Skinfaxi - 01.10.1937, Blaðsíða 53
SKINFAXI
149
mikið og fagurt verkefni að vinna. Þá bæru ungmenna-
félagar með sóma og fullum rétti nafnið vormenn!
Vormenn, sem fyrst og fremst ræktuðu og hlúðu að
bverjum góðum gróðri í sínum eigin ungu sálum, og
væru á verði að veita lið hverju góðu málefni og djarfri
og fagurri hugsjón, sem kemur fram á sjónarsviðið.
Þá væri þeir vormenn íslands, „sem ])úa sólskært sum-
ar undir sérhvem hug og gróðurblett“.
Gunnar Ólafsson:
Þjálfun íþróttamanna.
(Við samning greinarinnar hefir höf. stuðzt við norska bók:
„Læger&d for idrettsmenn“ eftir C. V. Lange).
Þessar linur ættu að geta verið þeim, sem ekki hafa
sérþekkingu á þessum efnum, nokkur fræðileg undir-
staða, sem byggja mætti á og styðjast við, þegar um
íþróttaiðkanir er að ræða.
Sem hetur fer er íþróttalifið hér ekki komið út á
þær brautir, — ef til vill mætti segja, að það sé ekki
orðið svo „móðins“, -— að liægt sé að tala um íþrótta-
stjörnur, né að keppni í iþróttum sé komin út í aðrar
eins öfgar og hjá stóru íþróttaþjóðunum.
Þó liefi ég lieyrt þær raddir hjá sumum leiðandi
mönnum íþróttamálanna, og mér er eklti grunlaust,
að þær hafi gerzt allháværar eftir Olympiuför íþrótta-
mannamia í fyrra, að ein mikilvæg orsök hinna lélegu
íslenzku íþróltameta sé sú, að iþróttamenn okkar taki
þátt í svo mörgum íþróttagreinum, að þeir séu að
gutla í öllu og nái svo hvergi æskilegum árangri;
þarna vantar eina sekúndu og þama nokkra sm.
Þetta gefur okkur bendingu um, að það er fullkom-