Skinfaxi - 01.10.1937, Qupperneq 43
SKINFAXI
139
fræði. En liún er einn meginþáttur í almennri mennt-
un og því verkefni ungmennafélaga.
Sennilega hefir Ólafur helgi verið hugsjónamaður,
en svo fóru leikar, að konungsvaldið i Noregi styrktist
mjög við kristniboð konungs. Hér á íslandi komst
kristni á án vopnaviðureignar, en sennilega hefir Þor-
geir goði séð fram á viðskiptastrið, ef Islendingar létu
ekki að vilja konungs. Ivarl mikli lierjaði á heiðnar
þjóðir og vann sjálfum sér lönd en trúnni áhangendur.
Um innræti löngu liðinna manna er erfitt að dæma.
En erfiðara eigum við með að átta okkur á, að Franco
brytji niður landa sína á Spáni af einskærum guðs-
ótta.
I þriðja lagi eru friðarmálin mál, er snerta mjög
þjóðernisstefnu U. M. F. I. Þvi fer fjarri, að þau hljóti
að leiða til nokkurs afsláttar á þjóðernisstefnu Umf.
Stefna Umf. er ekki nazismi. llann mun heldur ekki
eiga neinn jarðveg hér á landi. Þjóðernisstefnan þýzka
er kenning liins hreina kynstofns. En við erum, góðu
heilli, hlandaðir keltnesku hlóði og rekja fróðir menn
til þess fQírnbÓkmennlír okkar. En þær eru okkar
höfuðhrós og minna sífellt á, hver blessun hlýzt af að
fjarskyldar þjóðir blanda geði og blóði saman.
Við ungmennafélagar munum fylgja fast fram hinni
gömlu stefnuskrá okkar í þjóðernismálum, verndun
móðurmálsins, eflingu alls þess, sem innlent er og á
sér fegurð, helgi eða Iiagnýli, á borð við erlend menn-
ingarverðmæti. Skoðun okkar er, að friður verði þá
fyrst tryggður, er liver þjóð, hversu smá sem hún er,
fær að vaxa í samræmi við séreðli sitt.
Við höfum óbeit á dönskum klæðaburði, dönskulegu
tali, látbragði og smekk. Ekki af því, að við fyrirlít-
um þetta í sjálfu sér, heldur af því, að ekkerl af þessu
á heima á íslandi.
Við höfum þá samúð með Dönum, að við vonum að
þeim takist að varðveita lýðræði sitt og þjóðerni á