Skinfaxi - 01.10.1937, Blaðsíða 65
SKINFAXI
161
orðið fyrir sterkum vakningar- og menningaráhrifum. Ung-
um piltum er hollt að dvelja með mönnum eins og Sigurði
Greipssyni.
Haukadalskólinn starfar frá 1. nóvember til 15. febrúar
ár hvert, eða þann tíma, sem minnst er um atvinnu og efna-
iitlir menn geta helzt notað til náms. Kennslugreinar, auk
íþróttaskólinn í Haukadal.
íþrótta, eru íþróttasaga, heilsufræði, íslenzka, danska, stærð-
fræði o. fl. Jafnan starfar þar einn kennari, auk skólastjórans.
Kennslugjald er 00 kr. á vetri.
Skinfaxi þakkar Sigurði Greipssyni og frú Sigrúnu Bjarna-
dóttur, konu hans, það mikla innlegg, sem íþróttaskólinn i
Haukadal er í stárfsemi ungmennafélaganna.
„Mál og menning.“
Það eru tíðindi, sem verl er að ungmennafélagar gefi gaum,
að nokkrir áhugasamir rithöfundar og menntamenn hafa
stofnað bókinenntafélag með ofanskráðu heiti, í því skyni,
að sjá félagsmönnum fyrir góðum bókum fyrir lágt verð.
Árgjald félagsmanna er 10 kr. Fyrir það fá þeir útgáfubæk-
ur félagsins, en þær verða eftir því fleiri, sem félagatala er
hærri. Fyrsta árið er gerl ráð fyrir 1000 félagsmönnum, og
er því marki þegar náð. En ineð þeirri tölu gefur fél. út tvær
stórar bækur. Næsta ár er gert ráð fyrir 2000 félagsmönn-
um og fjórum bókum, en þriðja árið og áfram 3000 félagsm.
11