Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1946, Blaðsíða 19

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1946, Blaðsíða 19
var stórt barkaskip. Annars fór sjálf veiðin fram á löngum og rennilegum róðrarbátilm, og var hvalabyssunni komið fyrir í stafni þeirra. Þeir Roys-bræður lögðu einkum kapp á að veiða . reyðarhvali. Geklc veiðin treglega hið fyrsta sumar. Var því einkum kennt um, hve útbún- aður hvalabyssunnar var ennþá ófullkominn. Kom það alloft fyrir, að „granat“-kúlan sprakk um leið og skotið hljóp úr byssunni, en ekki þegar í hvalskrokkinn kom, eins og til var ætl- ast. Voru mjög mikil brögð að því, að hvalirn- ir töpuðust með öllu, eftir að þeir voru járn- aðir. Bendir til þess auglýsing nokkur, smá- skrítin, sem birtist í Þjóðólfi haustið 1863, und- irrituð af Ludvig Popp, kaupmanni á Eskifirði. Auglýsingin er á þessa leið: „Hér með geri ég undirskrifaður mönnum kunnugt: að hvalveiðamaðurinn F. W. Roys frá Nýju-Jórvík í Vesturheimi, sem í sumar hefur dvalið um tíma hér á Reyðarfirði, og með sín- um einkennilegu byssum drepið nokkra hvali, hefur selt mér sinn rétt til skotmannshlutar úr öllum þeim hvölum, sem hann hefur drepið, en ekki náð. Þess vegna bið ég alla þá, sem hlut eiga að máli, hvar þessir hvalir, sem hans einkennilegu skotjárn finnast í, reka eða verða að landi flutt- ir, að hirða minn skotmannshlut, og gera mér skil fyrir honum; skal ég borga það sanngjarn- lega. Þetta bið ég útgefara Þjóðólfs að auglýsa í blaði sínu. Eskifirði, þann 4. sept. 1863. L. Popp.“ Eins og auglýsing þessi ber með sér, hafa hinir amerísku hvalveiðamenn hætt veiðum snemma að þessu sinni. Árið eftir komu þeir aft- ur, og tókst þá allmiklu betur til. Birtist frétta- pistill um þá í Þjóðólfi 29. ágúst 1864. Þar segir svo: „Hvalveiðamaðurinn F. W. Roys frá Nýju- Jórvík (New York) í Vesturheimi, liinn sami er kom til Múlasýslnanna í fyrra, en gekk þá illa veiðin, kom nú aftur þar á sömu stöðvarnar í vor, og var betur útbúinn að ýmsu heldur en hið fyrra ár; enda hefur honum nú heppnazt miklu betur. Eftir því sem oss er skrifað úr Múlasýslum, voru þeir um byrjun fyrra mán- aðar búnir að færa inn á Eskifjörð 4 hvali, en þar að auki hafði 2 hvali rekið á Norðfirði, er þeir gátu helgað sér. Þriðja hvalinn, er Frakkar höfðu fundið dauðan úti á sjó og færðu síðan til lands, gátu veiðimennirnir staðhæft að værí sin eign. Þeir taka spik allt til sín og öll bein, en selja landsmönnum rengið, liverja vætt á 9 mörk, og þvestið á hálfan dal. Þeir bóttust heldur mannfáir, er veiðin heppnaðist þeim nú svo vel, og réðu því til sín sumarlangt 4 ís- lendinga. Eigi er oss skrifað með hverjum kjör- um það var. En það væri mikils vert ef lands- menn kæmust upp á þessa veiðiaðferð þeirra og sameinuðu sig síðan til að stunda hana sjálfir“. Þar sem veiðarnar gengu mjög skaplega sum- arið 1864, færðist Roys nú allur í aukana og hugði á stærri athafnir. Fram til þessa hafði hann ekki komið sér upp neinum varanlegum byggingum í landi, en haldið sig með skip sín aðallega inni á Reyðarfirði og Eskifirði. Nú var honum mjög í hug að festa kaup á landrými við einhvern fjörðinn eystra, og setjast þar að með hvalaútgerðina. Varð Seyðisfjörður fyrir valinu. Jafnframt gerðist það tíðinda í sambandi við útgerðina þetta ár, að þeir bættu við sig gufu- skipi, en höfðu aðeins haft seglskip og róðrar- báta áður. Þó er svo helzt að skilja á fremur óglöggum ummælum, sem gufuskip þetta hafi ekki verið notað til hvalveiðanna sjálfra, held- ur „búið ýmsum vélum til að ná feiti úr bein- um, rengi og þvesti“. Aflinn sumarið 1865 var góður. Þó var það svo, að enn sem fyrr tapaðist mikið af þeim hvölum, sem skutlaðir voru, og kenndu menn byssunum um það. Þjóðólfur skýrir frá afla- brögðum þetta sumar, samkvæmt bréfi úr Múla- sýslum, dagsettu 5. september. Þar segir: „Hvalveiðamennirnir frá New York hafa nú, að sögn, drepið 40 hvali, en náð einasta 16. Með- eigandinn kom í ágúst á öðru gufuskipi, til að líta eftir, í hverju skotfærunum var ábótavant. Þeir hafa selt allt rengið landsmönnum, og enda flutt á gufuskipinu til þeirra, sem beiðzt hafa“. Nú var svo komið, að ekki leit mjög illaút með hvalveiðar þessar, og gátu eigendur gert sér vonir um einhvern afrakstur, ef ekkert sérstakt kæmi fyrir. Þeir hafa eflaust verið búnir að leggja mikið fé í fyrirtæki sitt, og líklega geng- ið frá með reksturshalla bæði undanfarin ár, einkurn 1863. Loks var þess von, að reksturinn bæri sig. En heppnin var þeim ekki hliðholl. Hinn 13. september 1865, er veiðum var lokið og leiðangursmenn að búa sig undir brottför héðan með dágóðan sumarafla, gerði storm mik- inn. Briggskipið „Reindeer“ lá á Seyðisfjarðar- höfn, ásamt gufuskipi þeirra hvalveiðimanna. í ofviðrinu slitnaði „Reindeer“ upp, slengdist á gufuskipið og laskaði það mikið. „Reindeer“ brotnaði og sökk, en gufuskipið varð ósjófært með öllu, unz fram hafði farið gagnger viðgerð og erlendir sérfræðingar verið kvaddir til. Þetta var svo mikið áfall fyrir Thomas Roys og félaga hans, að þeir áttu ekki annan kost en gefast upp og leggja árar í bát. Var þar með lokið þriggja ára hvalveiðum þeirra, við ísland. Otto C. Hammer. Þegar Thomas Roys neyddist til að hætta hvalveiðum, urðu aðrir til að taka upp þráðinn. V í K I N □ U R 307
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.