Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.10.1937, Blaðsíða 73

Skinfaxi - 01.10.1937, Blaðsíða 73
SKINFAXI 169 heild, U.M.F.Í., sem allra mest af hinum dreifðu félögum víðsvegar úti um byggðir landsins. Með því vinnst tvennt: Sambandið verður sterkara til sameiginlegra átaka og færara um að standa í stórræðum. Og hin einstöku félög verða sjálf sterkari við það, að standa með öðrum og að aðrir standi með þeim — og við þann stuðning, sein vissulega stendur í valdi sambandsins að veita þeim. Héraðsskólarnir og Umf. Það leikur ekki á tveiinur tunguin, að héraðsskólarnir, sem risið hafa í sveitum landsins, eru að stórmiklu leyti verk ungmennafélaganna. Félögin hafa vakið og magnað þá áhuga- öldu, sem skólarnir risu af. Þau hafa eflt skilning fólksins á nauðsyn þeirra. Þau hafa haft beina verklega forgöngu um slofnun flestra þeirra, og þau hafa lagt þeim til vinnu og fé, sem kostað hefir fátæka æsku miklar fórnir. Ungmennafélögin hafa lika reist glæstar vonir á héraðs- skólunum. Ekki aðeins þær vonir um menningu og mann- bætur, sem reistar eru á öllum skólum, heldur einnig og ekki síður vonir um það, að héraðsskólarnir yrðu miðstöðv- ar og vígi fyrir starfsemi og liugsjónir Uinf. — að þar yrði æskan löðuð að félagsskapnum og búin undir starfsemi í hon- um. Ef til vill lá dálítil eigingirni í þessum vonum. En það er þá þessi sérkennilega, ósíngjarna eigingirni ungmennafé- laganna — sú, sem finnur fullnægingu og nautn i þvi, að vinna „íslandi allt“. Eigi er þess að dyljast, að Umf. hafa orðið fyrir nokkrum brigðum þessara vona. Og þar sem hér eru viðkvæmar og heitar vonir, eru brigði þeirra sár. Skylt er þó að geta þess með fyllsta þakklæti, að héaðs- skólinn að Núpi í Dýrafirði hefir jafnan staðið í nánu lif- andi sambandi við ungmennafélagsskapinn, gegn um Umf. skólans, og reynzt það vígi, sem vonir stóðu til. Með Umf. og skólunum að Laugum og í Reykholti hefir og jafnan ver- ið mikil s'amvinna. í Laugaskóla hefir starfað sambandsumf., þótt eigi sé það nú. — Rétt er að geta þess, að Uinf. i hér- aðsskólunum gjalda engan skalt til U.M.F.f., þó að þau séu í sambandinu. Fyrsta árið, sem Laugarvatnsskóli starfaði, stofnaði séra Jakob ó. Lárusson skólastjóri þar Umf. og kom sjálfur sem fulltrúi þess á héraðsþing, er það gekk í sambandið. Stofnun félags þessa og innganga þess í sambandið vakti mikinn og djúpan fögnuð meðal úngmennafélaga. En þvi sárari urðu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.