Skinfaxi - 01.11.1948, Page 58
122
SKINFAXI
B
lillit til þreytu þess, sem er að ljúka sprettinum. Viðtakandi er
að vísu farinn að hlaupa, þegar boðskiptin fara fram, en hann
hefur ávallt augun á keflinu, þar til hann hefur það í greip
sér.
„Séð boðskipti" eru talin öruggari aðferð en hin óséðu,
vegna þess, að viðtakandi og flytjandi liafa báðir augun á
keflinu, meðan boðskiptin fara fram. Þar eð viðtakandinn
verður við „séð boðskipti" að vinda bolinn, snúa liöfðinu til
liægri og horfa til balca, verður hann þá mjög hindraður til
hlaups, svo að liann nær ekki eins fljótt hámarkshraða og
hægt er að ná við „óséð boðskipti".
„Óséð boðskipti" eru nú nær einvörðungu notuð þar, sem
boðflytjandi lileypur 300 m. boðsprett og skemmri. Það hefur
þegar verið minnzt á, að boðskiptin eru hin afdrifariku augna-