Skinfaxi - 01.10.1937, Blaðsíða 69
bKlNT AXl
165
Jakob Kristinsson skólastjóri, Eiöum.
Svafa Þórhallsdóttir kennari, Reykjavik.
Vigfús Guðmundsson ritstjóri, Borgarnesi.
Þórður Kristleifsson kennari, Laugarvatni.
17. júní.
Eins og kunnugt er, samþykkti sambandsþing 1936, að 17.
júni skyldi framvegis vera útbreiðslu- og baráttudagur ung-
mennafélaga. Vafalaust hefir orðið minna úr starfsemi þann
dag en skyldi, um allt land, vegna alþingiskosningaiina, er
stóðu fyrir dyrum. Vegna undirbúnings þeirra var örðugt um
fundahöld og athygli almennings bundin, Útvarpsráð taldi eigi
rétt að hafa útvarpskvöld ungmennafélaga rétt fyrir kosning-
ar, enda þótt Umf. styðji engan stjórnmálaflokk. Var það því
eigi 17., heldur 27. júní. Aðalsteinn Sigmundsson, Daníel Ágúst-
ínusson, Eiríkur J. Eiríksson og Þórður J. Pálsson fluttu þar
ræður, Rannveig Þorsteinsdóttir las upp, en ættjarðarlög voru
sungin.
Sambandsstjórn réðst i það stórræði, að gefa út sérstakt rit,
„17. júni“, til að kynna Umf. og núverandi stefnu þeirra. Rit
þetta er 42 lesmálssíður i stóru broti, myndum skreytt og
vandað., Ritstjórn þess önnuðust Aðalsteinn Sigmundsson, Jó-
hannes úr Kötlum og Skúli Þorsteinsson. Fremst er mynd af
Jóni Sigurðssyni forseta og sýnishorn af rithönd hans. Þá
er stórsnjallt kvæði um forsetann, „Hinn hvíti ás“, cftir Jó-
hannes úr Kötlum. Haraldur Guðmundsson menntamálaráð-
herra skrifar ávarp, „Bjartsýni“. Þá er ágæt ritgerð, „Sam-
bandsmálið“, eftir Benedikt Sveinsson fyrv. alþingisforseta, en
hann er nú einn eftir af hinum glæsilegu sjálfstæðishetjum
vorum frá átakatímabilinu við Dani, og meðal þeirra manna,
sem bezt skrifa islenzkt mál. Þá eru í ritinu mjög athygli-
verðar greinar eftir Ilalldór Kiljan Laxness (Ungmennafélög-
in og frelsisbaráttan), Sigurð Thorlacius (Skólinn og þjóðin),
Eirik J. Eiríksson (Umheimurinn Og vér) og Lárus J. Rist
(Héraðssundlaug austan fjalls). Þar er saga eftir Halldór Stef-
ánsson, mynd af nýju listaverki eftir Sigurjón Ólafsson og
greinar eftir alla ritstjórana. Ríkarður Jónsson teiknaði kápu-
mynd á ritið. Það var gefið út í 3000 eintökum og selt í
Reykjavik og víðar 17. júní, en auk þess hefir það verið
sent sambandsfélögunum til útsölu. Verðið er kr. 1.00. — Enn
er allmikið óselt af ritinu, og má panta það hjá afgreiðslu
Skinfaxa. Verðið ætti þá að senda með pöntun, t. d. i óbrúk-
uðuin 10 eða 20 aura frímerkjum.