Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1946, Blaðsíða 79

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1946, Blaðsíða 79
Einar Bogason frá Hringsdal Faðir þilskipaútgerðar d íslandi og fœðingarstaður hennar Selárdalur við Arnarfjörð er einn af merkisstöðum þessa lands. Bárður svarti Atlason hét göfugur bóndi sem bjó þar á 12. öld. Hann var afi Hrafns Svein- bjarnarsonar á Hrafnseyri, því Sveinbjörn faðir Hrafns var sonur Bárðar svarta. Hrafn Sveinbjarnarson á Hrafnseyri er talinn hafa verið hreinhjartaðasta göfug- menni allra höfðingja, sem uppi voru á Sturlungaöld á Islandi. Á fyrri hluta Sturlungaaldar bjó með sonum sínum í Selárdal ekkja, sem Ragnheíður hét Aronsdóttir Bárðarsonar hins svarta í Selárdal. Ragnheiður í Sel- árdal og Hrafn Sveinbjarnarson á Hrafnseyri voru því bræðrabörn. Seinni maður Ragnheiðar hét Þór- arinn. Áttu þau Ragnheiður marga sonu, og eru þeir nafnkenndastir Eyvindur og Tómas. Var Tómas Þór- arinsson prestur í Selárdal og þótti sómamaður. Var hann þar prestur þegar Þórður Sighvatsson kakali kom í Selárdal í liðsbón til föður- og bróðurhefnda. Mjög ástúðlegt og mikil vinátta var með þeim bræðra- börnunum Ragnheiði og Hrafni, og var Hrafn oft í heimboðum í Selárdal. Hrafn Sveinbjarnarson á Hrafnseyri var goðorðs- maður og fór með Seldælingagoðorð, en Seldælir voru alkunnir höfðingjar á Vestfjörðum og höfðu héraðs- völd og yfirráð helmings Vestfjarðarkjálkans, en Vatns- firðingar réðu yfir hinum helmingnum. Hrafn var afar vinnsæll höfðingi af þingmönnum sínum, því hann vildi hvers manns vandræði leysa, og vildi hver maður af hans þingmönnum sitja og standa eins og hann vildi, og þó að Seldælagoðarnir væru miklir menn, mun Hrafn að öllu samanlögðu hafa verið þeirra merkastur og beztur. Ragnheiður í Selárdal var mjög vitur kona. Henni leizt illa á að Hrafn frændi hennar skyldi bindast vináttuböndum við Þorvald Vatnsfirðing, og spáði að Hrafn myndi illt af Þorvaldi hljóta, sem að kom, því Þorvaldur varð banamaður Hrafns velgjörðamanns síns og frænda. Eitt sinn þegar Þorvaldur gerði aðför að Hrafni, barst Hrafni njósn, að Þorvaldar væri von. Sendi Hrafn þá til Seldæla, frænda sinna, eftir liði. Safnaði þá Eyvindur Þórarinsson liði um Tálknafjörð og Arnarfjarðardali, og kom til liðs við Hrafn á mörg- um skipum. Tómas bróðir Eyvindar, var í virkinu hjá Hrafni með öðrum bróður sínum. Hann gekk með mann- fjölda úr virkinu til að sameinast skipaliði Eyvindar. Sá þá Þorvaldur sitt óvænna, og varð frá að hverfa í það sinn. Vildu þá vinir Hrafns að Þorvaldi væri veitt aðganga og hann drepinn, og töldu, að ei myndi seinna vænna. En Hrafn vildi það með engu móti, og taldi óhæfu að hefja manndráp á helgum degi. En dag þennan bar upp á Jakobsmessu. Var þá sætta leitað og sættust þeir Hrafn og Þorvaldur. Var sú sætt þeirra, að um öll þeirra misklíðarefni skyldu gera Þorvaldur Gizurarson og Þórður Sturlu- son. Hrafn veitti síðan Þorvaldi og fylgdarmönnum hans dagverð. Hann fékk þeim síðan hesta noi'ður yfir heiði til Dýrafjarðar. Kvöddust þeir Þorvaldur og Hrafn með hinum mestu virktum. Til sáttafundarins, sem ákveðinn hafði verið að Reykholti í Borgarfirði kom Hrafn og báðir gerðarmennirnir Þorvaldur Gizur- arson og Þórður Sturluson, en Þorvaldur Vatnsfirðing- ur lét þar ekki sjá sig. Ákváðu þeir þá annan sáttafund í Fagradal á Skarðsströnd. Fór það á sömu leið, að Hrafn og sáttasemjararnir komu, en Þorvaldur Snorra- son sázt hvergi. Þótti þessi framkoma Þorvaldar bera vitni um það, að honum væri allt annað í hug en að sættast við Hrafn frænda sinn. Hafði Hrafn því fjöl- mennt á Hrafnseyri, og var var um sig. Á langaföstu veturinn 1213, hóf Þorvaldur aðför að Hrafni; voru þeii' 32 saman. Fóru þeir Glámuheiði til Arnarf jarðar. Var vont veður. Töldu varðmenn á Hrafnseyri ekki þörf á að halda vörð, því engum myndi vera fært að fara yfir Glámu eða aðrar heiðar í slíku óveðri. Var því ekki vakað. Var þetta gert á móti vilja Hrafns. Heimamenn Hrafns töldu líka að Þorvaldur mundi ekki gera þeim aðför á langaföstu. Þessa sömu nótt kom Þorvaldur með lið sitt að Hrafnseyri. Hófu þeir mann á skildi upp á virkisvegginn og renndi hann lokum frá virkis- hurðinni, og gengu þeir Þorvaldur síðan í virkið. — Þeir Þorvaldur báru við að dyrum og lögðu eld í og svo lögðu þeir eld víða í þekjuna. Menn Þorvaldar höfðu ýms fíflsleg orð um þetta mál, og lögðu illt eitt til málanna, en Þorvaldur vildi engu svara Hrafni um griðin. Hrafn lét þá presta sína ganga til stofu og syngja óttusöng, og söng hann með þeim. En er þeir höfðu sungið óttusönginn gerðist reykur mikill í hús- unum. Hrafn gekk þá til dyra og bauð Þorvaldi góð boð til sætta, en Þorvaldur neitaði öllum boðum hans. Þá bauð Hrafn að gefa sig upp til friðar öllum mönn- um öðrum, sem inni voru og að bærinn yrði ekki brenndur. Þorvaldur svarar: „Ég mun lofa hér öllum út að ganga, ef þér seljið áður af höndum vopn yðar, og geri ég slíkt af hverjum ykkar, sem mér líkar.“ Þá gengu þeir *Hrafn út og menn hans og létu af hendi vopn sín. Var öllum konum og körlum leyft að fara í kirkju, nema Hrafni og tveim mönnum öðrum. Var V í K I N G U R 367
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.