Skinfaxi - 01.11.1948, Blaðsíða 89
SKINFAXI
153
um Færeyjar og styðji það fjárhagslega, ef skipafélögin sjá sér
það ekki fært að öðrum kosti.
Þetta er merkilegt mál, sem einnig gæti liaft verulega þýðingu
fyrir islenzkan æskulýð, sem vafalaust væri þess fýsandi að
fara kynnisferðir til Noregs, ef hentugar 'og ódýrar ferðir
væru til.
íþróttastarfsemi Ungmennasambands Skagafjarðar.
Ungmennasamband Skagafjarðar rak fjölþætta íþróttastarf-
semi árið 1948. Héraðsmót þess fór fram 4. jiilí og er þess
getið hér á öðrum stað. Sundmót hélt samhandið i Varmalilið
25. júli. Knattspyrnumót var háð á Sauðárkróki, dagana 16.
og 17. júní, og tóku þátt í því þessi þrjú félög: Umf. Tinda-
stól, Sauðárkróki, sem vann mótið, með 4 stigum, Umf. Hjalti,
Hjaltadal, sem hlaut 2 stig og Umf. Haganeshrepps, sem lilaut
ekkert stig.
Knattspyrnu- og liandknattleiksflokkur frá Umf. Tindastóll
fór til Siglufjarðar 10. júli og kepptu þar við Knattspyrnufé-
lag Siglufjarðar í knattspyrnu og handknattleik kvenna. Leik-
ar fóru þannig, að K.S. vann knattspyrnuna mcð 4 mörkum
gegn 3, en stúlkurnar úr Umf. Tindastól unnu liandknattlcik-
inn með 6 mörkum gegn 0.
Siglfirðingar komu svo i lieimsókn til Umf. Tindastóls 8.
ágúst og var þá keppt i sömu greinum. Fóru leikar þannig,
að Siglfirðingar unnu knattspyrnuna með 2 mörkum gegn 0,
en handknattleikinn unnu stúlkurnar úr Tindastól með 7:2.
Umf. Tindastóll tók þátt í Norðurlandsmóti i liandknattleik
kvenna á Akureyri 14. og 15. ágúst. Tapaði félagið háðum
leikjunum við K.A. með 3:7 og við Þór með 2:4. K.A. varð
Norðurlandsmeistari.
Umf Tindastóll og K.A. kepptu aftur 4. og 5. september i
handknattleik kvenna og knattspyrnu. Fóru leikar þannig, að
handknattleikinn unnu stúlkurnar úr Umf. Tindastól með 9:6,
cn jafntefli varð i knattspyrnunni, 3:3.
Guðjón Ingimundarson kennari á Sauðárkróki er formaður
Ungmennasambands Skagafjarðar og Umf. Tindastóls á Sauð-
árkróki. ~