Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1946, Blaðsíða 57

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1946, Blaðsíða 57
ráðherra, gafst mér tækifæri til að þig-gja virðulegt heimboð bæjarstjórnar ísafjarðar og annara aðila. En til þess, að því yrði viðkomið á tilætluðum tíma, var varðskipið „Öðinn“ látið taka okkm’ Guðm. Gíslason Hagalín rithöfund, og þáverandi forseta bæjarstjórnar ísafjarðar, á Hólmavík og fara með okkur þaðan til fsa- fjarðar; var það rétt eftir miðjan júlí. Komum við bílleiðis frá Hvammi í Norðurár- dal til Hólmavíkur um miðnæturskeið í blíðasta veðri, og verð ég langminnugur komunnai' þang- að í ríki miðnætursólarinnar, og hurfu mér þá í hug ljóðlínur Klettafjallaskládsins, sem aldrei gleymdi sumar- og sóldýrð ættlandsins, fremur en flest önnur heimaalin börn þess erlendis, en átti jafnframt þann fágæta hæfileika að finna þeirri minningamynd sinni búning ódauðlegra orða: Fjarst í eilífðar útsæ vakir eylendan þín: nóttlaus voi-aldar veröld, þar sem víðsýnið skín. ,,Óðinn“ beið okkar félaga ferðbúinn og tóku þeir Eiríkur Kristófersson skipherra og skip- verjar hans okkur tveim höndum. Var skemmti- legt að halda út Steigrímsfjörð í næturdýrðinni, og sáust veiðiskip þar á víð og dreif, svo að nú tók hinn gamli sjómannshugur að vakna í brjósti mér. En langur dagur var að baki, því að hinn ágæti bílstjóri minn, Sófus Bender, hafði keyrt mig frá því snemma dags af Akureyri suður í Borgarfjörð og allar götur vestur um Dali til Hólmavíkur í einni lotu. Hafði hann reynst mér um allt hinn prýðilegasti ferðafélagi, ásamt með frænda mínum Eysteini Jónssyni al- þingismanni og fyrrv. ráðherra, er var með í ferðinni suður að Hvammi í Norðurárdal, og Guðmundi prófessor IJagalín, gömlum skólabi'óð- ur og foi'nvini, sem fylgdi mér þaðan til ísa- fjarðar, eins og fyrr getur, og fræddi mig bæði um örnefni og staðhætti og skemmti mér með fyndni sinni og skáldskap. Gat ég því með sanni sagt, með Grími skáldi Thomsen, að föruneytið hafði stytt mér leið. Mörgu þurfti ég líka að gefa gaum á hinum söguríku slóðum, sem við liöfðum farið um, og ég hafði aldrei áður ferð- ast um. Feginn varð ég þó eftir þann langa og atbm-ðaríka ferðadag að ganga til hvílu á „Óðni“, og notalegt var það að vaggast í svefn við bárugjálfur á byrðing, eins og í gamla daga. Þegar við risum úr rekkju næsta morgun, vor- um við komnir langt vestur með Ströndum, og hafði ,,óðni“ skilað vel í áttina, þó nokkrum vindi væri móti að sækja. Eftir því sem vestar dró og betur varð notið útsýnis til lands, varð mér starsýnna á fjöllum krýnt og svipmikið landið á þeim slóðum, er minnti mig mjög á mína hugumkæru Austfirði. Eigi hreifst ég minna af hrikadýrð landslagsins, þá er Hornstrandir blöstu við augum, og hefir sú útsýn, og ferðin öll frá Hólmavík til fsafjarðar með „Óðni“ rifj- ast upp við að endurlesa á ný hið merkilega og prýðilega rit Þorleifs Bjarnasonar kennara, Hornstrendingabók, sem lýsir þeim sérstæða og stórbrotna landshluta og þeirri hörðu og hetju- legu baráttu, sem þar hefir verið háð fyrir líf- inu, af mikilli þekkingu og djúpum skilningi. Gerðist nú ekkert sögulegt ,um sinn, en nú fór að draga að því atvikinu, sem mér varð æfin- týralegast og er minnisstæðast úr umræddri ferð. Þegar kom á Fljótavík milli Kögui's og Hvestu, segir Eiríkur skipherra við mig, að þar sé tíðum fiskisælt, og svaraði ég á þá leið, að gaman hefði nú verið að renna færi, og vita hversu til tækist. SkipheiAa, sem ekkert lét ó- gert til þess að gera mér ferðina sem ánægju- legasta, taldi engin tormerki á því, og var nú „Óðinn“ látinn staðnæmast, en veður var gott. Ilandfæri voru fyrir hendi, og klæddumst við Ilagalín nú sjóklæðum. Sveipaði hann sig olíu- svuntu mikilli, og var nú bæði vígamannlegur og sjómannlegur, enda er hann gamall skútu- maður, og þaulkunnugur sjómennsku og sjó- mannalífi, eins og hinar mörgu snjöllu sögur hans um þau efni bera órækt vitni. Sjálfur klæddist ég regnkápu, sem ég hafði flutt með mér vestan um haf, og vígð hafði verið í rign- ingunni á Þingvöllum lýðveldisdaginn ógleym- anlega, og taldi ég, að veiðiheill myndi fylgja svo sögufrægri yfirhöfn. Það kom einnig fljótt á daginn, og reyndist skipherra sannspár um fiskisældina á Fljótavík. Ég var eigi fyrr kom- inn í botn, en ég setti báða öngla mína í fisk, og hafði Iiagalín sömu sögu að segja. Dróum við hátt upp í tug fiska hvor um sig á stuttri stund, og suma allvæna, og þóttumst hafa sýnt það, að við værum enn hlutgengir, ef í það færi. Var ferðinni nú haldið áfram til ísafjarðar, og taldi ég mig mann að rneiri, þar sem ég hafði lagt á borð með mér á „óðni“, og fannst ég nú geta horft djarflegar í augu Vestfirðinga, fyrst ég var búinn að sýna það svart á hvítu, að ég kynni enn að draga fisk úr sjó, hvort heldur væri fyr- ir Austur- eða Vesturlandi. Var mér hin mesta ánægja að veiðiför þessari, og er þakklátur bæði skipherra og skipverjum fyrir að gera mér þess kost að njóta hennar. Eigi var þó liin ánægju- lega ferð með „óðni“ eina ferð mín sjóleiðis í fslandsförinni. Eftir að hafa mætt frábærum viðtökum af hálfu fsfirðinga og annara Vestfirðinga, svo að mér gleymist það aldrei, fórum við Hagalín, sem eigi gerði endasleppt um fylgdina við mig, til Reykjavíkur með „Esjunni“. Hafði ég hlakkað V I K I N G U R 345
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.