Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.10.1937, Side 62

Skinfaxi - 01.10.1937, Side 62
158 SKINFAXI ist hann nú prestur að Holti undir Eyjafjöllum og kvæntist SigriSi Kjartansdóttur prófasts i Holti, ágætri konu. VarS þeim margra barna auSiS. Vafalaust var séra Jakob meSal áhrifa- ríkustu og vinsælustu presta sinnar tíSar. — Þegar Laugar- vatnsskólinn tók til starfa haustiS 1928, varS séra Jakob skóla- stjóri þar, og þótti öllum vinum skólans vel ráSiS. Eigi stýrSi hann þó skólanum nema einn vetur, því aS um þetta leyti tók hann aS kenna alvarlegs sjúkdóms, er svipti hann starfs- getu skömmu síSar og þjáSi hann til æfiloka. Hann dó 17. september síSastl. Eg kynntist séra Jakobi eigi fyrr en síSustu árin, sem hann naut heilsu, og var hann þá af æskuskeiSi. Mér mun þó jafnan verSa hann rikur í huga, einmitt sem ungmennafélagi, brennandi í andanum og fullur hugsjóna, svo áberandi var sá þáttur veru hans enn. MinnisstæSastur er mér hann þó á héraSsþingi ungmennafélaga aS Þjórsártúni í janúar 1929, en þar var hann fulltrúi ungmennafélags, sem hann stofnaSi í Laugarvatnsskóla. Enginn var yngri i anda, framsæknari né djarfhugaSri en hann. Hann var persónugerSur sá sterki, hreini og elskulegi drengskapur, sem veriS hefir aSalsmerki ung- mennafélaganna. Guðmundur Jónsson frá Mosdal: Aðalsteinn Jónsson. ASalsteinn Jónsson, verzlunarstjóri, lézt hér á ísafirSi 2. ágústmán. síSastl. Hann var fæddur aS Iíróki á Skagaströnd 16. maímánaSar áriS 1902. Var þannig aSeins vel 35 ára, er hann lézt. Foreldrar hans voru Jón Þórólfsson, skipasmiSur og síSar kaupmaSur, hér í bæ, dáinn fyrir nokkrum árum, — og kona hans GuSbjörg Gisladóttir, sem enn býr hér, ásamt yngstu börnum sínum. Fluttist ASalsteinn með foreldrum sínum hingaS til bæjarins á barnsaldri og ólst hér upp. Sem unglingur byrjaSi ASalsteinn aS vinna aS verzlunarstörfum: Fyrst nokkur ár viS heildverzlun Nathans og Olsens (sem þá var rekin hér), sigldi svo til þess aS stunda nám viS verzl- unarskóla i Kaupmannahöfn árin 1923—24. Vann aS því loknu viS verzlun 0. Ellingsens i Reykjavík frá 1925—28, en kom þá hingaS aftur og tók við verzlun föSur síns, og stjórnaði henni, meSan heilsa leyfSi. ASalsteinn var einhver hinn allra

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.