Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.10.1937, Page 41

Skinfaxi - 01.10.1937, Page 41
SKINFAXI 137 er snýst gegn því sjálfu, ef það skortir menntun eða efnahagslegt sjálfstæði til þess að fara með hann. Það verður að taka fram og leggja áherzlu á, að Umf. eiga sér ekkert fastmótað kerfi, er þau geti vísað til sem slcipulags framtíðarinnar. A félagsskap okkar hefir aldrei verið neinn klíkuhlær. Innan félag- anna ræður pólitískur litur ekki vali trúnaðarmanna. Sá andi hefir rílct meðal ungmennafélaga, að í þeim hafa menn farið úr hversdagsspjörum hins póli- tíska rifrildis og unnið þar saman að umbótamálum. Hafa félögin átt þannig á að skipa góðum drengjum úr öllum stjórnmálaflokkum. Hin margvíslega menningarstarfsemi ungmennafé- laganna miðar að því, að lýðræði okkar megi verða meira en nafnið tómt. Á hin efnahagslegu skilyrði og viðhorf ungmennafélaga til þeirra hefir þegar verið minnzt. Viðleitni félaganna í skólamálum og mennta- málujn yfirleitt er kunnari en svo, að gera þurfi hér grein fyrir henni. Fundastörf félaganna og verklegar framkvæmdir styrkja framtak æskunnar, kenna henni að vinna saman, temja sér félagsslega hugsun, skipa sér saman um rétt sinn og skyldur. Félögin hafa alltaf látið sig likamsmennt miklu skipta. En íþróttir fága framkomu æskumanna, lcenna þeim að bera höfuðið hátt og beygja sig ekki fyrir erfiðleikúnum. Bind- indisstefna Umf. stuðlar og að skapgerðarmótun manna. Önnur grein stefnuskrár U. M. F. í. kemur hér eink- um til athugunar, og verður lesið úr benni, á hvern hátt félagsskapur okkar vill efla lýðræðið í landinu: „Að hjálpa félagsmönnum og öðrum æskulýð til aukins menningarþroska, með fræðslu og líkamsþjálf- un, og til að rökhugsa þjóðnytjamál og vinna að fram- gangi þeirra.“ Þannig er menning undirstaða lýðræðisins, en ein afleiðing þess er, að friður rikir í heiminum. Er vitað,

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.