Skinfaxi - 01.11.1948, Page 44
108
SKINFAXI
gróðursett, til skjóls og prýði. Þar verður útisundlaug
hlaðin upp. Skammt frá vellinum eru afmörkuð svæði
fyrir tjöld mótsgesta, veitingatjöld og bifreiðastæði.
Gestir þurfa að gæta þess að hafa með sér tjöid og
viðleguútbúnað, því gistingu verður ekki hægt að fá
í skólanum fyrir aðra en starfsmenn mótsins og boðs-
gesti þess. Matsölu er hins vegar ætlaður þar staður.
Ungmennafélag Islands skorar á ungmennafélög
um land allt að undirbúa sem bezt þátttöku sina í
íþróttakeppni mótsins. Takmarkið er, að hvert ein-
asta héraðssamband eigi þar keppendur í einhverjum
greinum. Þótt sum þeirra eigi ekki úrvalsmönnum á
að skipa, mega þau ekki undir neinum kringumstæð-
um láta það á sig fá. Það er hin almenna þátttaka,
sem gefur mótinu mest gildi. Öll samböndin eiga
áreiðanlega hlutgenga menn til venjulegrar íþrótta-
keppni. Nú reynir á félagslund þeirra og samheldni.
Ekkert héraðssambandið má skerast þarna úr leik.
Þá ættu ungmennafélögin og héraðssambönd þeirra
að skipuleggja sem víðtækastar hópferðir ungmenna-
félaga á mótið. Það þarf að verða hvorttveggja í senn,
vegleg íþróttahátíð og vakninga- og kynningamót ís-
Ienzkrar æsku úr öllum byggðum landsins. Undir-
búningur Eiðamótsins er málefni allra ungmenna-
félaga í landinu, sem mikið veltur á að vel takist að
leysa.
Nánari orðsending um mótið verður send Um'f. þeg-
ar nær dregur og frekari undirbúningi er lolcið af
hálfu þeirra, sem forustuna hafa.
D. Á.