Skinfaxi - 01.10.1937, Blaðsíða 66
162
SKIXI'AXI
og sex bókum. í haust gefur fél. út fyrstu bækur sínar, en
þær eru „Vatnajökull“ eftir dr. Niels Nielsen og 3. bindi af
„Rauðum pennum“, en það ársrit hefir þegar unnið sér vin-
sældir. Fyrsta bók félagsins næsta ár verður mjög fræg skál'd-
saga, Móðirin, eftir Gorki. — í stjórn félagsins eru: Krist-
inn Andrésson, magister, Halldór Kiljan Laxness og Halldór
Stefánsson rithöfundur, Sigurður 'I’horlacius skólastjóri og
Eiríkur Magnússon kennari. — Félagsmenn í „Mál og menn-
ing“ fá 15% afslátt á útgáfubókum Héimskringlu, en hún hefir
gefið út margar úrvalsbækur siðustu ár, m. a. skáldrit eftir
Halldór Kiljan Laxness, Halldór Stefánsson, Jóhannes úr
Kötlum og Sigurjón Friðjónsson, og nú í haust Stephan G.
Stephansson.
Utvarp og málvöndun.
Frétzt hefir af Norðurlandi austanverðu, að þar sé tekið
að gæta linmæla eða latmæla á sunnlenzka vísu, fyrir áhrif
frá Ríkisútvarpinu. Eigi slcal fregn þessi seld dýrar en lceypt
er. En hitt skal fullyrt, að Útvarpið gætir eigi jafnan slíkrar
málvöndunar, sem svo víðfeðmri og áhrifaríkri menningar-
stofnun ber. Kynning eins og þessi: „Trió Útvarpsins leikur
Sortna þú ský og Intermessó úr leikritinu Piltur og stúlka,
sem að Emil Thoroddsen hefir kompónerað,“ iæðir inn hjá
hlustendum grun um að taka eigi bókstaflega eftirfarandi setn-
ingu úr fyrirlestri um slettur og málleysur: „Móðurmálskennsl-
an á að taka mönnum vara fyrir því, að sletta ekki.“!
Skíði og skíðaferðir.
Ungmennafélögin hafa jafnan látið skíðaíþróttina mjög til
sin taka, og víða um land hafa þau beinlínis verið hraut-
ryðjendur þess, að farið væri að iðka þá fögru, hollu og
skemmtilegu vetraríþrótt. Svo var það liér í Reykjavík, að
U.M.F.R. kom fyrst verulegu skriði á skíðaferðir. Það útveg-
aði t. d. félagsmönnum skíði frá Noregi, á fyrsta starfsvetri
sinum 1906—’07. Og starf þess við að koma hér upp skíða-
braut er alkunnugt. — U.M.F. Árvakur á ísafirði hratt af stað
skíðavakningu þeirri, sem þar hefir orðið síðustu árin. Mætti
nefna fleiri lík dæmi.
Nú vill Skinfaxi vekja athygli á starfsemi tveggja einstakra
félagsmanna, til framgangs og eflingar skíðaíþróttinni, með
því að greiða fyrir þeim, sem iðka vilja hana, að fá góðan og
heppilegan útbúnað.
Trésmiðjan Fjölnir, sem Sigfús Jónsson frá Búrfelli rekur,
hóf i fyrra skíðaframleiðslu í allstórum stil. Gerir hún skiði