Skinfaxi

Ukioqatigiit

Skinfaxi - 01.10.1937, Qupperneq 63

Skinfaxi - 01.10.1937, Qupperneq 63
SKINFAXI 159 nýtasti verzlunarmaður, sem með umhyggjusemi og lipurð í framgöngu, reglusemi og grandvarleik í viðskiptum vann sér óskipt traust og virðingu allra þeirra, sem við hann skiptu. En það, sem ennþá fremur er að minnast Aðalsteins fyrir, eru hinar fráhæru félagsdyggðir hans, og þá einkum sem ungmennafélaga. Hann var einn af stofnfélögum Ungmenna- fél. Árvakurs (árið 1917) og í fyrstu stjórn þess. Eftir að hann kom heim aftur, var hann og lengst af í stjórn félags- ins og formaður þess árin 1930, ’31 og ’32. Oftlega hafði hann og ýms önnur ungmennafélagsstörf með höndum, bæði i nefnd- um og þess utan, þar á meðal fyrir héraðssamband Umf. Vest- fjarða. Var og 3 ár vararitari U.M.F.Í., og átti góðan þátt í að stuðla að ýmsum starfsmálum sambandsstjórnar. Hann var jafnan reiðubiiinn og fremstur. i flokki að gang- ast fyrir, styðja og fylgja áleiðis þeim verkefnum, sem ung- mennafélagar, hvort heldur i Árvakri eða öðrum ungmenna- félögum, höfðu fyrir stafni. Allra mesta áhugamál hans var þó efling og útbreiðsla skiðaíþróttarinnar, og honum er al- mest að þakka þær miklu framfarir, sem orðið hafa i þeirri íþrótt hér vestanlands á síðari timum. Gerði hann sér mikið far um útvegun og útbreiðslu beztu skiða og alls skiðaútbún- aðar; var og sjálfur skiðamaður mjög góður. Hann var einnig fremsti hvatamaður að því, að útvega hingað erlendan skíða- kennara. Og til leiðbeiningar og fyrirgreiðslu allskonar við skiðafar lagði hann fram ótalið bæði fé og fyrirhöfn. Það var harmsefni mikið, að missa Aðalstein á svo ungum aldri. En liinsvegar er minningin, sem geymist um hans góðu mannkosti, raunabót, — og þakkarefni við þann, sem bæði gefur og tekur. Betri félaga, traustari fylgismann góðra málefna og trygg- ari vin getur vart en hann var. Og um flest var hann fyrir- mynd ungra manna og góðra íslendinga. Héðan og handan. Haukadalsskólinn 10 ára. Haustið 1927 stofnaði Signrður Greipsson iþróttaskóla á ættaróðali sinu, Haukadal í Biskupstungum, hinu forna höf- uðbóli og menntasetri. Reisti hann skólahús á hverasvæð- inu við Geysi, gerði bráðabirgðasundlaug, og fékk þegar svo marga nemendur, sem húsrúm leyfði. Sigurður Greipsson var þjóðkunnur maður fyrir félagsstarf-
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Skinfaxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.