Skinfaxi - 01.11.1948, Qupperneq 14
SKINFAXI
78
mennafélag Noregs mun hafa boðið gestum Snorra-
hátíðarinnar i Björgvin til þessa móts. En hátíðar-
nefndin taldi ekki hægt að sinna þvi boði. En þetta
mót liafði nokkra þýðingu sögulega séð i sambandi
við Snorrastyttuna. í Harðangri, á móti sem þessu
árið 1920, fór fram fyrsta opinbera söfnunin til Snorra-
minnismerkis í Reykliolti. Höfðu komið inn 500
krónur.
Eftir ræðuliöldin hófust þjóðdansasýningar. Lauk
siðan mótinu.
Kueðjur.
Ég hélt síðan heim á leið til Bergen um kvöldið.
Tíminn var orðinn lítill til stefnu. Snemma næsta
morgunn skyldi haldið til Osló. Þótt oi'ðið væi'i áliðið,
fór ég að heimsækja vin minn frá Noregsfei'ð minni
í fyrra, R. Haugsöen, dómprófast. Nú hélt hann orðið
kyrru fyrii', en fyrir 40 árum liafði hann verið einn
aðalræðumaðurinn á miklu ungmennafélagsmóti í
Harðangri. Gamli maðurinn hafði frá mörgu að segja
frá þeim árum og spurði mig einnig margs um við-
burði þessara daga. Er ég kvaddi liann, var komið
talsvert fram á nótt.
Kvöldið áður en ég fór lieirn til íslands var ég
gestur formanns í Ungmennafélagi Noregs. Hann er
ritstjóri blaðsins Noi’sk Tidend, sem kemur út í Osló,
og einnig blaðamaður við Verdens Gang. Sem fvrr
segir, en hann formaður Blaðamannafélags Noregs.
Faðir formannsins, V. Sletten, var einnig blaðamað-
ur. Var Iiann um skeið formaður Ungmennafélags
Noregs. Móðir hans var einnig nxjög starfandi inn-
an félaganna. Hún er dóttir Christofers Brun, og er
enn á lífi. Við Islendingar gefum einatt gaum að ætt-
erni manna. Ég minnist hins fagra erindis síra Magn-
úsar Helgasonar um Christofer Brun, er hann kall-
aði „Skilað kveðju“. Síra Magnús segir þar, m. a.: