Morgunblaðið - 15.12.2007, Page 70
Því má enn heimsækja
Austur-Þýskaland í
Karíbahafinu … 77
»
reykjavíkreykjavík
Fara karlmenn í
verkfall á morgun?
Gera má ráð fyrir því að óvenju
fáir karlmenn verði á ferli eftir há-
degi á morgun, sunnudag. Ástæðan
er sú að svo skemmtilega vill til að
tveir af stærstu leikjum ársins í
ensku knattspyrnunni fara báðir
fram á morgun. Um er að ræða leik
Liverpool og Manchester United á
Anfield Road í Liverpool annars
vegar, og leik Arsenal og Chelsea á
Emirates Stadium í Lundúnum hins
vegar. Leikirnir eru sýndir hvor á
eftir öðrum, og stendur dagskráin
því yfir frá því um klukkan 13 til að
verða kl. 18.
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
NYLON-STÚLKURNAR eru búnar vasast í
poppfræðunum í um fjögur ár núna og reynslu-
sarpurinn því orðinn ansi bústinn. Þær eru nú
farnar að stýra ferli sínum sjálfar í ríkari mæli,
þó að vökul augu Einars Bárðarsonar, umboðs-
manns Íslands, séu enn yfir.
„Já, það er nú bara þannig að Einar er afar
upptekinn maður og svo er allt brjálað að gera á
Concert skrifstofunni,“ útskýrir Steinunn.
„Þannig að maður er farinn að taka ýmis mál að
sér. Ég rak nú Loftkastalann í tvö ár þannig að
maður er svosem ekki ókunnugur þessum mál-
um. Svo er ég að fíla þetta mjög vel líka!“
Mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan Nylon
var fyrst kynnt til sögunnar og Steinunn segir að
það sé engin tilviljun að þær séu enn að.
„Þetta hefði auðvitað getað farið á ýmsa lund
fyrst þegar við hittumst, enda þekktumst við
ekkert. Við ákváðum hins vegar strax að taka
þetta bara sem vinnu; það yrði svo bara bónus ef
það myndaðist einhver vinátta. Ég held að þetta
kæruleysislega viðhorf hafi orðið til þess að við
slöppuðum betur af. Svo urðum við vinkonur og
höfum líkast til aldrei verið nánari, enda búnar
að ganga í gegnum ýmislegt undanfarin ár. Okk-
ur finnst þetta gaman, og það heldur þessu
gangandi.“
Þreifingar
Orðið á götunni er að Nylon sé annaðhvort við
það að hætta eða sé a.m.k. komin á ís um ófyr-
irséðan tíma. Nýútkomin safnplata, Best af Ny-
lon, hefur ekki dregið úr þeim vangaveltum, en
slíkir gripir eru iðulega taldir tákna endalok.
„Já, þessu er nú auðsvarað,“ segir Steinunn
keik. „Þetta eru endalok. Á ákveðnu tímabili.
Við vorum fjórar en nú erum við þrjár. Og við
erum langt í frá hættar, enda ansi margt í spil-
unum.“
Steinunn nefnir að nú standi yfir þreifingar
bæði í Þýskalandi og Japan. „Hann er Þjóðverji,
maðurinn sem semur „Superstar“ sem er annað
tveggja nýrra laga á safnplötunni. Hann hefur
tengsl inn á Þýskalandsmarkað sem er mjög
spennandi markaður; poppvænn og stór. Ekki
spillir að Þjóðverjarnir elska allt sem íslenskt er.
Japanir hafa líka sýnt sterk viðbrögð. Það er
ekkert fast í hendi þó, en þessar þreifingar
ganga mjög vel, og þess vegna leyfi ég mér að
tala um það. Svo förum við til Bretlands á næsta
ári. Maður er kominn með hálfgerða heimþrá,
enda dvaldi maður þarna langdvölum á sínum
tíma.“
Lopapeysur
Stúlkurnar ráku á dögunum umboðsmann
sinn í Bretlandi, Martin O’Shea, en Einar Bárð-
arson er enn sem fyrr umboðsmaður hljómsveit-
arinnar.
„Einar hefur alla tíð passað vel upp á okkur og
hann heldur því ótrauður áfram. Hann hefur
verið að sækja ráðstefnur hér og hvar og reynir
þá að koma bandinu áfram. Okkur hefur þótt
mjög spennandi að vinna í þessu og sjá hvað er
hægt að gera í þessum poppbransa. Það er lítið
við að vera hérna heima við, a.m.k. ef maður hef-
ur metnað fyrir því að ná lengra. Þetta er hálf-
gerð neðanjarðartónlist hér á landi og þykir
ekki par fín. Maður er ekki svalur – eða vinsæll –
á Íslandi nema maður klæðist lopapeysu og spili
á sílafón.“
Þess má geta að lokum að allur ágóði af safn-
plötunni nýju rennur óskiptur til samtakanna
Blátt áfram, sem eru samtök gegn kynferðisof-
beldi. Sjá nánar á blattafram.is.
Sótt í austur og vestur
Nylon potar í Japans- og Þýskalandsmarkað. Fullt af hlutum framundan að sögn
Steinunnar Camillu sem blæs á allt tuldur um sveitin sé að leggja upp laupana
Hin góðkunna hljómsveit South
River Band ætlar að halda tvenna
tónleika í dag. Fyrri tónleikarnir
fara fram í Kolaportinu kl. 14 og
þeir síðari á Grand Rokki kl. 22. Í
fréttatilkynningu frá sveitinni segir
að helsta ástæða þessara tónleika sé
sú hversu góða dóma plata hennar,
Allar stúlkurnar, hefur fengið, en
hún fékk meðal annars fjórar stjörn-
ur hér í Morgunblaðinu. Auk þess að
spila á tónleikunum munu hljóm-
sveitarmeðlimir árita diska í dag.
Suðurfljótið með
tvenna tónleika
Bókin Konur eru aldrei ham-
ingjusamar af því þær eru með svo
litlan heila – og karlar rosa pirr-
andi er komin ofar en bókin Hvern-
ig gerirðu konuna þína hamingju-
sama? eftir Þorgrím Þráinsson á
metsölulista Eymundssonar. Af því
tilefni bjóða höfundar fyrrnefndu
bókarinnar til útgáfuhófs í verslun
Máls og menningar, Laugavegi 18,
frá kl. 18 til 20 í kvöld. Höfund-
arnir, þeir Helgi Jean Claessen og
Hjálmar Jóhannesson, segja að
þetta hafi verið eitt helsta mark-
miðið með útgáfu bókarinnar, og
því ærið tilefni til að fagna.
Komnir yfir Þorgrím