Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.11.1948, Side 53

Skinfaxi - 01.11.1948, Side 53
SKINFAXI 117 2) að fá framvegis tök á skemmtanalífi æskulýðs- ins til sveita. 3) að laga þetta skemmtanalíf staðháttum þar og að síðustu 4) að fá einkarétt til skemmtana unglinganna. Á okkar dögum, þegar svo margar raddir lokka æskulýðinn og vandamál er orðið að gera lífið í sveitunum skenmitilegt — þar er ein ástæðan til flótta fólksins til bæjanna — ber að leggja rælct við skemmt- analífið. En það skal viðurkennt, að það er allerfitt vandamál að samræma liugsjónabaráttu starfsins skemmtanalífinu. Oft verður þar að sigla milli skers og báru. Það skal og viðurkennt 'fyrir hönd finnsk- sænslcu ungmennafélaganna að í sumum félaganna hafa skemmtanirnar fengið of mikið rúm og á kostn- að þýðingarmeiri viðfangsefna. En fái ekld ungling- arnir fullnægt skemmtanaþörf sinni innan félaganna, er hætt við að þeir leiti út fyrir félögin. Eins og nú standa sakir geta ungmennafélögin boðið félögum sínum heilhrigðar skemmtanir innan hófsamlegra tak- marka. Og unglingarnir velja þær 'fram yfir lausung- arsamkomur með borgasniði. Ef menn virða fyrir sér þessi mál ætti það að verða mönnum ljóst að ungmennafélögin liafa hér miklu hlutverki að gegna. Viðfangsefni okkar mótast af sér finnsk-sænskum aðstæðum með þjóðernismálin og utanaðkomandi vanda, en ekki er það hlutverkið sízt að leitast við að skapa æskulýðnum til sveita þau skilyrði, að hann ekki yfirgefi hina sænsku mold. Hvernig er þá háttað skemmtanalífinu innan finnslc- sænsku ungmennafélaganna? Dans er ekki bannað- ur en mjög sjaldan er stofnað til skemmtana, þar sem ekkert fer fram nema dans. Fundir og samkomur enda mjög oft með dansi í klulckustund. Að öðru leyli er oft á skemmtiskránni: leikþáttur, ræða eða

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.