Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.10.1937, Page 14

Skinfaxi - 01.10.1937, Page 14
110 SKINFAX; hezt þjóðarsál þeirra. írar eru sundurlyndir að eðlis- fari og er frelsi þeirra því hætta búin, ef fleiri en ein tunga er töluð í landinu. Fyrir oss fslendinga, sem erum að noklcru afkom- endur hinna fornu íra, er þjóðfrelsisbarátta írlendinga og viðleitni þeirra til að reisa við veg móðurmálsins, verð allrar athygli og virðingar. I Sviss eru töluð, svo sem kunnugt er, fjögur tuugu- mál. Auk þess eru þar mjög margar mállýzkur. Eink- um gætir þessa í þeim hluta landsins, sem þýzka er ritmál í. Hefir þar að heita má hver horg sina mállýzku. í Sviss er menning á háu stigi og hafa bókmenntir verið þar löngum með miklum blóma. En sá er gall- inn á, að Svisslendingar eiga erfitt með að balda utan að bókmenntamönnum sínum. Þeir af þeim, er rit- uð liafa á frönsku, svo sem Rousseau og Mme. de Stael, eru taldir til franskra bókmennta. Þeir, sem ritað liafa á þýzku, svo sem Jeremias Gotthelf, Gottfried Keller og Conrad F. Meyer, eru taldir til þýzkra bókmennta. Þjóðverjar ganga svo langt, að þeir kalla háskólana í Basel, Bern og Ziirich þýzka, vegna þess, að þýzka er töluð í þeim. Vér skiljum þessar aðstæður, ef vér hugs- um oss, að íslenzkir rithöfundar sitji allir á bekk með Gunnari Gunnarssyni. Að sjálfsögðu sámar Svisslendingum þetta, og telja þeir, að úr þessu verði naumast bætt með öðru móti en því, að þeir eignist sérstakt mál. Svisslendingar hrósa sér mjög af þjóðskipulagi sínu og þjóðrækni, að það að margvísleg mál eru töluð í landinu, skuli ekki valda sundrung og ósamlyndi. En nú á sjðustu árum eru þeir orðnir þeirrar skoðunar, að málaglundroðinn veiki þjóðernislega aðstöðu þeirra, og eru þeir ekki jafn sammála og áður um ágæti þess, að tala og rita sömu mál og nágrannamir. Einkum hefir þessa gætt eftir 1933, er Hitler tók við völdum í Þýzkalandi, og

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.