Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1946, Blaðsíða 42
„ÍSLANDSKLUKKA”
Innflytjendasamband Úrsmiðafélags íslands hefur
nýlega afhent Sjómannaskólanum mjög- vandaða turn-
klukku að gjöf. Er klukkunni komið fyrir í turni Sjó-
mannaskólans. Gjöfinni fyigdu 12 kennslustofuklukkur.
Fór afhending gjafabréfsins fram í hádegisverðarhófi,
sem stjórn Úrsmiðafélagsins hélt að Hótel Borg fimmtu-
daginn 17. október. Meðal gesta voru Emil Jónsson,
siglingamálaráðherra, Pétur Magnússon, fjármálaráð-
heri’a, Bjarni Bcnediktsson, borgarstjóri, Friðrik Ólafs-
son, skólastjóri, Ásgeir Sigrðsson, forseti FFSÍ o.fl.
Jóhann Árm. Jónsson, formaður Innkaupadeildar úr-
smiða stjórnaði hófinu og afhenti gjöfina. Aðrir ræðu-
menn voru: Emil Jónsson, ráðherra, Friðrik Ólafsson,
skólastjóri, Ásgeir Sigui'ðsson, skipstjóri, Bjarni Bene-
diktsson, borgarstjóri, Árni B. Björnsson og Björn
Björnsson, stórkaupmaður frá London, sem annaðist
innkaup á klukkunni.
Ásgeir Sigurðsson skipstjóri þakkaði hina rausnar-
legu gjöf, fyrir hönd FFSÍ og sjómanna. Mælti hann,
m. a. á þessa leið:
„Um leið og ég þakka af heilum hug fyrir hönd okkar,
sem erum umbjóðendur s.jómanna í byggingarnefnd
skólans, — Úrsmiðafél. íslands fyrir veglyndi það og
vinsemd í garð sjómanna, sem lýsir . sér með þessari
veglegu gjöf, hinni miklu kiukku í turn skólans, scm
auk- þess að vera hið mesta dvergasmíði, að sögn sér-
fróðra, hefir með sér postulana tólf, hinar 12 vegg-
klukkur, þá læt ég eigi hjá líða að láta í ljósi þá ósk
mína og von að hún megi verða til þess, með sínum
12 fylgihnöttum, að minna nemendur skólans á stund-
vísi og árvekni við námið. Og eins og hinri veglegi
skóli, sem byggður er á b.jargi, er hið táknrænasta
merki til þess að leiðbeina sjómönnum, um örugga leið
út og inn af höfninni til höfuðstaðar landsins, svo verði
og þessi turnkiukka til þess að minna, eigi aðeins sjó-
menn, heldur og alla landsmenn, á að gjöra rétta og
þarflega hluti á réttum tíma. Geti hún þannig orðið
sannkölluð íslandsklukka, í orðsins sönnustu og beztu
merkingu".
Lýsing hinnar veglegu klukku er á þessa leið:
Turnklukka S.jómannaskólans í Reyk.javík er með
f.jórum skífum hátt á annan metra (168 cm.) að þver-
máli, einni á hverri hlið turnsins. Þær ganga allar fyrir
einu verki, sem stendur á miðju gólfi á sömu hæð. Verk
þetta er af nýrri gerð, mjög sterklegt, gjört af stáli og
kopar. Stálrör ganga úr verkinu út af skífunum fjór-
um og tengjast þar vísunum, en þeir standa óvarðir ut-
an á skífunum.
í stórviðri þarf mikinn kraft til þess að stjórna vís-
unum og er rafmagnsmótor, sem komið er fyrir i sam-
bandi við verkið látinn annast það starf. Dregur hann
klukkuna upp á nokkurra mínútna fresti. Bili raf-
magnsveitan, heldur klukkan þó áfram að ganga rúma
3 tíma. Að innanverðu við úrskífurnar, sem eru úr ljósu
ópalgleri, er komið fyrir ljósaútbúnaði, sem kviknar á
þogar dimmt er orðið, og gjörir þær lýsandi. — Mun
þecta vera fyrsta turnklukkan hér á landi, sem lýst er
upp á þennan háH. -—
Ef staldrað er við í turninum og horft á hjólverk
klukkunnar, virðist það fyrst í stað standa kyrrt, en
nákvæmiega tvisvar sinnum á mínútu hverri færist „líf“
í verkið, hjól og spaðar taka að hverfast og vísarnir
færast fram um hálfa mínútu. Hér er „sál“ klukkunn-
ar að verki, móðurklukkan nákvæma, sem á heima á
annarri hæð hússins og sendir boð með rafmagnsstraumi
til turnklukkunnar og hinna tólf stofuklukkna, sem
henni eru undirgefnar, víðsvegar um skólann. Færist
þá hver þeirra fr&m um hálfa mínútu. Móðurklukka
þessi er af mjög fullkominni gerð, með sekúndudingul
Úr „Invar“-stáli, en stáltegund sú er ónæm fyrir hita-
breytingum, sem annars rugla ganginn. Ennfremur
virðist gerð þessi vera laus við þann annmarka á eldri
klukkum, sem orsakar gangskekkju vegna þykknandi
olíu.
33Q
V I K I N G U R