Morgunblaðið - 15.12.2007, Qupperneq 73
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. DESEMBER 2007 73
Eftir Árna Matthíasson
arnim@mbl.is
Í KVÖLD verða haldnir í Laugar-
dalshöll árlegir jólatónleikar sem
fengið hafa yfirskriftina Frostrósir.
Hugmyndin að slíkri tónleikaröð er
ekki gömul, en hefur gengið svo vel
að uppúr henni hefur kviknað er-
lent stórverkefni sem er með viða-
mestu verkefnum sem Íslendingar
hafa komið að.
Samúel Kristjánsson hefur borið
hitann og þungann af Frostrósum
allt frá upphafi, enda átti hann upp-
haflegu hugmyndina að tónleika-
röðinni á sínum tíma. Hann rekur
söguna svo að hann hafi lengi geng-
ið með þá hugmynd að halda árlega
jólatónleika og hafa þá glæsilega.
Verkinu hrinti hann af stað með
tónleikum fimm íslenskra söng-
kvenna í Hallgrímskirkju undir yf-
irskriftinni Íslensku dívurnar.
Uppselt á mettíma
Ekki er hægt að segja annað en
að verkefnið hafi farið vel af stað
því það seldist upp á tónleikana á
hálftíma og það var fyrir daga
miðasölu á netinu – það mynduðust
langar biðraðir fyrir utan sölustaði.
Samúel segir að aðstandendur tón-
leikanna hafi ekki verið undir svo
mikla eftirspurn búnir og gátu til að
mynda ekki bætt við nema einum
aukatónleikum, sem seldust líka
upp á svipstundu.
„Nafnið Frostrósir kom svo ekki
fyrr en við vorum að ganga frá
fyrsta Frostrósadisknum. Þegar við
vorum að vinna umslagið eina nótt-
ina fannst okkur vanta sterkt sam-
heiti á verkefnið og þá urðu Frost-
rósir til, sem hefur svo nýst okkur
mjög vel sem vörumerki.“
2003 og 2004 hélt Samúel Frost-
rósatónleika í Grafarvogskirkju og
gætti sín á því að vera klár í auka-
tónleika bæði árin. Hann segir að þá
hafi hann líka verið farinn að hugsa
lengra en bara til Íslands, sá fyrir
sér að gera mætti Frostrósir að al-
þjóðlegri uppákomu.
Horft til útlanda
„Við fórum svo með tónleikana í
Laugardalshöllina 2005 og slógum
íslenskt aðsóknarmet,“ segir Sam-
úel, en 2006 urðu tónleikarnir al-
þjóðlegri, en þá voru það alþjóð-
legar stjörnur undir yfirskriftinni
Evrópsku dívurnar sem léku aðal-
hlutverkið. Þeir tónleikar voru
kvikmyndaðir og verður sjónvarpað
nú um jólin, sem Samúel segir eina
viðamestu sjónvarpsútsendingu
sem hér hafi verið unnin, en útsend-
ingin mun ná til tugmilljóna áhorf-
enda. Upptökur frá tónleikunum
koma einnig út á diski hér á landi
fyrir jól og verða gefnar út erlendis
á næsta ári, bæði á hljóð- og mynd-
diski, en það er Warner útgáfuris-
inn sem gefur út.
Segja má að Frostrósaverkefnið
hafi skipst í tvennt, annars vegar
eru tónleikar fyrir erlendan mark-
að sem hljóðritaðir verða hvert
haust, gefnir út um jólin og sjón-
varpað um heim allan, og svo hins-
vegar árlegir íslenskir jólatónleikar
í desember. Í ár fóru söngkonur um
landið og heldu tónleika á átta stöð-
um sem Samúel segir að hafi heppn-
ast afskaplega vel, allstaðar upp-
selt, og víst að framhald verður á
því. „Eftir áramót hefst svo vinna
við að skipuleggja næstu upptöku-
tónleika sem við viljum gjarnan
halda á Akureyri. Til þess að það
gangi eftir þurfa þó margir að
koma að verkinu en við höfum fund-
ið fyrir góðum vilja.“
Eins og risastórt ættarmót
Samúel segir að Frostrósir eigi
enn eftir að styrkjast í sessi á næstu
árum og hann spáir því að eftir tvö
til þrjú ár muni álíka margir horfa á
jólaupptöku frá Íslandi og horfa á
Evróvisjón ár hvert. „Okkur hefur
verið vel tekið allstaðar, allir sem
við höfum boðið útsendingu hafa
tekið hana,“ segir Samúel og bætir
við að það sé mikil vinna framundan
til að nýta þau tækifæri sem gefast,
bæði víðar í Evrópu og svo í Banda-
ríkjunum og Asíu.
Frostrósir er fjölskyldufyrirtæki
sem Samúel rekur með hálfbróður
sínum, en móðir hans er gjaldkeri
og dreifir auk þess með þeim í versl-
anir. Þegar sjálfir tónleikarnir
nálgast ár hvert segir Samúel að
nánast öll fjölskyldan komi að verk-
inu „svo þetta verður eins og risa-
stórt ættarmót“, segir hann og hlær
við.
Eins og getið er verða Frostrósa-
tónleikar í kvöld og síðan tvennir
tónleikar á morgun og áhuginn fyr-
ir þeim fer síst minnkandi, eins og
sést af því að enn var slegið Íslands-
met í aðsókn að sögn Samúels –
11.000 áheyrendur fylgjast með
Frostrósum 2007, en þess má geta
að eitthvað er enn til af miðum á
tónleikana á midi.is.
Ljósmynd/Gunnar Svanberg Skúlason
Jólalegt Söngvararnir sem syngja á jólatónleikum Frostrósa þessi jólin.
Frostrósir um jólin
PARAMOUNT Pictures og MTV
New Media, framleiðendur kvik-
myndarinnar Jackass 2.5, ætla að
frumsýna hana á netinu. Hægt verð-
ur að ná í myndina á vef Blockbuster-
vídeóleigunnar þann 19. desember
nk. og það ókeypis. Frá og með 26.
desember verður hins vegar aðeins
hægt að kaupa hana á DVD-diski. As-
nakjálkar hljóta að fagna því.
Jackass 2.5
beint á netið
Reuters
Asnakjálkar Steve-O, Johnny
Knoxville og Ehren McGhehey.
■ Í dag kl. 14 og 17 uppselt á báða tónleikana
Jólatónleikar. Hnotubrjóturinn eftir Tsjajkovskíj. Nemendur úr
Listdansskóla Íslands dansa og trúðurinn Barbara segir söguna.
Stúlkur úr Skólakór Kársness syngja jólalög í anddyrinu á undan
tónleikunum og Barbara verður á sveimi. Opnað hálftíma fyrir tón-
leikana. Hljómsveitarstjóri: Gary Berkson
■ Vínartónleikar
Hinn árlegi og ómissandi gleðigjafi Sinfóníuhljómsveitarinnar
í ársbyrjun.
Fim. 3. janúar kl. 19.30 nokkur sæti laus,
fös. 4. janúar kl. 19.30 nokkur sæti laus og
lau. 5. janúar kl. 17 örfá sæti laus og kl. 21, laus sæti.
■ Fim. 10. janúar kl. 20.30
Ungir einleikarar
Sigurvegarar í einleikarakeppni Listaháskóla Íslands og Sinfóníu-
hljómsveitarinnar þreyta frumraun sína með hljómsveitinni.
Miðasala
S. 545 2500
www.sinfonia.is
!
!
!
!
! " # $
%&&& '%()& # " * !
! +,!- +./012+3/11
4" &5'' & 67 8 "99