Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.10.1937, Blaðsíða 75

Skinfaxi - 01.10.1937, Blaðsíða 75
SKINFAXI 171 -er svo langt fyrir neðan allar hellur, að ætlazt verður til þess, að jafnmerkir menn og þýðandinn og útgefandinn (Þor- steinn M. Jónsson), láti ekki sjá slika forsmán frá sér oftar. Hér er engin íslenzka, heldur hálfhrá eða blóðhrá norska. Stúlka „tekur sig saman“, fer „út úr rúminu“ og „út á eld- húsið“, svo að „pappsinn" geti fengið kaffi „á rúmið“! Það er engin afsökun, sem þýðandinn talar um í formála, að persónurnar þurfi að tala slettótt mál, þvi að málleysurnar eru engu síður þar, sem höf. segir sjálfur frá, en í samtölum. Skinfaxa hefir borizl nýprentað lag: Lofið þreyttum að sofa, eftir Sigvalda S. Kaldalóns, við ljóð eftir Davíð Stefánsson. Þetta er eitt hinna töfrandi fögru, sérkennilegu sönglaga hins vinsæla tónskálds, en því miður eru mörg af þeim enn óprentuð. Reykjanesskólinn við ísafjarðardjúp hefir sent út fjölritaða skýrslu um störf sín fyrstu starfsárin, ásamt starfsskrá skól- ans og tillögum skólastjórans, Aðalsteins Eirikssonar, um fyr- ix-komulag heimavistarskóla almennt. Á Reykjanesi er unnið stórmerkilegt menningarstarf, og mun Skinfaxi skýra nánar frá því síðar. Vertu viðbúinn! 15 drengjasögur, er Aðalsteinn Sigmunds- son hefir sarnið og þýtt, kemur á hókamarkaðinn um þetta leyti. Brynleifur Tobíasson: BINDINDISHREYFINGIN Á ÍS- LANDI. Söguágrip með myndum. Útgefandi Stórstúka íslands af I.O.G.T. Akureyri 1936. 192 hls. Sögurit þetta gaf Stór- stúkan út á 50 ára afmæli sinu, og er vel til fallið, að minn- ast afmælisins með yfirliti yfir sögu bindindismálsins' á landi hér. — Bókin hefst á stuttu ágripi af sögu bindindisbarátt- unnar i heiminum, en segir síðan 100 ára sögu þeirrar bar- áttu á íslandi, allt fá bindindi Fjölnismanna til atburða síð- ustu ára. Gætir þar mest sögu Góðtemplarareglunnar, sem vonlegt er. Yfirleitt er bókin fjölega samin, en of rík þó af nöfnum og upplalningum lil að vera skemmtileg. Einn slæmur ljóður er á bók þessari, sá, er má ekki sjást á sagnfræðiriti: Hún er nokkuð hlutdi-æg, hvort sem það stafar af ekki óalgengum templai'a-breiskleika, eða hirðuleysi hins merka höfundar að afla sér fullrar vitneskju og réttrar. Hinnar stórmiklu bindindisstarfsemi ungmennafélaganna í 30 ár er að mjög litlu getið, og það litla, sem um fél. er sagt, virðist valið af fullkomnu handahófi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.