Skinfaxi - 01.11.1948, Síða 49
SKINFAXI
113
dreymdi stóra drauma. Menn lágu ekki á liði sínu.
Áliugi og fórnfýsi knúði menn til starfa. Árið 1907 er
tímamótaár í sögu Finnlands, þvi að þá eignumst vér
þing í einni deild og róttækar endurbætur eru 'fram-
kvæmdar á atkvæðisréttinum.
Þá tóku Finnlands-Svíar að koma saman 6. nóv-
ember, á dánardegi Gustafs Adolfs II.
Þessi ár voru þýöingarmikil fyrir félagsskap vorn.
Ný félög voru stofnuð og nýir lýðháskólar. Sem dæmi
má geta þess, að aðeins i sænska Österbotten voru
sjö ný ungmennafélög stofnuð og jafnframt var tekið
að mynda héraðssambönd. Öll félögin í Österbotten
mynduðu með sér samband, sem stofnaði einn liinna
þriggja lýðháskóla er það ár voru stofnaðir i Öster-
botten. Slík sambönd eru nú á hinum byggðasvæð-
um Svía i Finnlandi.
1 ungmennafélögunum þroskaðist sjálfstæðisliug-
sjónin, sem varð að veruleilca i lok heimsstyrj aldar-
innar fyrri. Til þess að gera mönnum ljóst við hver
kjör félögin bjuggu til þess tíma skal hér tekið dæmi
frá árinu 1903. Litið ungmennafélag í Österbotten ætl-
aði að liafa skemmtikvöld 26. desember 1903. Til
þess að fá leyfi til þess þur’fti að leita til héraðsstjórans,
sem þá var rússneskur herforingi. I svarinu sem fé-
lagið fékk segir:
„— — — föllumst vér á að veita umbeðið leyfi, þó
með skilyrðum, að þeir söngvar, upplestrar, leik-
þættir, sögur eða samtöl sem kunna að vera á skemmti-
skránni sé samþykkt af ritskoðuninni, að ávarp að
upphafi sé niðurfellt og lestur úr félagsblaðinu, ekk-
ert viðkomandi stjórnmálum sé rætt og að ekki sé
brotið í bága við reglugerð um almennar samkomur
frá 2. júli 1900.“
Samkoman byrjaði með Vasamarsinum, þrjú kvæði
úr „Fank Stáls ságner“ eftir Runeberg voru lesin
upp, leikritið Uppgjafabermaðurinn frá 1808—1809
8