Skinfaxi - 01.11.1948, Page 27
SKINFAXl
91
og er leiðtogi æskumanna, sem fara i hópferðir til
nágrannalandanna á sumrin. Hann er gjörvulegur
að vallarsýn, ágætur ræðumaður, eldheitur áhuga-
maðilr fyrir hugsjónum ungmennafélaganna i anda
Grundtvigs og lýðháskólanna dönsku, snillingur að
skipuleggja og stjórna rnótum og 'ferðalögum. Nor-
ræn samvinna er honum einlægt áhugamál, og hefur
hann unnið ötullega að henni á vettvangi ungmenna-
félaganna.
Krogerup.
Krogerup er gamall herragarður, og er aðalbygg-
ingin um 200 ára gömul. Liggur staðurinn skammt
frá Eyrarsundi, um 34 km norður frá Kaupmanna-
höfn. Er umhverfi allt yndislega fallegt. Á vetrum
er þar nú lýðháskóli, sem er sjálfseignarstofnun.
Stjórn hans er skipuð fulltrúum frá öllum helztu
æskulýðssamtökum landsins, þingflokkum, kaupfé-
lögunum, vinnuveitendafélögunum og verkalýðsfé-
lögunum.
Skólastjóri er Hal Koch, sem jafnframt er pró-
fessor í kirkjusögu við Kaupmannahafnarháskóla.
Þjóðfélagsfræðin er aðalnámsgrein skólans og mest
áherzla á það lögð, að efla félagslund og þegnlegan
hugsunarliátt nemendanna. Á sumrin rekur hvert
námskeiðið annað. Hefst eitt þegar öðru lýkur. Áður
en þetta mót var haldið, höfðu verið þar námskeið
vinstri manna, kaupfélagsmanna, sósialdemókrata,
húsmæðranámskeið, námskeið farfugla hófst þar
sama daginn og þessu norræna æskulýðsmóti lauk.
Á stríðsárunum sátu Þjóðverjar i skólanum og
skildu við hann illa til reika. En þess sáust lítil
mcrki nú. Svo vel hafði öllu verið kippt i lag. Aðal-
húsið er tvær hæðir og kjallari, framúrskarandi
glæsilegt á allan hátt. Langur svefnskáli úr timhri var
svo byggður við annan enda þess fyrir nokkrum árum.