Skinfaxi - 01.11.1948, Síða 88
152
SKINFAXI
virkjum og leysa önnur aSkallandi málefni, sem æskuna i hér-
aðinu varðar.
Ungmennafélag Keflavíkur er gamalt ungmennafélag, stofn-
að árið 1929. Félagar þess eru nú 285. Stjórn skipa: Bjarni
Friðriksson formaður, Edda Gunnarsdóttir ritari og Arinbjörn
Ólafsson gjaldkeri. Umf. Keflavikur liefur um margt verið
starfsamt félag. Byggði og rekur samkomu- og kvikmyndahús
í Keflavík, hefur látið byggingu sundlaugarinnar i Keflavík
mjög til sín taka, enda unnið að sundmennt og öðrum íþróttum
á félagssvæði sinu. Þá hefur félagið séð um almenna fyrir-
lestra og margvíslega menningarstarfsemi i Keflavik.
Skinfaxi býður þessi nýju félög velkomin til samstarfs í
Ungmennafélagi íslands.
Leikritasafn U.M.F.Í.
Rannveig Þorsteinsdóttir stud. jur. Iíirkjustræti 10, Reykja-
vík, sér um leikritasafn U.M.F.Í. eins og áður. Umf., sem óska
eftir smærri leikritum, ættu að senda henni óskir sínar. Hún
hefur skrifað öllum Umf. í haust og sent þeim skrá yfir þau
leikrit, sem á boðstólum eru, ásamt nauðsynlegustu upplýs-
ingum um þau.
Æska Noregs vill ferðast til íslands.
Noregs Ungdomslag vinnur að þvi, að teknar verði upp
beinar skipaferðir milli Bergen, Þórshafnar í Færeyjum og
Reykjavikur, eins og var fyrir striðið. Iiefur Noregs Ung-
domslag skrifað U.M.F.Í. um þetta mál og sent því afrit af
bréfi til samgöngumálaráðuneytisins norska.
Er þar bent á mikinn áhuga norskrar æsku fyrir því að eiga
kost á viðunandi skipaferðum til íslands og Færeyja og hvert
gildi slíkt hefði fyrir menningarsamvinnu þessara landa. Nú sé
þctta lokuð leið norskri æsku, þvi flugferðir séu svo dýrar,
að óhugsandi sé, að þær komi almenningi að nokkru gagni í
þessu sambandi. Þá er og bent á, að óeðlilega fáir stúdentar
frá íslandi og Færeyjum sæki norska liáskóla. Hins vegar
séu margir Færeyingar í sænskum háskólum og eigi samgöng-
urnar áreiðanlega mikinn þátt i að svo er, þar sem að mörgu
leyti væri eðlilegra að þeir leituðu til Noregs.
Að öllu þessu athuguðu og fleiri rökum, sem talin eru fram,
skorar Noregs Ungdomslag á samgöngumálaráðuneytið að beita
sér fyrir þvi, að skipafélög taki upp áætlunarferðir til íslands