Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1946, Qupperneq 64

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1946, Qupperneq 64
Línuveiöarinn Sverrir. ekkert síldveiðiskip fengið svo mikið magn síld- ar á einni vertíð fram að þeim tíma. Eftir að Sigurður hætti skipstjórn á Súlunni, var hann með önnur síldveiðiskip, þar á meðal Noreg, Þormóð og Bláhvalinn. Vorið 1933 fór Sigurður til Kaupmannahafn- ar og festi kaup á línuveiðara, 160 smálesta stór- um. Nefndist hann Sverrir. Átti Sigurður 2/3 hluta skipsins og stjórnaði því fimm fyrstu sumrin. Hætti hann þá að mestu leyti að fara til sjós. Aðalstörf Sigurðar að vetrinum hafa um langt skeið verið tvíþætt: Herpinótaviðgerðir og kennsla í sjómannafræði. Hefur hann kennt nær því á hverjum vetri frá því er hann lauk prófi við Stýrimannaskólann. Ýmist hefur það verið undirbúningstilsögn í frumatriðum fyrir þá, sem ætluðu í Stýrimannaskólann, eða fræðsla undir hið minna fiskimannapróf á Akureyri. Þegar Sigurður hætti kennslustörfum við smáskipanámskeið árið 1937, hafði hann kennt hundrað manns, er próf höfðu tekið. Sigurður var einn af stofnendum Skipstjóra- félags Norðlendinga, er stofnað var 1918. Hefur hann lengst af verið í stjórn þess, og var gerð- ur heiðursfélagi á 25 ára afmæli félagsins. Sonur Sigurðar, er Kristján heitir, hefur fet- að í fótspor föður síns. Hann hefur undanfarin ár ýmist verið stýrimaður eða skipstjóri á afla- skipinu Narfa frá Hrísey. Sigurður átti árum saman sæti í sjódómi Ak- ureyrarbæjar, og hefur gegnt fleiri trúnaðar- störfum. Sigurður hefur ritað nokkrar endurminningar sínar frá bernsku- og sjómannsárunum. Birtast þær í síðara bindi ritsins Skútuöldin, sem út kemur um þessar mundir. Um leið og Sjómannablaðið Víkingur flytur lesendum sínum mynd af Sigurði Sumarliðasyni, ásamt þessum fáu orðum um ævistarf hans, vill blaðið ekki láta hjá líða að þakka Sigurði frá- bæra frammistöðu hans í útsölumannsstarfinu og sívakandi umhyggju fyrir viðgangi blaðsins. Það eru menn eins og Sigurður Sumarliðason, sem reynast máttarstoðir og haldreipi hverra þeirra samtaka, er þeir veita liðsinni sitt og stuðning. G. G. Ör Grímseyjartýsingu Séra Jón Norðmann skýrir svo frá fiskveiðum Gríms- eyinga í Grimseyjarlýsin>íU sinni: Þorskur aflast venjule>;a frá ki'ossmessu til jóla or' stundum allan veturinn, sömuleiðis heilaRfiski, en ýsa er sjaldgæf. Hrognkelsaveiði heppnast vel. Hákarls- afli er fremur lítili og ei hefur selveiði heppnast þó reynd hafi verið. Illhveli ónáða oft fiskimenn og eru þessi nafngreind: stórihnúður, litlihnúður, háhyrna, háhyrningur, slam- bakur (er sumir kalla sverðfisk), faxi (þ.e. rauðkemb- ingur). Nauthveli kvað stundum svo hafa drunið, að eyjan öll nötraði. Menn halda að hvalur, sem sézt hefur, hvítur með svartri rönd, eins og elding fljótur, muni vera náhveli. Sézt hefur einnig mjaldur og stökkull. 352 V í K I N □ U R
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.