Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1946, Blaðsíða 31
Yfiiiit.
í undanförnum köflum hefur verið mjög fljótt
yfir sögu farið. Hvalveiðar Norðmanna hér við
land á tímabilinu 1883—1915 eru svo umfangs-
miklar, að um þær þyrfti að skrifa miklu ræki-
legar en hér er gert. Skiptir í því sambandi engu
máli hvaða álit menn kunna að hafa á gagnsemi
þessara veiða fyrir landið.
Svo vel vill til, að fyrir liggja ýmsar heim-
ildir um veiðarnar, bæði í norskum bókum er á
þetta minnast, og á víð og dreif i íslenzkum
blöðum. Þyrfti að vinna úr þessu efni öllu og
gera niðurstöðurnar aðgengilegar. Þá ætti að
rekja alla þá sögu miklu nákvæmar og ýtarleg-
ar, sem hér er ymprað á að framan, og hvergi
nærri er hálfsögð. Enn yrði að auka mörgu við,
sem ekki reyndist kleift að taka með í yfirlits-
grein þessa. Meðal þess, sem gera þyrfti skil,
en hér er niður fellt af ráðnum hug, er þetta:
Veiðisvæðin, veiðarfærin, lýsing hvalveiðanna
sjálfra (skemmtilegt efni), vinnan við hvalveiði-
stöðvarnar, hagfræðilegar athuganir ýmsar
o. m. fl.
Til að gera mönnum nokkru ljósara umfang
hvalveiðanna við ísland, er birt hér yfirlit um
veiðarnar. Nær það yfir tímabilið frá 1891 til
1915. —
- Fjöldi Ar voiðlbáta Hvolir samtals Lýsisföt Hvalir að meðaltali á skip Lýsisföt að meðaltali á skip
1891 8 206 8300 26 1038
1892 11 316 11600 29 1054
1893 15 505 15600 34 1040
1894 15 523 21600 35 1440
1895 16 768 29100 48 1818
1896 18 792 33000 44 1833
1897 18 S k ýr sl u v a n t a r.
1898 21 796 33000 38 1600
1899 23 868 37000 38 1609
1900 23 823 33600 36 1461
1901 27 1192 39400 44 1459
1902 30 1305 40000 43 1333
1903 30 1257 36000 42 1200
1904 27 983 30000 36 1111
1905 25 1041 37000 42 1480
1906 25 650 21600 26 864
1907 25 843 34200 34 1370
1908 29 761 28100 26 969
1909 30 946 31700 32 1060
1910 32 649 22600 20 706
1911 22 428 14800 19 673
1912 20 152 6100 8 305
1913 13 123 3914 9 301
1914 3 35 1565 7 522
1915 4 54 1715 * 13 429
Hvalveiðistöðin á Tálknafirði 1935—1939.
Þegar hvalafriðunarlögin höfðu staðið í all-
mörg ár, fór árangur friðunarinnar smám sam-
an að koma í ljós. Árið 1928 var lögunum breytt
á þann veg, að stjórnarvöldin máttu veita ein-
stökum mönnum og félögum sérleyfi til hval-
veiða um ákveðinn tíma.
Um og eftir 1930 varð það stórum algengara
en næstu 15 árin á undan, að stórhveli sæjust
í nánd við landið. Norðmenn voru fljótir að
veita aukningu hvalsins athygli. Sendu þeir
veiðileiðangra sína og fljótandi verksmiðjur
norður hingað. Lágu slíkar hvalveiðistöðvar
jafnvel í Faxaflóa utanverðum, og munu hafa
aflað vel.
Veiðiskapur þessi örfaði nokkra íslenzka
menn til að hefjast handa um hvalveiðar. For-
gönguna hafði Pétur A. ólafsson konsúll. Hann
hafði keypt hvalveiðistöð Norðmanna á Tálkna-
firði, er þeir hættu hér 1915, stofnað selveiða-
félag, sem starfaði með góðum árangri um
tveggja ára skeið, en orðið að hætta þeim vegna
þess að selveiðaskipið fórst. Félag þetta hét
Kópur.
Litlu eftir 1930 hóf félagið Kópur, undir foi’-
ystu Pétui*s A. Ólafssonar, að undii’búa hval-
veiðar frá Tálknafirði. Fékk félagið 10 ára sér-
leyfi til hvalveiða. Tókst að hrinda máli þessu í
framkvæmd, og voru veiðarnar stundaðar í 5
ár, eða þar til styi’jöldin skall á.
Hvalveiðarnar á Suðui’eyri í Tálknafii’ði hóf-
ust snemma sumars 1935. Höfðu þá hvalveiðar
ekki verið reknar héðan af landi um 20 ára
skeið. Félagið hafði tekið á leigu tvonorskahval-
veiðabáta, „Mai’quis de Estella" og „Jerv I.“
Var hinn fyrnefndi bátur þrjá mánuði að veið-
um og fékk 17 hvali, en hinn tvo mánuði og
fékk 11. Eftir tegundum skiptust hvalir þeir,
sem veiddir voru, þannig:
Langreyðar 25
Stéypireyðar 2
Sandi’eyður 1.
Þótt aflinn gæti ekki heitið mikill, var þetta
þó skaplegur árangur, miðað við hinn stutta
veiðitíma og ei-fiðleika frumbýlisársins.
Næsta ár, 1936, var úthaldstíminn allmiklu
lengri en fyrra ái’ið, enda veiddist þá vel. Bát-
arnir vox-u tveir eins og áður, „Marquis de Est-
ella“ og „Busen III.“ Fyi’sti hvalurinn veiddist
15. maí, en hinn síðasti 15. sept.
Alls veiddust á árinu 85 hvalir. Tegundii’nar
voru þessar:
Sandreyður 1
Langreyðar 72
Steypii’eyðar 5
Búrhvalir 7.
Úr aflanum fengust 3300 föt af hvallýsi og
331 smálest af hvalkjöti.
Árið 1937 voru veiðiskipin bæði hin sömu og
árið áður. Aflinn var nú 79 hvalir. Skiptust þeir
þannig eftir tegundum:
VÍKINGUR
319