Morgunblaðið - 15.12.2007, Page 72
72 LAUGARDAGUR 15. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Gunnar Valgeirsson skrifar frá Los Angeles
gval@mbl.is
B
jörk Guðmundsdóttir hefur verið á
tónleikaferðalagi mestallt þetta
ár til að kynna nýjustu breiðskífu
sína Volta. Björk hóf tónleika-
ferðina í Laugardalshöll í apríl og
fylgdi henni svo eftir með níu tónleikum hér í
Bandaríkjunum. Um mitt sumar hélt hún 16
tónleika víðsvegar um Evrópu og síðan sjö í
Kanada og Bandaríkjunum. Síðasti hluti tón-
leikaferðarinnar hófst síðan í enda október-
mánaðar með níu tónleikum í Suður- og Mið-
Ameríku en tónleikaárinu lýkur svo með
tvennum tónleikum hér í Los Angeles og Las
Vegas í dag. Á nýju ári eru svo enn fleiri tón-
leikar í Asíu og Eyjaálfu á dagskrá.
Ofanritaður var svo heppinn að fá úrvals-
miða á tónleika Bjarkar á miðvikudagskvöldið
síðasta í Nokia- tónleikahúsinu, sem nýreist er
við hliðina á Staples Center hér í miðbæ Los
Angeles. Tónleikahúsið var vígt hinn 18. októ-
ber síðastliðinn með sex tónleikum Eagles og
Dixie Chicks og síðan hefur hver stórstjarnan
á fætur annarri troðið upp í húsinu. Tónleika-
salurinn sjálfur tekur 7.100 manns í sæti og
skilar hljóði vel til áhorfenda og því var það
með töluverðri eftirvæntingu sem ég hélt á
tónleika Bjarkar, enda söngkonan þekkt fyrir
afar áheyrilega tónlistargjörninga á sviði.
Lög með vöðva
Augljóst er að Björk er heilluð af hinum
rómanska hluta Ameríku. „Við erum öll ást-
fangin af álfunni,“ tjáði hún mér að tónleik-
unum loknum. „Ég hef spilað þar tvisvar áður,
í Brasilíu, Argentínu og Chile en ég var í fyrsta
sinn að spila í Perú, Kólumbíu og Mexíkó.“ Að-
spurð hver munurinn væri á þessari ferð og
Vespertine-ferðinni sem fór að mestu fram í
óperuhúsum segir Björk að nú sé miklu meiri
orka í gangi. „Sinfóníurimman var árið 2001 og
svo fór ég í svona „greatest hits“ tónleikferð
tveimur árum síðar en þessi tónleikaferð núna,
minnir mig kannski hvað helst á Homogenic-
túrinn þar sem orkan var allsráðandi og
stemningin var öll svona „macho“. Vespertine
túrinn 2001 var hins vegar voða fallegur, kven-
legur, fullur af smáatriðum, mikið af óraf-
mögnuðum hljóðfærum. Ég var stundum að
syngja án hljóðnema og það eina rafræna sem
ég notaðist við voru taktar sem við spiluðum úr
litlum hátölurum sem voru staðsettir víðs-
vegar um óperuhúsið. Þetta er eiginlega alveg
öfugt núna þar sem öll lögin hafa vöðva og eru
flutt af 10 brassstelpum.“
Hálfgerð æfing
Lagalisti Bjarkar breytist frá einu kvöldi til
annars, en hún hefur líka langan lagalista að
vinna úr. Ég spurði Björk hvernig lögin af
Volta hefðu fallið inn í efnisskrána á þessari
tónleikaferð. „Efnisskráin byggist eiginlega á
Volta-lögunum. Það kom mér samt á óvart
hversu háð dúetta-lögin á Voltu eru flytjend-
unum. „Dull flame of desire“ virkar eiginlega
ekki án Antony, „I see who you are“ er skrýtið
án Min Xiao Peng og „Hope“ oggu tómlegt án
Toumani Diabate. Þessir flytjendur hafa kom-
ið fram á nokkrum af tónleikunum og við þá
sungið þessi lög en annars höfum við sleppt
þeim. Öll hin lögin fá að fljóta með nema
„Pneumonia“, sem mér fannst of erfitt fyrir
brassstelpurnar. Ég held samt að þær séu að
verða tilbúnar í það núna, svo við ætlum að æfa
það í jólafríinu og þá ætti það að vera tilbúið
fyrir Ástralíu.“
Undirritaður var svo heppinn að fylgjast
með upphafstónleikum Bjarkar hér í Banda-
ríkjunum í apríl á Coachella hátíðinni, þar sem
hún sló í gegn á aðalsviðinu. Hún var spurð um
reynslu sína af hátíðinni sem verður æ vinsælli
með hverju árinu sem líður. „Þetta var nú hálf-
gerð æfing, satt að segja. Laugardalshöllin
kom að vísu á undan, en við erum orðin miklu
smurðari núna. Ég spilaði líka á Coachella árið
2002, þá komin fimm mánuði á leið.“
Tilfinningalega tómt
Tónleikar Bjarkar á fimmtudag hófust með
því að brasssveitin Wonderbrass lék „Brennið
þið vitar“. Björk rúllaði síðan í gegnum hvert
lagið á fætur öðru og blandaði vel saman nýju
lögunum af Volta og lögum af eldri plötum.
Áhorfendur, sem fylltu tónleikahúsið, voru í
góðu formi og klöppuðu tónlistarfólkinu lof í
lófa áður en Björk kom aftur á svið og flutti tvö
aukalög í lokin. Björk er frábær listakona og
tónlistarfólkið sem hún hefur með sér hefur nú
náð góðum tökum á lögunum og er allt „vel
smurt“ eins og listakonan segir sjálf. Að venju
hefur Björk tekið þátt í stórum tónleikahátíð-
um á hljómleikaferðinni á milli þess sem henn-
ar eigin tónleikar fara fram. Ég spurði hana
hvort það væri einhver munur á þessum tón-
leikum: „Stór munur, en ég elska hvort
tveggja. Mér finnst hryllilegt að spila í stórum
íþróttahöllum og leikvöngum fyrir 20 til 50.000
manns. Þetta eru staðir sem ég á að vera að
spila á tölfræðilega séð, en tilfinningalega er
það alveg tómt og sorglegt. Þannig að ég hef í
gegnum tíðina skipst á tónleikahátíðum og
miklu minni tónleikum sem ég skipulegg
sjálf.“
Það hlýtur að vera erfitt að vera á svona
langri hljómleikaferð og að krefjast mikillar
orku að vera leiðsögumaðurinn. Hvað dregur
listakonu eins og þig í slíka ferð?
„Ástin á tónlist“.
Los Angeles 12.12.07, Nokia-tónlist-
arhöllin:
1. Intro – Brennið þið vitar
2. Anchor Song
3. Immature
4. Unravel
5. Unison
6. Jóga
7. Hunter
8. The Pleasure Is All Mine
9. Pagan Poetry
10. Who Is It
11. Cocoon
12. Earth Intruders
13. Army Of Me
14. Innocence
15. Cover Me
16. Wanderlust
17. Hyperballad
18. Pluto
Aukalag:
19. Declare Independence
Lagalisti
Bjarkar
Reuters
Vöðvabúnt Björk á tónleikum í Þjóðminjasafninu í Lima, höfuðborg Perú, þann 13. nóvember síðastliðinn.
Ástin á tónlist
Björk Guðmundsdóttir sló í
gegn á frábærum tónleikum á
miðvikudagskvöld í troðfullri
Nokia-tónlistarhöllinni í mið-
borg Los Angeles
GESTIR í spurningaleiknum Orð
skulu standa í dag eru Benedikt Erl-
ingsson og Ólöf Eldjárn. Á milli þess
sem þau velta fyrir sér m.a. „gesta-
föður“ og „vænkast hagur strympu“
botna þau þennan fyrripart:
Kertasníkir, Giljagaur,
Gáttaþefur, Stúfur.
Um nýliðna helgi var fyrripart-
urinn þessi:
Það er dimmt og kalt í desember
og drungi yfir bænum.
Í þættinum botnaði Úlfar Þor-
móðsson:
Hverfur yndi alls sem er
í einum grænum.
Og svo einfaldlega:
Það er dimmt og kalt í desember
og drungi yfir bænum mínum.
Davíð Þór Jónsson reyndi að lífga
aðeins upp á stemmninguna:
Förum niðrá bryggju ber
og buslum þar í sænum.
Hildur Lilliendahl dró hins vegar
hvergi af sér:
Farðu burt og flýttu þér
forarpyttur þetta er,
harla fátt að hafa hér
í helvíti hjá sænum.
Og:
Já, sökktu þér í séniver,
sértu eins og vera ber
í sjálfsmorðsþönkum vænum.
Af tæknilegum ástæðum er því
miður ekki unnt að birta botna
hlustenda þessa vikuna en þeim er
kærlega þökkuð þátttakan eins og
áður.
Orð skulu standa
„Sökktu þér í séniver“
Hlustendur geta sent sína botna í
netfangið ord@ruv.is eða bréfleið-
is til Orð skulu standa, Rík-
isútvarpinu, Efstaleiti 1, 150
Reykjavík.
Morgunblaðið/Frikki
Hver er þar? Kertasníkir? Giljagaur? Sankti Kláus kannski?
Salurinn
LAUGARDAG 12. JANÚAR 2008 KL. 17
TÍBRÁ: NÝÁRSTÓNLEIKAR
HULDA BJÖRK OG SALONSVEIT
SIGURÐAR INGVA SNORRASONAR.
ÖRFÁ SÆTI LAUS
Miðaverð 2000/1600 kr.
MIÐASALAN ER OPIN VIRKA DAGA
FRÁ KL. 10 – 16 FRAM AÐ JÓLUM
SMELLTU Á NÝJU HEIMASÍÐUNA
WWW.SALURINN.IS OG SKOÐAÐU
FALLEGU GJAFAKORTIN
FRÁBÆR JÓLAGJÖF!
GLEÐILEG JÓL
ÞÖKKUM ÁNÆGJULEGAR
SAMVERUSTUNDIR Á ÁRINU