Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1946, Page 52

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1946, Page 52
2. mynd. á marmshörund, ef við kemur. Lýsir hann sér líkt og bruni, áþekkt áhrifum brenninetlu. Til eru fjölmargar tegundir af sæanemónum. Marg- ar þeirra eru nauðalíkar blómum, ekki aðeins hvað lög- un snertir, heldur einnig að litaskrauti. FjórSa mynd sýnir einkar skrautlega og mjög útbreidda tegund. Hún er fagurrauð á lit, likt og stór, fullþroslca rós. Græn og brún afbrigði þessarar tegundar eru þó ekki sjaldgæf. Sæanemóna þessi er einkar mikið rannsökuð vegna þess, hve auðvelt hefir reynzt að halda henni lifandi í sæbúri (aquarium). Hún fæðir lifandi unga, sem stækka mjög ört, og þroskast. Tekizt hefur að ■“!. mynd. 4. mynd. halda sædýrategund þessari lifandi í búri um 30 ára skeið. Einhver tilkomumesta sæanemóna, sem til er í höfunum, ber latneska nafnið Tealia crassicornis, (5. mynd), en það þýðir anemónan með sveru griparmana. Anemóna þessi getur orðið á stærð við barnshöfuð, og er skreytt öllum hinum fegurstu litum, sem fundnir verða í gjörvöllu litrófinu. Þar má sjá eldi'autt, blátt, gult, grænt, brúnt og flesta aðra liti. Algengast er það, að hvert dýr sé einlitt, en þó finnast einstaklingar, sem geta státað af öllu litrófinu frá upphafi til enda! Þa: sem fjöldi þessara „blóma-dýra“ situr saman á klöpp um og skerjum, mynda þau fagurlitan blómagarð, svo að mannsaugað hefur fátt litið glæsilegra. Enn skal getið um eitt merkilegt afbrigði, sem all- mikið ber á í þessum lystigörðum hafdýpanna. Það er sæfjöörin. (6. mynd). Pennatula phosphorea heitir hún á iatnesku máli. Sæfjöðrin er einnig samfélag fjölmargra dýra, sem öll sitja föst á einum og sama stofni. Sá stofn er þó ekki harður og kalkmyndaður, 5. mynd. 34D VÍ KI N G U R

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.