Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1946, Side 67
KRISTINN KRISTJÁNSSON
JÁRNSMÍÐAMEISTARI
Kristinn Kristjánsson er fæddur í Leirhöfn á Mel-
rakkasléttu hinn 27. dag ágústmánaðar 1885. Voru
foreldrar hans hjónin Kristján Þorgrímsson og Helga
Sæmundsdóttir, sem um langt skeið bjuggu í Leir-
höfn. Voru þau alþekkt sæmdarhjón og heimili þeirra
í hvívetna fyrirmynd. Kristján var hinn mesti dugn-
aðarmaður að hverju sem hann gekk, og fékkst nokkuð
við smíðar. Samt mun hagleikur sá, sem snemma varð
vart hjá sonum hans, meira hafa komið frá móður-
ættinni. Helga var bráðgáfuð kona og mikilhæf. Vafa-
laust hafa þau hjónin verið samhent með gestrisni
sem annað. En sennilega mun það meira hafa verið
verk Helgu, að heimilið varð um marga áratugi at-
hvarf bágstaddra, og er það enn í dag.
Kristján faðir Kristins andaðist meðan synir hans
voru enn í bernsku. Hinir elztu, Jóhann og Kristinn
voru 8—10 ára að aldri. Og sökum þess að Jóhann
var mjög bókhneigður, kom það meir á Kristinn að
annast bústjórnina framan af. Var þess þá enginn
kostur að Kristinn gæti farið að heiman til smíðanáms.
En heima fyrir var að ýmsu góð aðstaða til að nema
á eigin hönd, smiðja og smíðaáhöld, nægilegt efni til
að vinna úr og opt góður tími til að æfa sig. Varð
Kristinn þannig að mestu sjálflærður í smíðunum, eins
og margir sem lengst hafa komizt í þeirri grein.
Það kom snemma í ljós, að þeir bræður í Leirhöfn
voru framgjarnir og atorkumiklir. Á unga aldri byggðu
þeir vandað íbúðarhús úr steinsteypu heima í Leir-
höfn og var það fyrsta steinhúsið sem byggt var í
N. Þingeyjarsýslu. Er húsið svo vandað, að það er enn
meðal vönduðustu húsa í héraðinu.
Þótt margt væri unnið og til alls vandað, sem gert
var í Leirhöfn, voru járnsmíðar samt höfuðgrein Krist-
ins. Hann útvegaði sér öll hin beztu áhöld til járn-
smíða, sem kostur var á og efnahagur hans leyfði,
t.d. má geta þess, að eitt sinn á yngri árum sínum
fékk hann vitneskju um að austur á fjörðum væri
til sölu rennibekkur úr hvalveiðastöð, sem var lögð
niður. Leið ekki á löngu unz bekkurinn var kominn
heim í smiðjuna í Leirhöfn. Er hann þar enn, fágaður og
starfhæfur sem nýr væri.
Höfuðáhugamál Kristins hefir ætíð verið að inn-
leiða ný og betri áhöld til að vinna með, en áður
þekktust. Hann hefir meðal annars fundið upp áhald
til að hvetja með ljái. Má vera að sú smíði þurfi
endurbóta við til þess að verða nothæf. En hugmyndin
er frumleg, og er vonandi, að þessi litla vél eigi eftir
að taka nægilegum endurbótum til þess að hún verði við
allra hæfi.
En sá hlutur frá hendi Kristins, sem bezta viður-
Kristinn
Kristjánsson
kenningu hefir hlotið, er hin einfalda renna, sem notuð
er við að leggja fiskilínur. Um hana þarf ekki að
ræða hér. Hún hefir hlotið sinn dóm og hann góðan.
Það var frá upphafi hugmynd Kristins, að gera
fleiri endurbætur á aðferðinni við að leggja fiski-
línur. Ekki hefir annað „slegið í gegn“ en rennan
umrædda, enn sem komið er. En það er oft erfitt að
ryðja nýjungum braut. Vel mætti vera, að margt
nytsamt kæmi enn frá Kristni, ef hann hefði aðstöðu
til þess að vinna í næði að endurbótam á hugmyndum
sínum. Hefir alþingi okkar oft lagt meiri upphæðir í
óvissu en þótt það greiddi Kristni árlega nokkurn
styrk til þess að vinna að áhugamálum sínum í góðu
næði. Það gæti vel borgað sig fyrir þjóðina.
Kristinn í Leirhöfn er svo sérstæð persóna og „intelli-
gent“ að hann mun seint gleymast þeim, sem ein-
hverju sinni hafa kynnst honum. Athyglisgáfan og
hugkvæmnin er með afbrigðum og skal eitt dæmi þess
tilgreint hér.
Um síðustu aldamót kom Stefán Einarsson í Möðru-
dal heim úr utanför og hafði með sér handsnúna vél
til að saxa hálm. Hugðist Stefán að nota áhald þetta
til þess að gjöra melstengur nothæfar til skepnu-
fóðurs. En það mun lítt hafa heppnazt, og lá vélin
ónotuð áratugum saman heima í Möðrudal, unz hún
komst í eigu Kristins. Sagði hann til að byrja með,
að svona áhöld ættu aðeins við þar sem atvinnurek-
andinn hefði ráð á ókeypis þrælavinnu. En innan
skamms setti hann vélina í samband við mótor, sem
hann notaði í smiðju sinni, og notaði hana til þess að
saxa niður þurrkuð hrognkelsi til kúafóðurs. Síðar fékk
VÍKI N GUR
355