Skinfaxi - 01.11.1948, Blaðsíða 28
92
SKINFAXI
Erincli og umræðuefni mótsins.
Mótið hófst sunnudagskvöldið 13. júní, en lauk
sunnudagsmorguninn 20. júní. Fyrir hádegi voru jafn-
an flutt tvö erindi, annað kl. 8, en hitt kl. 10. Umræður
voru tíðast á eftir og mikið sungið undan og eftir
ræðuhöldunum. Yar notuð söngbók dönsku ung-
menna'félaganna, en þar eru textar eftir höfunda frá
öllum Norðurlöndunum. Þar er t. d. íslenzki þjóð-
söngurinn í danskri þýðingu. Þannig leið tíminn til
hádegis.
Iíelztu erindi mótsins voru þessi:
Vegard Sletten ritstjóri, Osló, formaður Noregs Ung-
domslag: Verkefni ungmennafélaganna í dag.
Kristian Bakke skólastjóri, Voss: Menningarforusta
ungmennafélaganna.
Arvo Inkilá magister, Helsingfors, formaður Ung-
mennasambands Finnlands: Verkefni finnsku ung-
mennafélaganna.
Hans Ebbesen prestur, Döstrup á Suður-Jótlandi:
Suður-Slésvíkurmálið.
Bjarni M. Gíslason rithöf'undur, By á Jótlandi- ís-
land og Norðurlönd.
Sr. Eirílcur J. Eirílcsson sambandsstjóri U.M.F.I.:
Unmennafélag íslands — störf þess og áhrif í 40 ár.
Eirilc Jonsson bóndi, Varning í Sviþjóð, formaður
Jarðræktarsambands æskulýðsfélaga í Svíþjóð (J.U.
F.): Æskan og framfaramál sveitanna.
Hal Koch prófessor, Kaupmannahöfn: Verkefni
æskulýðsins og ríkisvaldið.
Sverrir Fon bókavörður, Þórshöfn í Færeyjum:
Færeysku ungmennafélögin — saga þeirra og störf.
Asger Due prestur, Kaupmannahöfn: Eiga ung-
mennafélögin að vera hlutlaus í trúmálum og stjórn-
málum.
Nielsen, landbúnaðarráðunautur, Hróarskeldu:
Danskur landbúnaður í dag.