Skinfaxi - 01.11.1948, Síða 78
142
SKINFAXI
Sambandsráðsfundur IJ.Hi.F.Í.
1948.
Sambandsráðsfundur Ungmennafélags íslands 1948 var hald-
inn í BreiSfirðingabúð 2. og 3. október. Fundinn sátu, auk
stjórnar U.M.F.Í. eftirtaldir héraðssljórar og forvígismenn
héraðssambandanna:
Haukur Jörundsson, Hvanneyri, formaður U.M.S. Borgarfjarð-
ar.
Bjarni Andrésson, Stykkishólmi, formaður U.M.S. Snæfellinga.
Friðjón Þórðarson, Breiðabólstað, frá Ungmennasambandi
Dalamanna.
Guðmundur Jónasson, Ási, formaður Ungmennasambands
Austur-Húnvetninga.
Guðjón Ingimundarson, Sauðárkróki, formaður Ungmenna-
sambands Skagafjarðar.
Steinþór Magnússon, Hjartarstöðum, formaður Ungmenna-
og iþróttasambands Austurlands.
Sigurður Greipsson, Haukadal, formaður Héraðssambandsins
Skarphéðins.
Ólafur Þórðarson, Æsvstöðum, frá Ungmennasambandi Kjal-
arnesþings.
Gestir:
Bóas Einilsson, framkvæmdastjóri Ungmenna- og íþrótta-
sambands Austurlands.
Stefán Júliusson, ritstjóri Skinfaxa.
Þórarinn Þórarinsson, skólastjóri, Eiðum.
Þorsteinn Einarsson, íþróttafulltrúi.
Helztu mál fundarins voru undirbúningur að næsta lands-
móti Ungmennafélags íslands að Eiðum vorið 1949 og ýmis
starfsmál U.M.F.Í.
Þessar ályktanir voru gerðar:
1. Landsmótið.
a) að sjöunda landsmót U.M.F.Í. skuli lialdið um fyrstu helgi
júlímánaðar.
b) að til mótsins verði boðið einum fulltrúa frá Iiverju ung-
mennasambandi á öllum Norðurlöndunum.
c) að keppt skuli í þeim íþróttagreinum, sem drög voru
gerð að á síðasta sambandsráðsfundi, að viðbættu því að
4x100 m boðhlaup verði tekið upp.
d) að landsmótið veiti hverjum íþróttakeppanda tvær mál-
tíðir á dag ókeypis, þá tvo daga, sem mótið fer fram. Þá