Skinfaxi - 01.11.1948, Qupperneq 80
144
SKINFAXI
Frá félagsstarfinu.
Hér verða að vanda rakin nokkur atriði úr skýrslum félag-
anna árið 1947. Hinni almennu starfsemi þeirra verður þó
sleppt, heldur getið þess, sem Hklegt er, að sé öðrum félögum
til fróðleiks og nokkurra leiðbeininga.
Skil á skýrslum eru ekki eins góð og skyldi lijá öllum sam-
böndunum. Þau eru bezt eða 100% hjá Ungmennasambandi
Norður-Þingeyinga og Ivjalarnesþings, Héraðssamböndum Suð-
ur-Þingeyinga og Strandasýslu, og litlu lakari hjá Ungmenna-
sambandi Skagafjarðar og Eyjafjarðar. Þeirri sjálfsögðu skyldu
verður að framfylgja, að öll samböndin liafi sent skýrslur
sínar fyrir 1. mai til U. M. F. í. eins og lög slanda til.
Umf. Drengur í Kjós vinnur að byggingu iþróttavallar og
skrúðgarðs við liið myndarlega félagsheimili sitt — Félags-
garð í Kjós.
Umf. Grundfirðinga, Grundarfirði rekur bókasafn með 300
hindum.
Umf. Snæfell, Stykkishólmi er fjölmennasta Umf. á Snœ-
fellsnesi og hefur unnið að ýmsum gagnlegum framfaramálum,
cins og myndarlegum íþróttavelli fyrir kauptúnið.
Umf. Afturelding, Reykhólasveit, rekur bókasafn með 700
bindum.
Umf. Bifröst í Önundarfirði minntist 30 ára afmælis síns í
ársbyrjun. Félagið girti 9000 ferm. skógræktarreit og gróður-
setti þar 1200 birkiplöntur. Þá voru gróðursettar 100 birki-
plöntur í kirkjugarðinum i Holti.
Umf. Geislinn, Hólmavík, rekur gufubaðstofu.
Umf. Fram, Seiluhreppi, vinnur að skógrækt og gefur ur
félagsblað.
Umf. Hegri, Ripurhreppi, vinnur að skógrækt og gróðursetti
1000 trjáplöntur.
Umf. Hjalti, Hjaltadal, á 3 ha. land, sem skógrækt er hafin i.
Umf. Þorsteinn Svörfuður, Svarfaðardal, lék Hreppstjórann
að Krogcrup í júní 1948. Daníel Ágústínusson flutti erindi á
fundinum um Krogerupmótið og dönsku ungmennafélögin.
Á fundinum störfuðu þrjár nefndir: Mótsnefnd, laganefnd og
allsherjarnefnd. Þær undirbjuggu samþykktir fundarins. Um-
ræður urðu miklar um hin einstöku mál og rikti eindreginn
áhugi fyrir auknum áhrifum ungmennafélaganna, og var fund-
urinn á allan hátt hinn ánægjulegasti.
D. Á.