er í dag er ekki heftandi fyrir hinn almenna Íslending sem vill kaupa áfengi. Þvert á móti er að- gengi að öllum tegundum áfengis afskaplega gott víðast hvar á land- inu. Þarf hinn almenni neytandi áfengis betra aðgengi? Við hljótum að spyrja á ný, hverra hagsmuna er verið að gæta með því að leggja til sölu áfengis í matvöruverslunum – kannski kaupmanna? Aðhaldsstefna Íslendinga hefur hingað til haldið áfengisneyslu okk- ar sem þjóðar lægri en hjá flestum Evrópuþjóðum, og það er vel. Regl- urnar hafa verið rýmkaðar síðustu ár og aðgengið að mörgu leyti auk- ist, það ásamt almennri efnahags- uppsveiflu hefur aukið áfeng- isneyslu undanfarin ár og svo að Íslendingar eru nú komnir nálægt hófsemdarmörkum með neyslu 7 lítra af hreinum vínanda á fullorð- inn mann á ári. Frekari viðbót við heildarneyslu þjóðar veit ekki á gott. Áfengi er löglegt ávanabindandi fíkniefni og vímuefni. Þótt frum- varpið tali um sölu á áfengi sem er innan 22%, þá er áfengi áfengi. Neyslu þess fylgir áhætta. Áhrif á heila eru slævandi og valda mjög fljótt dómgreindarleysi. Vel þekkt eru alvarleg áhrif á öll líffærakerfi, andlega heilsu og félagslega getu. Alvarleg fósturskaðandi áhrif áfengis eru áhyggjuefni. Ekkert magn áfengis er óhætt að drekka án hættu á skaðlegum áhrifum á fóstur. Aukið aðgengi hefur mismikil áhrif. Þeir sem eru í mestri hættu eru unga fólkið (áfengi er stærsta beina og óbeina orsök dauða meðal ungs fólks), ófædd börn þungaðra kvenna og eldra fólkið. Þeir sem eru nú þegar vínhneigðir eða áfeng- isfíknir munu ekki heldur fara var- hluta af þessum breytingum, en áhrifin eru langt frá því að vera bundin við þá, eins og sumir vilja vera láta. Þau verða miklu meiri en svo. Ef þið, ágætu þingmenn, styðjið þetta frumvarp, gerið þá a.m.k. út- tekt á því hvað það kostar þjóðina, notið upplýsingar sem liggja fyrir um áhrif sambærilegra aðgerða frá öðrum þjóðum, t.d. Svíum og Finn- um. Þá sjáið þið að þessi aðgerð mun kosta þjóðarbúið fjölgun veikindadaga, fjölgun slysa, aukn- ingu ofbeldis og þó nokkur mannslíf til viðbótar. Þá og að- eins þá getur hver fylgjandi þingmaður sagt á ábyrgan hátt: „Já, þetta er fórn- arkostnaðurinn, ég geri mér grein fyrir því, og ég hef valið að kjósa með þessu frumvarpi.“ Allt ann- að er ábyrgðarleysi. Það er heldur ekki nóg að vísa til ábyrgðar ein- staklingsins í þessu samhengi. Ófætt barn getur ekki varið sig gegn drykkju móður. Sá sem slas- ast af völdum öku- manns undir áhrifum getur ekki tekið ábyrgð á því. Við vit- um einnig að hvert ár sem unglingarnir okkar bíða með að prófa áfengi get- ur skipt sköpum um framtíð- arheilsu þeirra, og þar munar ald- eilis um aukið aðgengi. Hversu miklu viljum við fórna? Ef við vilj- um fórna þessu, þá er heiðarlegast að gangast við því. Ef nýtt frumvarp snýst hins veg- ar ekki um að auka áfengisneyslu þjóðar, fjölga vinnuslysum og veik- indadögum, fjölga bílslysum og sjúkrahúsinnlögnum vegna ofbeldis og ofneyslu, heldur um einkavæð- ingu, þá hlýtur að vera til önnur leið en sú sem nú er til umræðu. Er ekki rétt að afgreiða þetta frum- varp út af þinginu nú og hugsa mál- ið upp á nýtt svo að sem minnstur skaði hljótist af fyrir Íslendinga, unga sem aldna? Með vinsemd og virðingu frá fjórum vinkonum á besta aldri sem eru dætur, mæður, tengdamæður, framtíðarömmur; hjúkrunarfræð- ingur, læknir, sálfræðingur og skólastjóri. Opið bréf til alþingismanna Ingunn Hansdóttir, Gyða Björnsdóttir, Valgerður Rún- arsdóttir og Þórunn Egilsdóttir skrifa um áfengismál » Við köllum eftirábyrgð ráðamanna. Sala áfengis í mat- vöruverslunum mun auka neyslu almennt, eru menn tilbúnir til að taka afleiðingum þess? Þórunn Egilsdóttir Ingunn er sálfræðingur, Gyða hjúkr- unarfræðingur, Valgerður læknir og Þórunn skólastjóri. Valgerður Rúnarsdóttir Ingunn Hansdóttir Gyða Björnsdóttir STAKSTEINAR Morgunblaðsins fimmtudaginn 13. des- ember fjalla um um- mæli forstjóra Lands- nets í blaðinu daginn áður, í tilefni af þings- ályktunartillögu þess efnis að skipuð verði nefnd til að móta stefnu um lagningu jarðstrengja í stað loftlína á næstu árum og áratugum. Rakið er hvernig forstjórinn segir það ekki í verka- hring Landsnets að standa gegn því að all- ar línur verði lagðar í jörð, sé samfélagið reiðubúið að greiða þann auka kostnað sem því fylgi. Hins vegar segir forstjór- inn aðspurður í sömu frétt að viðgerðartíma jarðstrengja megi í raun mæla í vikum og að þar sé um að ræða mun kostnaðarsamari aðgerð en viðgerð á loftlínum. Er hann þar í raun að staðfesta ummæli úr greinargerð þingsályktun- artillögunnar og bendir í framhaldi á að þetta hafi væntanlega í för með sér að leggja þurfi fleiri strengi en loftlín- ur til að halda við sama öryggi. Þessi ummæli verða höfundi Stak- steina tilefni til að kvarta undan því að þarna sé forstjórinn beinlínis að lýsa yfir andstöðu sinni við þá umhverfisbót sem í því væri fólgin að fela allar raflínur í jörðu, „án þess að vilja gangast við andstöðu sinni.“ Er manninum ekki heimilt að staðfesta að- spurður það sem segir í greinargerð þings- ályktunartillögunnar? Væri betra að þessar upplýsingar kæmu ekki fram? Samorka hefur ekki fjallað um um- rædda þingsályktun- artillögu en ljóst er að þeirri sýn sem þar er fram sett er nú þegar fylgt að verulegu leyti þar sem aðstæður leyfa. Staksteinar skjóta á sendiboða Gústaf Adolf Skúlason gerir at- hugasemd við Staksteina Gústaf Adolf Skúlason »Er mann-inum ekki heimilt að stað- festa aðspurður það sem segir í greinargerð til- lögunnar? Væri betra að þessar upplýsingar kæmu ekki fram? Höfundur er aðstoðarfram- kvæmdastjóri Samorku, samtaka orku- og veitufyrirtækja. Fréttir á SMS - kemur þér við Kalli Bjarni dæmdur í tveggja ára fangelsi Gott veður og ódýr bjór á Íslandi Krummi í Mínus á þúsund vínylplötur Hvað er ómissandi á jólaballinu? Regína Ósk opnar myndaalbúmið Umferðarstofa stoppar dónaleg bílnúmer Hvað ætlar þú að lesa í dag?

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.