Skinfaxi - 01.11.1948, Side 59
SICINFAXI
123
hlik boðhlaupsins, og það, a'ð viðtakandi horfir ekki á keflið,
skapar áhættu, en um leið veldur það minni eða engum töfum.
Beiting arms og handar:
Við hoðskipti má beita armi og liendi á marga vegu, en hér
verður lýst fimm aðferðum (2. mynd). í eftirfarandi lýsingum
er miðað við, að viðtakandi sé viðbúinn til boðspretts nærri
viðbragðslínu (1. mynd), boðfyljandinn rétti keflið úr vinstri
liendi og viðtakandi taki við þvi ineð hægri og sé kominn
á sprett, og færi keflið i vinstri hönd svo fljótt sem unnt er.
a) (A á 2. mynd) Viðtakandi teygir hægri arm aftur neðan við
axlarliæð. Olnbogi og lófi snúa upp og þumalfingur veit að
liolnum (til vinstri). Boðflytjandinn teygir fram vinstri arm
ti) þess að framkvæma boðskipti, en afhendingu keflisins leit-
ast liann við að framkvæma, þegar hann sveiflar vinstra armi
niður við framsveiflu hægri fótar til stígs.
Örin á myndinni sýnir færslu keflisins.
b) (B á 2. mynd) Viðtakandi teygir hægra arm aftur, nokkuð
til liægri, svo að höndin er aðeins ofar mjaðmahæð. Olnbog-
inn veit niður, en lófinn upp. Þumalfingur veit aftur.
Boðskiptin framkvæmd á sama hátt og lýst er í a.
c) (C á 2. mynd) Viðtakandi teygir hægra arm aftur, svo að
liöndin er í hæð við mjaðmir. Sumum finnst betra að halda
lienni neðar. Lófinn veit aftur, þumalfingur niður og inn að
bolnum, en olnbogi upp.
Boðflytjandi leitast við að rétta keflið í hönd viðtakanda,
iiegar hann sveiflar vinstri armi upp.
Örin sýnir færslu keflisins í greipina.
d) (D á 2. mynd) Viðtakandi lætur þumalfingur hægri liand-
ar hvíla á mjöðm, en liina fingurna teygða út frá bolnum. Oln-
boginn snýr aftur.
Boðflytjandi réttir keflið í greip viðtakanda á svipaðan
Iiátt og lýst er í c.
Örin sýnir færslu keflisins í greipina.
e) (E á 2. mynd) Viðtakandi lætur góma fingranna hvíla
á mjöðm. (Sumir mæla með því, að fremstu fingurkögglarnir
hvíli á mjöðm). Þumalfingur snýr fram, olboginn út, lófinn
er ihvolfur.
Boðflytjandi færir keflið í greip viðtakanda með niður-
sveiflu vinstri arms, eins og lýst er i a og b.
Örin sýnir færslu keflisins i greipina.