Skinfaxi - 01.10.1937, Blaðsíða 36
132
SKINKAXI
Eiríkur J. Eiríksson:
Ræða í Þrastaskógi.
[Ungmennasamband Kjalarnesþings og Héraðssambandið
Skarphéðinn efndu til almenns æskulýðsfundar í Þrastaskógi
25. júlí í sumar, til þess að kynna stefnu og störf Umf. Vara-
formaður talaði þar af hálfu sambandsstjórnar U.M.F.Í., og
fer ræða lians hér á eftir.]
Tvö héraðssambönd hafa boðað hér til útbreiðslu-
fundar. Enda þótt stjóm U. M. F. f. hafi eltki átt frum-
kvæði að þessari samkomu tekur hún því fegins hendi
að gera hér nokkra grein fyrir stefnu ungmennafélaga.
Að vísu er hér ekki hægt um vik vegna þess hve
fjölbreytnin er mikil i starfi félagsskapar okkar.
En nú vill svo vel til, að mér er gefið sjónarmið að
þessu sinni, og get eg gert ykkur nokkra grein fyrir
stefnu ungmennafélaga í ljósi þess. Á eg við yfirskrift
þessarar samkomu: menning, lýðræði, friður. En liún
6r svo þýðingarmikil, að hún getur talizt prófsteinn
á Umf.; afsakað eða ásakað þá, er boðið hafa ykkur
hingað.
Menning, lýðræði, friður. í mjög stuttu máli mun
eg lýsa stefnu ungmennafélaga, að svo miklu leyti, sem
hún snertir þessi mál. En það skal þegar tekið fram,
að þetta verður engin skýrsla um afrek Umf. á liðn-
um árum. Við ungmennafélagar erum ekki komnir á
raupsaldurinn.
Hvað er menning?
Okkur vefst tunga um tönn. Vafasamt er og, hver
fengur væri í svarinu. Hér er um svo víðtækt fyrir-
brigði að ræða. Menning er fyrir hendi, þá er maður-
inn er á frumstæðasta stigi, og allt til þess er hann
má sín mest.
Oftast er menningarviðleitni okkar því likust, er