Skinfaxi - 01.11.1948, Síða 1
Skinfaxi II. 1948.
(L-irílmr C-iríkiion :
NOREGSFERÐ 194».
Sr. Eiríkur J. Eiriksson, formaður U. M. F. í., var meðal
fulltrúa frá islenzkum ungmennafélögum á Krogerupmótinu i
Danmörku, en frá því móti er sagt á öðrum stað i þessu hefti.
Eftir dvöl sína i Danmörku fór sr. Eiríkur til Noregs í boði
Snorranefndarinnar norsku. Var hann á Snorraliátíðinni í
Björgvin, er Snorralíkneskið var afhjúpað þar 23. júní síðastl.
Eftir hátíðina fékk hann gott tœkifæri til að kynnast starf-
semi norsku ungmennafélaganna. Þáttur lians hér á eftir lýsir
ýmsum atriðum í stefnu og starfi félaganna.
Boðið iil Harðangurs.
íslenzkum ungmennafélögum liafði verið boðið að
senda fulltrúa á Snorrahátíðina i Björgvin og liélt ég
áleiðis þangað morguninn eftir að Krogerupmótinu
lauk.
Norskir ungmennafélagar áttu upptökin að Snorra-
minnismerkinu og unnu að þeirri hugmynd nær einir
lengi framan af. Ritari norsku Snorranefndar öll ár-
in, sem hún hefir starfað, er kunnur ungmennafélagi,
Anders Skásheim bankastjóri.
Að Snorrahátíðinni'í Björgvin unnu og ýmsir ung-
mennafélagar. Athyglisvert er það, að tveir hinna
fimm opinberu gesta að heiman á hátíðinni voru
gamlir forvígismenn ungmennafélagshreyfingarinnar
íslenzku, þeir Bjarni Ásgeirsson, ráðherra og Jónas
Jónsson, alþingismaður.
í Björgvin liitti ég varaformann Ungmennafélags
Noregs. Bar hann mér kveðju formannsins og bauð
5