Morgunblaðið - 15.12.2007, Qupperneq 63

Morgunblaðið - 15.12.2007, Qupperneq 63
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. DESEMBER 2007 63 FRÉTTIR ,,Jólaljós“, styrktartónleikar Lágafellssóknar undir stjórn Jón- asar Þóris, eru kl. 20. Tónleikarnir eru til styrktar Fjölskylduhjálp Ís- lands. Landsþekktir tónlistarmenn og -konur koma fram. Aðgangs- eyrir er 2.500 kr. Selt er við inn- ganginn. Aðventuvaka Öllu, Ásu og Önnu Siggu verður í kirkjunni 21. desem- ber kl 21. Þetta er stund tónlistar, íhugunar, söngs og fárra orða, á lengstu nótt ársins. Gospelkór Árbæj- arkirkju syngur Helgistund verður í Árbæjarkirkju kl. 11. Gospelkór Árbæjarkirkju syngur syrpu af jólasöngvum. Mar- grét Ólöf Magnúsdóttir djákni leið- ir stundina, les jólasögu og flytur hugleiðingu. Stjórnandi gospel- kórsins er Þóra Gísladóttir. Barna- horn verður starfrækt á meðan á athöfn stendur, þannig að ungir sem aldnir geta komið og notið stundarinnar. Kirkjukaffi og með- læti á eftir. Skólamessa í Vídalínskirkju Hefð er fyrir því að eldri Grunn- skólar Garðabæjar, Flataskóli og Hofsstaðaskóli, heimsækja Vídal- ínskirkju á hverri aðventu og halda uppi helgihaldi í fjölskylduguðs- þjónustum. Flataskóli kemur í heimsókn í messu kl. 11 en kenn- arar og nemendur skólans hafa undirbúið efni til flutnings í guðs- þjónustunni. Þar verður jóla- guðspjallið sett upp sem helgileikur með tónum og tali og nemendur annast upplestur efnis sem þau hafa valið í samráði við kennara sína. Einnig hefur tónlistin verið undirbúin og skipar sess í öllu helgihaldi. Þá munu nemendur Tónlistarskóla Garðabæjar, þeir Gunnar Sigurðsson og Matthías Másson, leika á hljóðfæri á meðan safnast er til kirkjunnar undir stjórn kennara síns. Soffía Sóley Helgadóttir leikur forspil á korn- ett. Sr. Friðrik J. Hjartar annast altarisþjónustuna. Sunnudagaskóli verður í kirkjunni á sama tíma og fara börnin beint í hliðarsali með leiðtogum sínum. Foreldrar og fjöl- skyldur nemenda í Flataskóla eru hvött til að mæta. Gospeltónleikar í Fjölbrautaskóla Garðabæjar Jólatónleikarnir verða í Fjölbrauta- skóla Garðabæjar 20. desember kl. 20. Gospelkórinn flytur í bland jóla- lög og gospeltónlist undir stjórn Þóru Gísladóttur. Forsala að- göngumiða verður í Vídalínskirkju 18. desember kl. 17-19 og í FG fyrir tónleika. Aðgangseyrir er 1.000 kr. Borgardætur munu taka lagið með gospelkórnum. Allur ágóði af tón- leikunum rennur til fræðslustarfs Freyju Haraldsdóttur. Nánari uppl. á gardasokn.is Jólagleðin í Laugarneskirkju Sumargleðin, þeir Ómar Ragn- arsson, Raggi Bjarna og Þorgeir Ástvaldsson, koma árvisst í Laug- arneskirkju og taka að sér guðs- þjónustu. Messa verður kl. 11 og mun Ómar flytja ræðu dagsins en Raggi Bjarna syngur ýmis aðventu- og jólalög við undirleik Þorgeirs Ástvaldssonar. Einnig mun söng- konan Laufey Geirlaugsdóttir flytja jólasálm með Þorgeiri en eigin- maður hennar, Sigurbjörn Þorkels- son, annast meðhjálparahlutverkið. Sunnudagaskólinn verður á sínum stað og munu þeir félagar taka lag- ið fyrir börnin áður en þau ganga yfir í safnaðarheimilið undir hand- leiðslu sr. Hildar Eirar og hennar samstarfsfólks. Nánari uppl. á laug- arneskirkja.is Fjölskylduguðsþjón- usta og jólatónleikar í Hallgrímskirkju Fjölskylduguðsþjónusta verður í Hallgrímskirkju kl. 11. Á þriðja tug ungra stúlkna koma þar fram og flytja helgileik í söng og bundnu máli. Stjórnandi hópsins er Friðrik S. Kristinsson. Magnea Sverris- dóttir djákni þjónar við athöfnina ásamt sr. Birgi Ásgeirssyni, sem flytur hugleiðingu. Björn Steinar Sólbergsson verður við orgelið. Messuþjónar aðstoða. Christmas service will be held in English on Sunday the 16th of Dec- ember at 14pm, at Hallgrímskirkja. Sr. Bjarni Þór Bjarnason, the Motet Choir will sing. Hallgrímskirkja Motet Choir, Organist and Conduc- tor: Hörður Áskelsson. Á laugardag og sunnudag eru jólatónleikar Karlakórs Reykjavík- ur í Hallgrímskirkju, tvennir hvorn dag, laugardag kl. 17 og kl. 21, sunnudag kl. 17 og kl. 20. Stjórn- andi kórsins er Friðrik S. Krist- insson. Fjölskylduguðsþjón- usta og aðventugleði í Lindasókn Fjölskylduguðsþjónusta verður í Salaskóla kl. 11. Sýnt verður brúðu- leikritið Pönnukakan hennar Grýlu í flutningi Bernd Ogrodnik. Keith Reed organisti leikur undir safn- aðarsöng. Prestur Guðmundur Karl Brynjarsson. Aðventugleði Lindasóknar verð- ur haldin í Salaskóla kl. 17. Kór Lindakirkju syngur, auk þess syngja stúlkur úr Kórskóla Linda- kirkju undir stjórn Keiths Reed. Einsöng syngja Kristín Sigurðar- dóttir og Áslaug Helga Hálfdán- ardóttir. Matthías Baldursson leik- ur á saxafón, lesin jólasaga og flutt verður örleikritið Hátíðaröskun Rúdolfs. Aðventuhátíð fjölskyld- unnar í Þjórsárveri Aðventuhátíð fyrir íbúa Hraun- gerðis-, Laugardæla-, Gaulverja- bæjar- og Villingaholtssókna verð- ur í Þjórsárveri í dag, laugardag kl. 16. Söngkór Hraungerðispresta- kalls syngur jólalög, stjórnandi er Ingimar Pálsson, hljóðfæraleikari Laufey Einarsdóttir og undirleik- arar eru Ingi Heiðmar Jónsson og Ingimar Pálsson. Kór leikskólans Krakkaborgar syngur undir stjórn Þórdísar Bjarnadóttur söng- og tónmenntakennara, tónlistarnemar frá Tónlistarskóla Árnessýslu ásamt tónlistarkennurunum Ian Wilkinson og Maríu Weiss verða með tónlistarflutning, nemendur Flóaskóla verða með fjöldasöng undir stjórn Ingibjargar Birgis- dóttur. Einnig verður fjöldasöngur hátíðargesta. Aðventuljósin verða tendruð. Umsjón með dagskrá og dagskrárgerð hefur Ingimar Páls- son. Jólalög verða sungin á Sjúkra- húsi Suðurlands sama dag kl. 13.30 og á Ljósheimum kl. 14.15. Morgunblaðið/Ómar VATNAMÆLINGAR Orkustofn- unar bjóða þann 19. desember nk. til tvískiptrar afmælisdagskrár, fyr- ir hádegi verður málstofa um nið- urstöður loftslagsverkefnisins Veð- ur og orka, og eftir hádegi verður 60 ára starfsafmæli Vatnamælinga fagnað, með úrvali fyrirlestra um vatnsauðlindir jarðar, þróun- araðstoð og vatnafarsrannsóknir í víðu samhengi. Að dagskránni koma allmargir íslenskir og erlendir sérfræðingar á sviðum loftslags- og orkumála, vatnafræði og þróunarmála. Fyrir hádegi verður haldin mál- stofa í Orkugarði við Grensásveg kl. 9–12 um loftslags- og jökla- breytingar á 21. öld og áhrif þeirra á nýtingu vatnsorku. Eftir hádegi verður sérstök af- mælisdagskrá á Hótel Loftleiðum kl. 13.15–18. Þar verður fjallað um málefni tengd vatni í víðara sam- hengi. Meðal annars mun prófessor Charles Vörösmarty við Háskólann í New Hampshire flytja erindi um ástand og horfur vatnsauðlinda jarðar og kynnt verður starfsemi vatna- og veðurfræðistofnana á Norðurlöndum, segir í frétta- tilkynningu. Fundirnir eru öllum opnir, þátt- takendur eru beðnir að skrá sig fyrirfram hjá Evu Kaaber, Orku- stofnun eva@os.is. Vatnamælingar 60 ára JÓLAHLAÐBORÐ var í boði í Múlalundi í gær, föstudag. Mjög fjölmennt var og komu gestir víða að. Allir tóku vel til matar og voru ánægðir eftir matinn. Það var ekki laust við að það kæmu fram þreytumerki eftir svona góðan mat. Ánægja allra er vel þess virði fyrir jólahátíðina. En þetta er framkvæmanlegt með stuðn- ingi góðra aðila sem sjá sér fært að styðja við bakið á þeim sem eiga ekki greiðfært í jólahlaðborð víðar um bæinn, að sögn Helga Kristófersonar, framkvæmdastjóra Múlalundar. „Við viljum þakka öllum sem komu til aðstoðar til að þetta væri fram- kvæmanlegt,“ segir Helgi. Fagnaður Óskar Árni Mar, Pétur Bjarnason, Berglind Helgadóttir, Helgi Hróðmarsson og Sigurður Johnnie voru meðal fjölmargra gesta. Vel mætt í jólamatinn í Múlalundi Innréttingar úr Lyfjabúðinni Iðunni Ranglega var farið með í frétt á bls. 8 í Morgunblaðinu 12. desember sl. hvar innréttingum úr Lyfjabúðinni Iðunni var komið fyrir, en rétt er að þeim var komið fyrir í Lyfja- fræðisafninu á Seltjarnarnesi. Lyfjafræðisafnið er sjálfseign- arstofnun í eigu lyfjafræðinga. Beð- ist er velvirðingar á mistökunum. Guðbjörg Sigurðardóttir Niðurlag minningargreinar um Guð- björgu misritaðist í Morgunblaðinu föstudaginn 14. desember. Rétt er niðurlagið þannig: Nú hefur lífsklukka Guðbjargar stanzað. Hún skilur eftir sig góðar minningar hjá mörgum. Ættingjum hennar bið ég allrar blessunar. María Björnsdóttir. LEIÐRÉTT ÍSLENSKIR friðarsinnar standa að blysför niður Laugaveginn á Þorláksmessu. Safnast verður saman á Hlemmi kl. 17.45 og leggur gangan af stað stundvís- lega kl. 18. Friðargangan á Þor- láksmessu er nú orðinn fastur liður í jólaundirbúningi margra. Gangan í ár er sú tuttugasta og áttunda í röðinni. Að venju munu friðarhreyfingarnar selja kyndla á Hlemmi í upphafi göng- unnar. Í lok göngu verður efnt til fundar á Ingólfstorgi þar sem Halla Gunnarsdóttir blaðamaður flytur ávarp en fundarstjóri er Þorvaldur Þorvaldsson trésmið- ur. Söngfólk úr Hamrahlíð- arkórnum og Kór Mennta- skólans við Hamrahlíð syngur í göngunni og við lok fundar. Ráðlegt er fyrir göngufólk að mæta tímanlega því gangan leggur af stað stundvíslega. Friðargöngur verða einnig haldnar á Akureyri og á Ísafirði. Þorláks- messu- ganga FJÓRÐA mæðrahúsið sem byggt er fyrir íslenskt fjármagn í Ník- aragva á þessu ári var formlega tekið í notkun á dögunum. Mæðra- húsið er í borginni Juigalpa í mið- hluta Níkaragva. Kvennasamtök í borginni hafa tekið að sér rekstur hússins í sjálfboðavinnu. Mæðrahúsið í Juigalpa mun þjóna mjög stóru svæði þar sem í borginni er starfandi sjúkrahús. Þetta hús, eins og hin, er heimili þar sem konur úr strjálbýlinu geta búið á síðustu vikum meðgöng- unnar og fengið læknisþjónustu sem annars stæði þeim ekki til boða. Hátt í sextíu mæðrahús eru nú rekin í Níkaragva en þangað eru sendar þær konur sem eru í áhættumeðgöngu og hafa ekki öruggt aðgengi að læknisþjónustu í nágrenni við heimili sitt. Í mæðrahúsunum fá konurnar læknisheimsókn tvisvar á dag og þær geta síðan fætt undir eftirliti fagfólks. Í mæðrahúsinu geta þær verið meðan þær safna kröftum til að snúa heim aftur. Tilgangurinn með mæðrahúsunum er að draga úr mæðra- og ungbarnadauða, sem er mjög algengur í Ník- aragva. Fjórða mæðrahús- ið tekið í notkun Handunnar gjafavörur í miklu úrvali www.jonogoskar.is Laugavegur / Smáralind / Kringlan P IP A R • S ÍA • 7 2 5 0 9 Ný sending komin
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.