Skinfaxi - 01.10.1937, Blaðsíða 72
168
SKINFAXI
föll af henni, Verður þvi að ætlast til þess, að allir ungmenna-
félagar, sem vettlingi geta valdið, gerist áskrifendur að rit-
inu, og fái auk þess aðra til að kaupa það.
Efni ritsins verður í stuttu máli þetta: Stuttar minningar-
greinar frá nokkrum helztu forvígismönnum í félagsskapnum,
á ýmsum tímum, með myndmn höfunda. Brautryðjendastarf-
ið, frásögn um fyrstu félögin. Sambandsmál. Úr skýrslum
U.M.F.Í. Söguágrip einslakra sambandsfélaga. „Alefling ein-
staklingsins", löng ritgerð, sem skiptist i þessa kafla: Almenn
félagsstarfsemi. Ferðalög og heimsóknir. Móðurmálið. Lestrar-
félög og blaðastarfsemi. Ræðuflutningur. Ileimilisiðnaðarmál.
Sjálfstæðis- og þjóðernismál. Bindindismál. Skógrækt.. Leik-
fimi og aðrar íþróttir. — Loks er löng ritgerð: Ungmenna-
félögin og þjóðfélagsþróunin. Skiptist hún i þrjú timabil:
1907—’'17, 1918—’29 og 1930—’37. Sýnir höf. og sannar, að
Umf. hafa haft víðtæk og mikil áhrif á þróun þjóðfélagsins
undanfarin 30 ár.
Ritið er skemmtilegt aflestrar, vel og rösklega s'amið og
af miklum lærdómi. í því er geysilegur fróðleikur saman
kominn, ekki aðeins um sögu og störf ungmennafélaganna,
heldur og um almenna sögu þjóðarinnar, það sem af er þess-
ari öld.
Starfsmenn.
Siðan haustið 1929 hefir Aðalsteinn Sigmundsson, núverandi
sambandsstjóri, verið starfsmaður sambands U.M.F.Í., unnið
skrifstofustörf þess, ferðazt meðal félaganna, annazt ritstjórn
og afgreiðslu Skinfaxa og haft umsjón Þrastaskógar á hendi.
Undanfarið hefir hann enga greiðslu tekið fyrir þessi störf
sín, og hafa þau þó verið allmikil þetta síðasta ár, í sam-
bandi við vakninguna i félagsskapnum.
Nú hefir sambandsstjórn ráðið Rannveigu Þorsteinsdóttur
sambandsgjaldkera til að vinna skrifstofustörf sambandsins i
vetur, en þau verða allmikil, m. a. vegna útgáfu minningar-
ritsins. Meðal annars mun hún sjá um afgreiðslu Skinfaxa.
Ber því Umf. að snúa sér til Rannveigar um sem flest af
því, sem þau þurfa að fá afgreitt frá sambandsstjórn. —
A. S. hefir þó ritstjórn Skinfaxa á hendi áfram.
Þá hefir Sambandsstjórn ráðið Lárus J. Rist, hinn alkunna
íþróttakennara og ungmennafélaga, til að ferðast um Norður-
land, frá Eyjafirði og allt vestur á Strandir, til að hitta Umf.
á þvi svæði að máli og vinna útbreiðslustarf fyrir sambandið.
— Vill stjórnin leggja áherzlu á, að sameina í eina samtaka-