Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1946, Side 8

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1946, Side 8
Á alþingi sumarið 1634 „lýsti séra Jón Daða- son vegna Árna Jónssonar, búanda í Hattardal í Álftafirði í Eyrarkirkjusókn, hans eiginlegum hvalskutli með slíku merki sem hér upp á mynd- að er ARME 10“. — J. er tíundi stafurinn í staf- rófinu, og á letrið því eflaust að merkja Árni J. = Árni Jónsson. Hin hvalskutulslýsingin er svo- hljóðandi: „Anno 1653, þann 29. júní, lýsti Magnús Giz- urarson í lögréttu skutulsmarki Jóns Berg- sonar með svoddan hætti: Jónberg og öðru meg- in SON. Er þessi Jón Bergsson í Arnarfirði". Þegar hvalur fannst rekinn með merktum skutli í, var finnandi eða jarðeigandi skyldur til að láta eiganda vita, ef hægt var. Ella skyldi hvalurinn skorinn, en andvirði helmingsins — skotmannshluturinn — varðveittur, unz alþingi kom næst saman. Þá var landeigandi skyldur til að lýsa hvalskutlinum. — Hér er hvalskutuls- lýsing frá 1653: síns lífs enda og hennar, sem og skeði að liðn- um þeim tíma, að hún varð fyrir óviljandi, þá er hann vildi kálfinn hæfa, og lét hann það verða sinn síðasta hval, því hann deyði á því sama ári“. Jón lærði getur ólafs hvalaskutlara í Æðey og listar hans, á öðrum stað í ritum sínum. Er það í „Tíðsfordríf", þar sem hann kveðst birta útdrátt úr ferðabók Björns Jórsalafara, þá er Björn hrakti til Grænlands ásamt konu sinni, og mátti hafa vetursetu. „Þar fannst þá reyð- ur með skoti Ólafs bónda í Æðey í ísafirði, og náði Björn þar skotmannshlut, sem hann þurfti matar við fyrir fólk sitt“. Hvalveiðar Arnfirðinga. Arnfirzkir sægarpar héldu lengst við hinni fornu og karlmannlegu íþrótt, að skutla hvali með handskutli og af litlum bátum. Fengust þeir við hvalveiðar allt fram að síðustu aldamót- um, er hvalir hættu að koma þangað í fjörðinn. Búrhvalsveiðar. Myndin er gerð eftir gömlu málverki „í sama stað (þ. e. lögréttu) og dag (þ. e 29. júní) lýsti Sigurður Jónsson, sýslumaður í Mýr- arsýslu, skutli, er fannst í fiski vestur í Álftár- ósi, með þessu marki: XXI. Það, sem af fiskin- um var nýtandi, var alls að vikt fjórar vættir“. Hvalskutlarar ýmsir hafa nafnkunnir orðið á fyrri öldum, einkum Vestfirðingar. Hér skal að- eins minnst á einn þeirra, ólaf bónda í Æðey á ísafjarðardjúpi. Jón lærði getur hans í hvala- þætti sínum og segir af honum eftirfarandi sögu: „Ólafur bóndi, sem átti Æðey í ísafirði, á dög- um Björns bónda Einarssonar, sem var faðir Vatnsfjarðar-Kristínar, hann var hinn mesti hvalaskutlai’i, og vitringur mikill og hóglátur. Þau síðustu 15 ár hans lífdaga færði honum hin sama reyður kálf sinn vaxinn á hverju sumri, fyrr en hún fór til hafs. Hann hafði markað með gat í gegnum hornið, og vildi henni ekki granda, því hann sagði sama ár verða mundi Svo vel vill til, að enn er á lífi maður, fróður vel og gagnmerkur, sem gjörla kann að segja frá veiðum þessum og veiðimönnum hinna síðari tíma. Er það Gísli Ásgeirsson, skipstjóri og bóndi frá Álftamýri. Hef ég snúið mér til hans um upplýsingar varðandi þetta efni, og ekki komið að tómum kofanum. Læt ég hann nú segja sjálfan frá um hríð. Gamlir menn sögðu í ungdæmi mínu margar sögur af ólafi hvalamanni í Hvestu*), sem ver- ið hafði afburða hvalaskytta á sinni tíð. Þeir sögðu að Ólafur hefði strengjárnað hvalinn, sem kallað var, verið á stóru skipi.. áttæringi eða teinæringi, haft byssu fasta framan á skip- inu, og skotið úr henni. Skutull sá, sem ólafur notaði ,var sterkur mjög. Við skutulinn var fest- *) Ólafur Jónsson í Hvestu mun hafa verið uppi á 17. öld. Sagnir um hann eru skráðar í „Vestfirzkar sagnir“ I, bls. 16—22. 296 VÍKIN □ U R

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.