Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.11.1948, Side 30

Skinfaxi - 01.11.1948, Side 30
94 SKINFAXI sem við töldum hafa mest gildi fyrir ungmennafélaga almennt. Einna mest þótti okkur koma til finnsku ung- mennafélaganna og þeirrar umsvifamiklu menning- arstarfsemi, er þau halda uppi. Það, sem einkenndi framsöguerindin og elcki síður umræðurnar, sem spunnust út frá þeim, var einstakt hispursleysi, ást á lýðræði, mannréttindum og hvers- konar frelsi, en jafnframt andúð á einræðisstefnun- um, hvort sem þær birtust í gervi nazista eða komm- únista. Voru fulltrúarnir ófeimnir að ræða þau mál, og varð þess ekki vart, að kommúnistar eða aðrir einræðissinnar ættu sér þar formælendur, enda er mikið gengishrun í röðum þeirra á Norðurlöndum, svo sem kunnugt er. Dagur Islands. Einn dagur á mótinu, 16. júní, var að mestu helg- aður Islandi. Um morguninn flutti Bjarni M. Gíslason rithö'fundur erindi sitt. Var það bæði stórfróðlegt og skörulega flutt. Var þvi veitt hin mesta athygli. Hann rakti sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar mjog ýtarlega og þær breytingar, sem á íslandi urðu til framfara við hvern áfanga, sem vannst í sjálfstæðisbaráttunni. Hann ræddi um handritamálið og þá sjálfsögðu kröfu, sem íslendingar eiga á hendur Dönum fyrir þau 15000 handrit, sem þeir eiga í söfnum þeirra og á hendur Svíum, en þar eru geymd um 600 handrit. Var liann hvergi myrkur í máli. Hann lýsti heimáfræðslunni á íslandi, tryggingarlöggjöfinni nýju og minntist að lokum á hið myndarlega framlag Islendinga til harna- hjálpar sameinuðu þjóðanna. Allt var erindið mjög hugnæmt og lýsti einlægri samúð með málstað ís- lenzku þjóðarinnar. Bjarni M. Gíslason he'fur ferðazt mikið um Dan- mörku undanfarin ár og flutt um 800 fyrirlestra á veg- um hinna ýmsu félagasamtaka, einkum ungmennafé-

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.