Skinfaxi - 01.11.1948, Side 82
146
SKINFAXI
Umf. Hrunamanna, Hrunamannahreppi, lélí Orustuna á Há-
logalandi. Lauk að mestu við sundlaug félagsins að Flúðum og
vann að vegagerð að henni.
Umf. Gnúpverja, Gnúpverjahreppi, lék Hreppstjórann á
Ilraunhamri. Gefur úr fjölritað blað, „Gnúpverjann“.
Umf. Biskupstungna, Biskupstungum, rekur bókasafn með
660 bindum.
Umf. Hvöt, Grímsnesi, gefur út myndarlegt fjölritað blað,
„Ljósvakann“, og kom blaðið 4 sinnum út. Bókasafn félags-
ins telur 1050 bindi. Félagið minntist veglega 40 ára afmælis
síns i árslokin.
Umf. Ölfusinga, Ölfusi, á 3 ha. skógrækarland og gróður-
setti þar 700 trjáplöntur. Starfrækir yngri deild.
Hin almennu störf Umf. sem eru sameiginleg í flestum
skýrslum þeirra, eru: málfundir, íþróttastarfsemi, bæði með
námskeiðum, kennslu á annan hátt og þátttöku i íþróttamót-
um, margvísleg skemmtistarfsemi, þar undir söngiðkun og
leikritaflutningur, ferðalög, ýmis konar bjálparstarfsemi, fjár-
öflun til ýmissa framkvæmda, einkum íþróttamannvirkja, eins
og sundlauga, íþróttavalla, gufubaostofa og svo félagsheimila.
Starfsemi yngri deilda fer i vöxt og er það vel farið. Ættu
sem flest Umf. að taka hana upp, þvi hún mun reynast félög-
unum öruggasta leiðin til að öðlast stöðugt nýja starfskrafta.
Ef hægt er að fá flest börnin með í yngri deild, sem tiltölu-
lega auðvelt er, þar sem starfið er einu sinni hafið, þá ganga
þau af sjálfu sér í eldri deild félagsins við fermingaraldurinn.
Þannig er tryggt, að öll æskan á félagssvæðinu komist í snert-
ingu við Umf. og starfi þar, svo lengi sem hennar nýtur við
heima.
D. Á.
A t h. Ungmennafélagar og aðrir kaupendur Skinfaxa geri
skil við afgreiðslu ritsins, Edduhúsinu, Reykjavík, eða í póst-
hólf 406, Rvk.