Skinfaxi - 01.10.1937, Blaðsíða 61
SKINFAXI
157
Vér komum hér saman, með helgust heit
þeim hugsjónum braut að ryðja,
sem gagna oss bezt í lífsins leit
og lífsdyggðir mestar styðja. —
— Gerum vort félag að gróðrarreit,
að grænviðum landsins niðja.
Aðalsteinn Sigmundsson:
Séra Jakob Ó. Lárusson.
í þann mund, sem þetta Skinfaxahefti var að verða full-
sett, barst sú fregn, að séra Jakob Óskar Lárusson væri lát-
inn. Með lionum er genginn til moldar einhver allra drengi-
legasti, áhugamesti og
ógætasti brautryðjandi
ungmennafélaganna. Og
fegurri lofsyrði en þau á
ég ekki til að gjalda nein-
um manni.
Séra Jakob fæddist 7.
júlí 1887. Hann hóf ung-
ur nám i Menntaskólan-
um í Reykjavík. Á skóla-
árum hans var Ung-
mennafélag Reykjavikur
stofnað. Gerðist hann
þegar einn fremsti áhrifa-
maður þess og naut ó-
skipts og óvenjulegs
trausts og aðdáunar, fé-
laga sinna. Að loknu guð-
fræðinámi 1910 hélt séra
Jakob vestur um haf til
að vera prestur meðal
landa vestra um stund,
og sér til frama um leið.
1913 kom hann heim aftur, og varði þá aleigu sinni til að
kaupa og flytja heim fyrstu nothæfu bifreiðina, er hingað
kom til lands. Var hann þvi upphafsmaður þeirra stórkost-
tegu framfara, sem sprottið hafa hér af bifreiðaferðum. Gerð-
Jakob Ó. Lárusson.